Fréttablaðið - 15.05.2004, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 15.05.2004, Blaðsíða 10
10 15. maí 2004 LAUGARDAGUR DAGBLAÐIÐ VÍSIR 110. TBL. – 94. ÁRG. – [LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2004 ] VERÐ KR. 295 Halldór SeturDavíð stólinnfyrir dyrnar Bls. 8-9 Eva María Jónsdóttir Barnið gengur fyrir ogKastljós verður að bíða DV hefur fylgst náið með þróun mála í Tyrklandi og í blaðinu í dag eru hátt í fimm síður lagðar undirkeppnina. Við flytjum nýj- ustu fréttir og viðtöl, að ógleymdri stigatöflunni sem við birtum. Bls. 23-26 Rafn Jónsson er tilbúinn að kveðja. Í fimmtán ár hefur hannbarist hetjulega við skelfileganhrörnunarsjúkdóm. Hann býstekki við að lifa til jóla en vonast tilað upplifa fimmtugsafmælið sitt í desember.. Bls. 18-19 Grétar líkmaður Báturinn hans sökk rétt fyrir utan Grindavík Bls. 4 Ég vil deyja með reisn Jónsi tekur ekki mark á spám Undirbýr eigin jarðarför Bls. 46 Skrílslæti um borð í Norrænu Um 700 unglingar fengu ódýra ferð sem endaði í allsherjar fylliríi. Einn farþega segir að fjölskyldur í ferðinni hafi nánast ekkert sofið í tvo daga. Smyril Line hefur þegar ákveðið að ferðir ungmenna verði með öðrum hætti í framtíðinni. SAMGÖNGUR Allt fór úr böndunum þegar sjö hundruð unglingar þáðu ódýrt tilboð Norrænu um vikuferð frá Þórshöfn til Hanstholm í Dan- mörku þann 7. maí. Unglingarnir drukku ótæpilega og starfsmenn skipsins réðu ekki neitt við neitt. Fjölskyldur með börn fengu engan svefnfrið vegna djöfulgangs, tón- listar og láta segir Sigríður Krist- insdóttir, farþegi með Norrænu. Sigríður segir færesku ungling- ana sem voru á heimleið frá Dan- mörku hafa verið með skrílslæti og hamagang. „Við stoppuðum í tvo daga í Fær- eyjum en við vorum svo uppgefin að við gátum ekkert skoðað. Við sváfum bara,“ segir Sigríður. Hún segir að starfsmenn Nor- rænu hafi ekki þorað að hafa barinn opinn á laugardagskvöldinu og ekki hafi verið hægt að dansa. „Um 40 til 50 unglingar sneru öllu við. Þau yf- irtóku skipið. Á morgnana voru reyklausu gangarnir á fimmtu, sjöttu og sjöundu hæð fullir af bjór- dósum, sígarettustubbum og gler- brotum.“ Sigríður segir að hluti Íslending- anna hafi óskað eftir því að ræða við Jónas Hallgrímsson, fram- kvæmdastjóra Norrænu á Seyðis- firði, við komuna í land. Hann hafi hins vegar verið í fríi og sé enn. Samkvæmt færeskum fjöl- miðlum var tugmilljóna sala á bar ferjunnar í ferðinni. Stúlka var heppin að falla ekki útbyrðis þegar hún lenti í utanáliggjandi björgun- arbáti skipsins. Maður var settur í land í Danmörku með áverka eftir slagsmál og önnur líkamsárás var tilkynnt til lögreglu í Færeyjum. Hún handtók í kjölfarið ungan mann sem hafði gefið samferðar- manni olnbogaskot fyrir að óska þess að hann hefði lægra. Fjölmiðlafulltrúi Smyril Line, eiganda Norrænu, Kári Durhuus, segir fyrirtækið hafa borið mikið traust til unga fólksins þegar ferðin var auglýst. Þeir hafi hins vegar gert þrjú meginmistök; hleypt of mörgum unglingum undir 18 ára aldri um borð. Þeir hafi síðan skemmt sér með sér eldra fólki. Að lokum hafi drukknu fólki verið hleypt í ferðina. Slík ferð verði aldrei aftur í boði. Durhuus vill biðja þá sem ekki fóru sáttir frá borði að hafa sam- band við aðalstöðvar Smyril Line. Þar verði málin leyst. gag@frettabladid.is DÓMSTÓLAR Fjórir lögmenn hafa sóttu um starf héraðsdómara hjá dómsmálaráðuneytinu en um- sóknarfrestur rann út í vikunni. Dómsmálaráðherra mun skipa í embættið 1. september en dóm- arinn mun fyrst um sinn ekki eiga fast sæti við tiltekinn héraðsdóm- stól. hann mun eiga fyrstu starfs- stöð við Héraðsdóm Reykjavíkur, en auk starfa þar mun honum einnig verða falin verkefni við aðra héraðsdómstóla. Þeir sem sækja um embættið eru: Arnfríður Einarsdóttir, skrif- stofustjóri við Héraðsdóm Reykjavíkur, nú settur héraðs- dómari við sama dómstól, Ásgeir Magnússon hæstaréttarlögmaður, Sigrún Guðmundsdóttir hæsta- réttarlögmaður og Þorsteinn Pét- ursson héraðsdómslögmaður, sem starfar nú sem löglærður fulltrúi sýslumannsins á Selfossi. ■ BJÖRGUN „Unnið er að björgun Guðrúnar Gísladóttur skref fyrir skref,“ segir Tor Kristjan Sletner hjá norsku strandgæslunni, að- spurður um gang björnunar- aðgerða en skipið hefur legið á hafsbotni skammt frá Lofoten í Noregi í tæp tvö ár. Tor Kristian sagði að tekist hefði að koma Guðrúnu á réttan kjöl á fimmtudag. Í gær var unnið að undirbúningi til að lyfta skip- inu af hafsbotni og sagði Tor Kristian að skiptið gæti jafnvel byrjað að lyftast á næstu klukku- tímum þegar Fréttablaðið ræddi við hann í gær. Eins gæti það tek- ið nokkra daga eða jafnvel vikur. Ef tekst að lyfta skipinu frá botn- inum verður reynt að færa það nær landi, á minna dýpi, áður en því verður lyft alveg. Tor Kristian segir verkefnið flókið og það verði að hugsa og framkvæma klukkutíma fyrir klukkutíma. Hann segir að skemmdir á skipinu hafi verið lauslega kannaðar og það sé töluvert skemmt eftir tæp- lega tveggja ára legu í sjónum. Skemmdirnar geti sett strik í reikninginn og kostað að byrja þurfi björgunina frá grunni. Þó er stefnt að því að ekki líði meira en mánuður þar til búið verði að bjarga skipinu. ■ Björgunin unnin skref fyrir skref: Guðrún Gísladóttir komin á réttan kjöl GUÐRÚN GÍSLADÓTTIR Skemmdir á skipinu eru töluverðar og geta sett strik í reikninginn við björgun þess. HÉRAÐSDÓMUR Nýr héraðsdómari mun eiga fyrstu starfs- stöð við Héraðsdóm Reykjavíkur. Nýr héraðsdómari skipaður 1. september: Fjórir sóttu um starfið AF BARNUM Í NORRÆNU Samkvæmt færeskum fjölmiðlum var tugmilljóna sala á bar ferjunnar í ferðinni. Myndin er ekki úr umræddri ferð. NORRÆNA Á leið inn í Seyðisfjarðar- höfn. 10-11 14.5.2004 21:29 Page 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.