Fréttablaðið - 15.05.2004, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 15.05.2004, Blaðsíða 18
18 15. maí 2004 LAUGARDAGUR Fyrstu hersveitir Sovétríkjannayfirgefa Afganistan þennan dag eftir ríflega átta ára árangurslitlar tilraunir þeirra til að hernema landið. Sovésk stjórnvöld sendu hersveitir til Afganistans í desem- ber árið 1979. Tilgangurinn var að styrkja stjórn kommúnista, sem voru hliðhollir Sovétríkjunum en áttu í vök að verjast gegn inn- lendum uppreisnarmönnum. Næstu átta árin börðust Sovétmenn grimmilegri og blóðugri baráttu við íslamska uppreisnarmenn, sem fyrirlitu bæði kommúnistastjórnina og innrásarliðið. Hvorugur aðili átakanna náði nokkru sinni yfirhöndinni. Innrásin reyndist afdrifarík fyrir Sovétríkin, ekki síður en fyrir íbúa Afganistans. Talið er að um 15 þúsund rússneskir her- menn hafi fallið í Afganistan og Sovétríkin, sem stóðu veikum fótum fjárhagslega, áttu erfitt með að standa undir gífurlegum herkostnaði. Sambandið við Bandaríkin versnaði til muna og Jimmy Carter Bandaríkjaforseti skipaði íþróttafólki þjóðar sinnar að hunsa Ólympíuleikana í Moskvu árið 1980. Ófarir Sovétmanna í Afganistan hafa vafalaust átt sinn þátt í hruni Sovétríkjanna fáum árum síðar. ■ Ég mun gera voðalega lítið,“segir Ólafur Örn Bjarnason, landsliðsmaður í fótbolta, sem spi- lar nú með norska liðinu Brann. „Við erum að fara að keppa á sun- nudaginn á móti Hamkam, þannig það er ekki hægt að gera margt. Ég verð auðvitað að horfa á Júróvisjón og maður heldur nát- túrlega með Íslendingum, þó svo maður búi hér í Noregi.“ Hann segist reyndar lítið hafa fylgst með lögunum í keppninni hingað til og geti ekki myndað sér skoðun á norska laginu, því hann hafi ekki heyrt það. „Ég sá samt einhverja þætti í sjónvarpinu þar sem Eiríkur Hauksson var eitt- hvað að gefa álit sitt á þessu. Svo verður kannski eitthvað gert eftir leikinn. Það er haldið upp á þjóðahátíðardaginn hér 17. maí og það er aldrei að vita nema við fáum okkur eitthvað að borða og tökum nokkra bjóra með.“ Ólafur segir ekki mikið gert úr því þó svo að leikmenn séu að drekka í hófi, svo lengi sem það er ekki gert rétt fyrir leiki. Hann segir að það hafi nú aldrei verið nein stór veisla á afmælidaginn. „Þegar ég var yngri voru oft skólaslit á sama degi. Þegar ég varð eldri var fót- boltinn að byrja á þessum tíma og þá var lítið hægt að gera,“ segir hann og bætir við að það sé nú aldrei að vita hvað gerist á næsta ári þegar hann verður þrítugur. Ólafur hefur verið í Noregi frá því upp úr áramótum við æfingar með Brann og segist hafa það bara mjög gott. Líkt og á Íslandi spilar meistaradeildin yfir sumartímann og er liðið hans Ólafs búið að spila fimm leiki það sem af er af deildarkeppninni. „Það er svolítill munur á íslenska og norska fót- boltanum. Það er allt meira fag- mannlega gert hérna og miklu betri æfingar, ekki það að það hafi verið slæmt heima. Það er bara meiri peningur í fótboltanum hér og stærra umfangs og hvernig þjálfarar og stjórnendur vinna allir í kring um liðin. Það er aðal- lega það að þetta er allt mikið stærra.