Fréttablaðið - 15.05.2004, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 15.05.2004, Blaðsíða 32
Nýr bíll ítölsku lögreglunnar er greinilega hannaður til þess eins að glæpa- menn komist ekki undan. Bíllinn, sem er af gerðinni Lamborghini Gallardo, er með tíu strokka V-vél sem er 500 hestöfl. Hann kemst upp í rúmlega 300 km hraða á klukkustund. Lögreglan fékk hann að gjöf frá verksmiðjunni og hyggst nota hann á Suður-Ítalíu. DAEWOO lyftarar Rafmagnslyftarar frá 1,3t - 3,0t Dísellyftarar frá 1,5t - 15t. Partur - Spyrnan - Lyftarar Eldshöfða 10, 110 Reykjavík, sími 585 2500 Næsta námskeið hefst 13. maí Það er orðin sjaldgæf sjón að sjá farangur heillar fjölskyldu ólaðan niður með snærum á topp- grindum bifreiða í Ártúns- drekkunni, en þannig var það nú reyndar fyrir nokkrum árum þegar stórfjölskyldan lagði af stað í sumarfrí. Nú er öldin önnur, en þrátt fyrir að bílar verði sífellt flottari hefur farangursrými heldur minnkað og margir þurfa að hlaða farangrinum sínum á toppinn. „Það er líka það að fólk tekur meira með sér í ferðalög nú en áður,“ segir Pétur Halldórsson, innkaupastjóri hjá Stillingu, en Stilling selur farangurshólf fyrir allar tegundir af bílum. „Það geta allir fengið sér svona hólf á bílinn sinn, það sem til þarf eru sérstakir burðarbogar. Flestir nýrri bílar koma þannig frá verksmiðjunni, en ef um eldri bíla er að ræða er hægt að kaupa burðarbogana,“ segir Pétur. „Sumir bílar eru einungis með langbogana, en þá er til sett með þverbogum og öllu sem til þarf í viðbót. „Það kostar um það bil 14.000 krónur. Ef bílinn hins vegar er ekki með langboga þur- fum við að vita hvaða árgerð bílinn er og kaupa sérstakar fest- ingar fyrir þann bíl. Við eigum slíkar festingar á lager fyrir flesta bíla, en þær eru á mismun- andi verði eftir bílategundum. Algengast er að þær kosti frá 13.000 og upp í 20.000. Hólfin sjálf eru til í ýmsum stærðum og gerðum, þau algengustu eru frá 310 lítrum upp í 600 lítra. Þau kosta frá 29.000 krónum og upp úr, eftir stærð og gerð. Pétur segir vinsældir hólfanna hafa aukist mjög á undanförnum árum. „Fólk er farið að átta sig á að það er betra að nota svona hólf en að yfirfylla bílinn og skyggja á útsýni. Hólfin eru líka mjög örugg og hættulaus og flest hön- nuð miðað við vindmótstöðu. Þá er ekkert mál að taka þau af, bara fjögur handtök,“ segir Pétur. edda@frettabladid.is „Tengdamömmubox“ fyrir farangurinn: Fyrir allar gerðir af bílum Pétur Halldórsson segir farangursboxin hafa komið í staðinn fyrir gömlu toppgrindurnar. Flestar nýskráðar bifreiðar í apríl voru af gerðinni Toyota. Topp tíu listinn var eftirfarandi: 1. Toyota 276 2. Ford 109 3. Volkswagen 80 4. Subaru 64 5. Skoda 58 6. Hyundai 50 7. Mitsubishi 49 8. Honda 46 9. Suzuki 40 10. Renault 32 [ NÝSKRÁNINGAR ] Toyota vinsælastur Farangurshólf á bílinn eru til í mörgum stærðum og gerðum og hægt að fá þær á allar tegundir bíla. Góð ráð JÓN HEIÐAR ÓLAFSSON BENDIR Á ÓDÝRA LAUSN ÞEGAR LJÓSIÐ BROTNAR Á BÍLNUM. Brotin ljós Það er frekar fúlt þegar aðalljósin á bílnum brotna af einhverjum ástæðum. Aðalljós geta verið mjög dýr. Flestir telja að ljósin séu ónýt ef glerið brotnar, en í mörgum bílum er hægt er að skipta um glerið með smá lagni. Fyrst þarf að fjarlægja smellurnar sem halda glerinu föstu við botninn. Hita síðan ljósið með hitablásara eða heitu vatni þar til kíttið er orðið mjúkt og auðvelt að ná ljósinu í sundur. Nota þarf sömu aðferð við að koma ljósinu saman aftur með nýja glerinu. Hita ljósið og setja svo smellurnar á aftur. Vandamálið við þetta er að það er ekki hægt að kaupa glerið eitt og sér í varahlutaverslunum, nema kannski í sumar gerðir af Benz-bílum. Oft er hægt að fá gler á partasölum eða á réttinga- verkstæðum, því oft skemmist botninn bara þegar bílar lenda í árekstrum. Vantar þig góð ráð? Sendu póst á bilar@frettabladid.is 32-33 (02-03) Allt bílar 14.5.2004 15:38 Page 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.