Fréttablaðið - 15.05.2004, Blaðsíða 61
LAUGARDAGUR 15. maí 2004
Diana og Simon frá Slóveníu,sem duttu úr leik með lag sitt
Stay Forever í undankeppni Júró-
visjón, giftu sig daginn eftir
keppnina. Athöfnin fór fram á
litlu eyjunni Bosporus í Tyrklandi
og var þeim hin besta sárabót
eftir vonbrigðin frá því deginum
áður. Giftingin kemur kannski lít-
ið á óvart því þau Diana og Simon
kysstust innilega uppi á sviði er
þau fluttu Stay Forever. Þau
höfðu verið saman í fimm ár áður
en þau ákváðu að ganga í hjóna-
band. ■
■ JÚRÓSVISJÓN
INNILEGUR KOSS
Diana og Simon kyssast uppi á sviði í Ist-
anbúl. Þau eru nú hamingjusamlega gift.
AP
/M
YN
D
BIRGITTA
HAUKDAL
„Fulltrúar þjóða
eru heimsfrægir
í heila viku.
Þetta var mitt
ævintýri í fyrra
og er heimur
Jónsa í ár.“
■ JÚRÓSVISJÓN
Stolt af því að
vera Íslendingur
Birgitta Haukdal, sem söng Ís-land eftirminnilega inn til úr-
slita í Riga og forveri Jónsa
júróvisjónfara í ár, hefur fylgst
með framvindu mála símleiðis
undanfarna daga og segir teymið
í sjöunda himni. „Ég veit að Jónsi
á eftir að njóta keppninnar í botn.
Hann flytur þetta fallega lag af
mikilli tilfinningu og orkan geisl-
ar frá honum. Leyndarmálið ligg-
ur ekki í færasta flytjanda heims,
heldur tilfinningunni sjálfri.
Söngurinn þarf að ná til hjartans,
ekki bara til eyrans.“
Birgitta segir þann heiður að
flytja framlag íslensku þjóðar-
innar fyrir allri Evrópu einstaka
upplifun og stoltust hafi hún ver-
ið yfir þeirri staðreynd að vera
Íslendingur á síðasta ári. Stuðn-
ingur þjóðarinnar hafi skilað sér
út og skipt sköpum í keppni.
„Dagar mínir í Riga eru skemmti-
legasta vika sem ég hef upplifað.
Ég var prinsessa hið ytra og steig
beint inn í ævintýri. Þetta er afar
óraunverulegur heimur. Fulltrú-
ar eru heimsfrægir í heila viku.
Þetta var mitt ævintýri í fyrra og
er heimur Jónsa í ár.“ Aðspurð
hvaða glímu fulltrúar lands og
þjóðar hái hið ytra, segir Birgitta
æfingar taka upp mestan tíma.
„Það er enginn dans á rósum
að vera aðalmanneskjan. Þetta er
full vinna og keppandi má ekki
leyfa sér neitt kæruleysi. Djamm
er af dagskrá, þú ferð í rúmið
klukkan níu og fram úr klukkan
sex. Þetta er stíft prógramm, en
maður vill standa sig. Um það
snýst keppnin.“ Birgitta segir
keppendur sjálfa hafa lítinn tíma
til upplifunar. „Það gefst enginn
tími til að velta lokastundinni
fyrir sér. Hugurinn er bundinn
augnablikinu og næstu æfingu.
Við fórum gegnum hverja gen-
eralprufuna á fætur annarri í
fyrra og ég hugleiddi ekki keppn-
ina fyrr en á lokakvöldinu.“
Þjóðin titraði af spenningi
þegar Birgitta Haukdal steig á
svið fyrir hönd íslensku þjóðar-
innar í fyrra, fyrst keppenda á
svið og sjálfri stóð henni ekki á
sama. „Mér fannst sem ég bæri
ábyrgð á framhaldinu, því ég opn-
aði keppnina. Ef ég myndi klúðra
upphafsatriðinu, gætu áhorfend-
ur einfaldlega slökkt á sjónvarp-
inu. Ég hélt líka að enginn myndi
eftir mér þegar að kosningu
kæmi. En þarna var ég komin alla
leið til Riga og fór ekki í þetta
ferðalag til að vera stressuð. Svo
ég dró bara djúpt andann og
skemmti mér eins vel og ég gat.
Eftir á var ég svolítið hissa, því
ég fann aldrei fyrir ótta á sviði.“
En tárin komu þó á endanum og
skelfingin hvolfdist yfir Birgittu
þegar atriði hennar var lokið og
heimsóknin í græna herbergið
rann upp. „Þarna sat maður og
beið úrslita. Á þessu augnabliki
fór ég að efast um eigin frammi-
stöðu. Ég var hrædd um að hafa
ekki staðið mig og að Íslendingar
yrðu fyrir vonbrigðum. Þegar
stigin hófu svo að streyma inn,
sat ég einfaldlega í öðrum heimi.
Þakklætið yfir stigunum tólf kom
ekki yfir mig fyrr en keppni var
lokið. Slíkt var stressið.“ ■
Giftu sig eftir
keppnina
FRÉTTATILKYNNING
Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar mun leika fyrir
dansi í danshúsinu Ásgarði í Glæsibæ í kvöld.
Húsið opnar kl.22.00 og stendur dansleikur til 03.00
LÁTTU SJÁ ÞIG !
60-61 (48-49) Fólk-myndasaga 14.5.2004 20:06 Page 3