Fréttablaðið - 15.05.2004, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 15.05.2004, Blaðsíða 31
Smáauglýsingar byrja í dag á bls. 4 Flokkar & fjöldi Bílar & farartæki 317 stk. Keypt & selt 46 stk. Þjónusta 53 stk. Heilsa 10 stk. Skólar & námskeið 2 stk. Heimilið 29 stk. Tómstundir & ferðir 12 stk. Húsnæði 51 stk. Atvinna 30 stk. Tilkynningar 4 stk. Farangursbox fyrir alla í vor BLS. 2 Góðan dag! Í dag er laugardagur 15. maí, 136. dagur ársins 2004. Reykjavík 4.12 13.24 22.39 Akureyri 3.37 13.09 22.43 Heimild: Almanak Háskólans Sólarupprás Hádegi Sólarlag Þú færð líka allt sem þig vantar á Tímon Davíð Steinarsson er mikill bílaáhugamaður og keypti sér fyrir níu mánuðum draumabílinn sem er Nissan 300 ZX, sporttýpa. „Þetta er tveggja sæta sportbíll með T-toppi sem þýðir að það er glerþak sem ég get tekið af,“ segir Tímon. „Bíllinn hefur verið á verkstæði af því ég var að láta taka upp vélina, sem er 230 hestöfl V6, þriggja lítra, sem þýðir að ég er ekki nema sjö sekúndur upp í hundrað- ið.“ Tímon segist löngu kominn með fiðring í bensínfótinn og hlakkar til að fá bílinn á götuna. „Hann verður kominn á götuna í dag eða morgun og svo ætla ég að reyna að komast til Akureyrar 17. júní og skarta honum þar á bíladögum.“ Tímon segir að allir bílarnir hans hafi verið með einhvers konar sportlúkki, en hann aftekur með öllu að hann noti bílinn til að pikka upp stelpur. „Það gera það auðvitað sumir sem eru desperat, en ég er ekki í þeim hópi.“ Það er ekki hægt að skilja við Tímon án þess að ræða aðeins um nafnið hans, en hann lét breyta því fyrir tveimur árum úr Davíð Páll í Tímon Davíð. „Þetta er úr Lion King, Tímon og Púmba,“ segir hann til skýringar. „Sumum finnst þetta fyndið, en öðrum bara fáránlegt. Vinur minn heitir Jasmín og okkur fannst þetta að minnsta kosti mjög skondið.“ Tímon sótti löglega um nafnabreyting- una og fékk hana samþykkta og nú gengur hann undir þessu nafni nema hvað nánasta fjölskylda kallar hann enn Davíð. „Mömmu fannst ég skiljanlega létt- bilaður,“ segir Tímon, „en þetta venst.“ edda@frettabladid.is Flotti bíllinn minn: Ekki til að pikka upp stelpur Tímon Davíð Steinarsson er að fá sportbílinn sinn á götuna og er löngu kominn með fiðring í bensínfótinn. Smáauglýsingar á 750 kr. visir.is SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 Daewoo Matiz skr. 04/2000 ek. 54.000 til sölu. Beinskiptur, rafdr. rúður. Yfir- taka á láni + 200 þús. Afb. kr. 10.000 af láni. Verð samtals 483.000 Uppl. í síma 557 3977 & 897 1877. Til sölu 20 feta bátur og löglegur vagn á fjöðrum. Vél 200 hp Volvo Penta dísel. Ganghraði 43 mílur. Aðeins 15 mín. Reykjavík, Akranes. Það þarf engin réttindi á þennan bát. Í 100% lagi. Verð 1,5 milljón. S. 869 3445. Coleman Redwood 2001. Mjög vel með farið. Upphækkað. Verð 830 þ., fer á 780 þ. staðgr. Upplýsingar í síma 691 9966. Til sýnis í Grafarvogi. FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TÍSKA NEYTENDUR o.fl. Liggur í loftinu FYRIR BÍLA Bætt umferðarmerki og vega- merkingar myndu fækka umferð- arslysum mest af öllu samkvæmt könnun Félags íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, sem framkvæmd var á vef þess fib.is. 43% þátttakenda töldu að bætt umferðarmannvirki og vegmerkingar væru það atriði sem eitt og sér myndi skila mest- um árangri. Næstflestir, eða 28%, töldu að aukin löggæsla og hert viðurlög við umferðarbrotum dygðu best. Bensínverð hækkar og eru aukin eftirspurn Kínverja, lág birgðastaða í Bandaríkjunum og stríðsástand í Mið-Austurlöndum helstu ástæðurnar að því er fram kemur á vef FÍB. Heimsmarkaðsverð á olíu er nú það hæsta í 13 ár. Það mun halda áfram að hækka í kjölfar frétta af styrjaldarástandi og ofbeldisverkum í Írak og fyrir botni Miðjarðarhafs og lágri birgðastöðu í Bandaríkjunum. Konur eru betri bílstjórar en karlar samkvæmt nýrri breskri samantekt á orsökum bílslysa. Í henni kom í ljós að karlmenn voru 88% þeirra sem dæmdir voru fyrir brot á umferðarlögum í Wales og á Englandi árið 2002. Innanríkisráðuneytið breska sem sendi þessar upplýsingar frá sér í vikunni varar þó konur við að verða of ánægðar með niður- stöðurnar, þær sýna nefnilega líka að slysum af völdum kvenna fjölg- ar stöðugt. bilar@frettabladid.is 31 (01) Allt forsíða 14.5.2004 15:59 Page 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.