Fréttablaðið - 15.05.2004, Blaðsíða 69

Fréttablaðið - 15.05.2004, Blaðsíða 69
LAUGARDAGUR 15. maí 2004 57 Fimm Scorsese- myndir á DVD KVIKMYNDIR Fimm kvikmyndir eftir leikstjórann Martin Scorsese verða gefnar út í DVD-safnboxi í ágúst. Um er að ræða myndirnar Mean Streets, Goodfellas, After Hours, Alice Doesn’t Live Here Anymore og fyrsta mynd leik- stjórans, Who’s That Knocking at My Door, frá árinu 1969. Tveggja diska útgáfa af Goodfellas verður meðal annars gefin út. Þar verður að finna heimildarmynd sem kallast The Goodfellas Legacy þar sem þekkt- ir leikstjórar ræða um þau áhrif sem myndin hefur haft á feril þeirra. Fjögur ár tók að endur- vinna myndirnar fyrir DVD- útgáfu enda flestar þeirra komn- ar vel til ára sinna. ■ Ledger og Watts hætt saman KVIKMYNDIR Leikararparið Heath Ledger og Naomi Watts eru hætt saman. Parið hittist fyrst við tökur á myndinni Ned Kelly árið 2002 og tókust þá með þeim ástir. Í september á síðasta ári hættu þau saman en byrjuðu fljótlega aftur að hittast. Talið er að Ledger, sem er tíu árum yngri en hin 35 ára Watts, hafi átt í erfiðleikum með að binda sig. Ekki er langt síðan hann sást opinberlega með leikkonunni ungu Scarlett Johansson auk þess sem hann sást kyssa leikkonuna Winonu Ryder á dögunum. Bæði Ledger og Watts eru önnum kafin um þessar mundir og geta því sökkt sér í vinnu í stað þess að láta ástarsorgina ná tökum á sér. Watts leikur næst í framhaldsmyndinni The Ring 2 og Ledger fer með hlutverk í Brokeback Mountain sem Ang Lee mun leikstýra. ■ Rokkmamman Courtney Lovelýsti formlega yfir sakleysi sínu af ákærum um líkamsárás. Maður sem var gestur á tón- leikum hennar kærði hana fyrir að kasta míkrófónstandi í höfuð sitt og heimtar skaða- bætur. Love segist hafa rúmlega 500 vitni sem hafi séð hvað gerðist í raun- veruleikanum. Atvikið átti sér stað nokkrum klukkustundum eftir að Love kom fram í þætti David Letterman og flassaði m.a. brjóstum sínum í andlit þátta- stjórnandans. Whitney Houston stendur sigvíst svo vel í meðferð sinni að henni er nú treyst til þess að ferðast á milli staða án siðgæðis- varðar. Aðdáendur hennar höfðu áhyggjur af því að söngkonan tæki meðferð sína ekki nógu alvarlega þegar þær fregnir bárust út að hún hefði yfirgefið meðferðarstofnunina eftir aðeins fimm daga veru. Siðgæðisvörður hen- nar segir Houston hafa staðið sig sérstaklega vel. Hópur foreldra íBandaríkjunum hefur lýst yfir áhyggjum sínum á ætu líkamskremi sem söngkonan Jessica Simpson var að setja á markaðinn. Kremið er eitt af þret- tán sem stúlkan segir að séu hugsuð fyrir elskendur. Foreldar segja að stúlkan átti sig greinilega ekkert á því hversu ungir aðdáendur hennar séu. Þeir óttast að kremið verði til þess að stúlkan sé óbeint að hvetja börn til kynlífsathafna. Hollywood-parið AshtonKutcher og Demi Moore eru frekar smeyk eftir að tölvu vinar þeirra var stolið. Á tölvunni voru nefnilega myndir af þeim alls- berum í fremur vafasömum stellingum. Þau óttast að myndirnar komist fljótlega á netið og valdi svipuðu fjaðrafoki og kynlífsmyndbönd Pamelu Anderson eða Paris Hilton. Engin útskýring hefur borist af því hvað í ósköpunum myndirnar voru að gera á tölvu vinar þeirra. Brad Pitt hefur aflýst fjölda við-tala sem áttu að kynna mynd hans Troy vegna þess hversu mikið blaðamenn voru byrjaðir að spyrja um hjónaband hans og leikkonun- nar Jennifer Aniston. Hann segist ekki vilja tala um einkalíf sitt of mikið í fjölmiðlum og síðustu vikur virðist hjónaband hans frekar komast í fyrirsag- nirnar en myndin sem hann er að kynna. SCORSESE Goodfellas eftir Martin Scorsese hefur haft gífurleg áhrif á aðra kvikmyndagerðar- menn. NAOMI WATTS Er hætt með Heath Ledger eftir tveggja ára ástarsamband. ■ FRÉTTIR AF FÓLKI 68-69 (56-57) TV laug 14.5.2004 19:45 Page 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.