“ ■ AFMÆLI ÓLAFUR ÖRN BJARNASON ■ er 29 ára í dag og horfir á Júróvisjón í Noregi. MIKE OLDFIELD Tónlistarmaður og höfundur Tubular Bells er 51 árs í dag. 15. MAÍ LEIFAR SOVÉSKA HERNÁMSINS Ástralskur herforingi skoðar sovéska skrið- dreka, sem enn í dag eru að grotna niður í norðanverðu Afganistan. Heimsveldið hrökklast burt RÚSSAR YFIRGEFA AFGANISTAN ■ Þennan dag byrjuðu Sovétmenn að draga herlið sitt burt frá Afganistan eftir átta ára blóðug átök við heimamenn og erlenda málaliða. 15. MAÍ 1988 Fylgist með Júróvisjón í Noregi                             !"#$%&& '(')*+, -      AP /E M IL IO M O R EN AT TI ÓLAFUR ÖRN BJARNASON OG ÁSGEIR SIGURVINSSON Fyrsti leikurinn hans í byrjunarliði landsliðsins ágúst í fyrra þegar Íslendingar mættu Færeyjum í Þórshöfn. Hér er landsliðsþjálfarinn að þakka honum fyrir leikinn. Það er óhætt að segja að vikanhjá Hálfdáni Steinþórssyni, fyrrverandi stjórnanda spurn- ingaþáttarins Landsins snjallasti, og unnustu hans Erlu Björnsdóttir hafi verið viðburðarík. „Vikan var nánast yndisleg að öllu leyti því við eignuðumst sterkan strák,“ segir hinn nýbakaði faðir. „Strákurinn valdi sér líka þennan fína dag, kom í heiminn 060504.“ Hálfdán er að vonum mjög stoltur af drengnum sem var fjórtán merkur og rétt rúmir 50 sentímetrar þegar hann kom í heiminn. „Á þriðja degi heyrðist mér hann segja Bessastaðir. Ég var að vísu illa sofinn og þetta gæti bara hafa verið rop hjá honum,“ segir Hálfdán og ætlar drengnum augljóslega stóra hluti í framtíðinni. Hálfdán er aftur kominn til vinnu, á markaðsdeild Skjás eins, en ætlar að taka lengra fæðingar- orlof í sumar. „Eftir þessa lífsreynslu finnst mér að konur eigi að ganga með kórónu alla daga því þær eru gangandi kraftaverk,“ segir hinn stolti faðir að lokum enda heilsast móður og barni ágætlega. VIKAN SEM VAR HÁLFDÁN STEINÞÓRSSON ■ Fæðing frumburðarins skyggði á allt annað í vikunni. Landsins snjallasti pabbi HÁLFDÁN STEINÞÓRSSON Sjónvarpsmaðurinn snjalli eignaðist strák í vikunni sem leið. Hann er ekki frá því að erfinginn sé þegar með hugann við Bessastaði. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi. SVEINN SVERRIR SVEINSSON, Reynigrund 71, Kópavogi, áður Stafholti, Vestmannaeyjum, Sigríður R. Júlíusdóttir, Júlíus Sveinsson Freydís Fannbergsdóttir, Sveinn S. Sveinsson Margrét J. Bragadóttir, Ragnar Sveinsson Gunnhildur M. Sæmundsdóttir, Birgir Sveinsson Steinunn Ingibjörg Gísladóttir, Finnbogi Jónsson, barnabörn og langafabörn. lést á Landspítalanum í Fossvogi fimmtudaginn 13. maí. ■ AFMÆLI Sigríður Ingvarsdóttir, fyrrum alþingis- maður, er 39 ára. Bergsveinn Sampsted markaðsfræðin- gur er 38 ára. ■ ANDLÁT Hallgrímur Valgeir Guðmundsson, Stórholti 47, Reykjavík, lést þriðjudaginn 11. maí. Pétur Stefánsson, Kjarrhólma 30, Kópavogi, lést miðvikudaginn 12. maí. Ragnhildur Magnúsdóttir myndlistar- maður, Barmahlíð 36, Reykjavík, lést þriðjudaginn 11. maí. Sveinn Sverrir Sveinsson, Reynigrund 71, Kópavogi, áður Stafholti, Vestmanna- eyjum, lést fimmtudaginn 13. maí. ■ JARÐARFARIR 14.00 Alma Oddgeirsdóttir, Svalbarða, Grenivík, verður jarðsungin frá Grenivíkurkirkju. 14.00 Anna Elínórsdóttir, Björk, Mývatnssveit, verður jarðsungin frá Reykjahlíðarkirkju. 14.00 Ingibjörg Sveinbjörnsdóttir, Hvanneyrarbraut 28b, Siglufirði, verður jarðsungin frá Siglufjarðarkirkju. 14.00 Sigfinnur Karlsson, Hlíðargötu 23, Neskaupstað, verður jarð- sunginn frá Norðfjarðarkirkju. 18-19 Tímamót 14.5.2004 19:35 Page 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.