Fréttablaðið - 16.07.2004, Síða 37
29FÖSTUDAGUR 16. júlí 2004
ar
gu
s
04
-0
40
6
flugustangir, veiðifélagar
fyrir lífstíð
vísindi í þágu
veiðilistar
í veiðinni fyrir norðan er mjög
góður og þetta nær alveg vestur
og suður fyrir líka. Árnar fyrir
norðan, sem hefðu mátt gefa fleiri
laxa í fyrrasumar, virðast allar
vera að koma til. Laxinn hellist
inn í þær þessa dagana.
„Veiðin er frábær í Leirvogs-
ánni og í morgun komu á land 30
laxar, sem er meiriháttar veiði,“
sagði Bergur Steingrímsson, fram-
kvæmdastjóri Stangaveiðifélags
Reykjavíkur, er við leituðum frétta
af veiðinni. „Áin er komin yfir 270
laxa og mikið er af fiski í henni.
Hollið sem hætti veiðum í Hítará
veiddi 44 laxa, en alls eru komnir
135 laxar úr ánni,“ sagði Bergur.
„Það er mikið af laxi að ganga
inn í Hrútafjarðará núna og veiði-
menn sem voru neðst í ánni sáu
stórar torfur af fiski, mest var
víst í Maríubakkanum, hann
kraumaði hylurinn,“ sagði Þröst-
ur Elliðasson, leigutaki árinnar,
og sagði að líka hefði rignt í gær-
dag í Hrútafirðinum.
Góður gangur hefur verið í
Blöndu en Blanda hefur gefið yfir
500 laxa. Veiðimaður sem var á
Blöndubökkum sagði að mikið
væri af fiski í ánni og sumir væru
vel vænir.
„Í Laxá í Aðaldal eru alls ekki
uppgrip þessa dagana og það eru
víst komnir um 70 laxar á land,“
sagði veiðimaður sem var við
Æðarfossa í gærdag og hafði
reynt og reynt. „Jú, það er eitt-
hvað af fiski að ganga en alls ekki
mikið. Hann Guðmundur Árnason
veiddi 20 punda lax á svarta
franses flugu á Hólmavaðsstífl-
unni, fallegan fisk sem hann
sleppti aftur,“ sagði veiðimaður-
inn ennfremur.
Pallurinn í Ölfusá hefur gefið
45 laxa og þó nokkuð af silungi,
veiðimenn sem við hittum við pall-
inn í fyrradag, sögðu að veiðiskap-
urinn gengi frekar rólega, einn og
einn fiskur væri að gefa sig.
Nokkrir veiðimenn voru að
berja við brúna yfir Ölfusá og
sumir voru að fá eitthvað. Fyrir
fáum dögum átti veiðimaður leið
um svæðið og sagði að líklega
hefðu um 100 veiðimenn verið við
veiðar á svæðinu.
Ytri- og Eystri-Rangá eru allar
að koma til og það eru að veiðast
um 20 laxar á dag. ■
Bullandi göngur
í árnar á Norðurlandi
VEIÐIHORNIÐ
GUNNAR BENDER
■ skrifar um veiði.
BENEDIKT GUÐMUNDSSON
Benedikt renndi fyrir fiska í Laxá í Dölum fyrir fáum dögum og voru hann og veiðifélagi
hans komnir með þrjá laxa.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
U
N
N
AR
B
EN
D
ER
- mest lesna blað landsins
Á LAUGARDÖGUM
Hin hliðin á bílum
Stærsti bílamarkaður landsins
Auglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is