Fréttablaðið - 15.05.2004, Blaðsíða 59
47LAUGARDAGUR 15. maí 2004
Tekið verður við umsóknum nýnema til náms í
Háskóla Íslands háskólaárið 2004-2005 til 5. júní
2004. Umsóknareyðublöð er hægt að prenta út
af vefnum eða fá þau afhent hjá Nemendaskrá
í Aðalbyggingu. Frá 24. maí gefst kostur á
rafrænni umsókn á vefsíðu Háskólans, www.hi.is.
Umsóknum skal fylgja staðfest afrit af stúdents-
prófsskírteini. Senda má umsókn og fylgigögn
í pósti til Nemendaskrár Háskólans. Umsækjendur
sem sækja um á vefnum senda fylgigögn í pósti.
Þeir sem ljúka stúdentsprófi í vor sæki um fyrir
5. júní og skili fylgigögnum jafnskjótt og þau
liggja fyrir.
Upplýsingar um nám er að finna í Kennsluskrá
Háskóla Íslands 2004-2005 á www.hi.is og í prent-
aðri útgáfu sem liggur frammi í Nemendaskrá.
Umsóknarfrestur rennur út 5. júní n.k.
Afgreiðsla umsókna og staðfesting
Stefnt er að því að afgreiðslu umsókna verði
lokið fyrir 30. júní. Öllum umsóknum verður
svarað. Þeim sem býðst skólavist fá sendan
greiðsluseðil skrásetningargjalds kr. 32.500.-
Skrásetning til náms við Háskóla Íslands tekur
gildi við greiðslu skrásetningargjaldsins innan
þeirra tímamarka sem fram koma á greiðsluseðli.
Skrásetningargjaldið er ekki endurkræft.
Inntökuskilyrði
Stúdentar sem hefja nám í Háskóla Íslands skulu
hafa lokið stúdentsprófi, eða öðru sambærilegu
prófi frá erlendum skóla. Almennt er áskilið að
stúdentspróf sé af bóknámsbraut, en deildir geta
með samþykki háskólaráðs ákveðið að falla frá
því skilyrði eða bundið aðgang að námsgreinum
frekari skilyrðum um undirbúning. Sjá nánar á
www.hi.is.
Fjöldatakmörkun
Í læknisfræði og sjúkraþjálfun verður haldið
inntökupróf 21.-22. júní 2004, sjá nánar sérstaka
auglýsingu í dagblöðum og upplýsingar á heima-
síðu læknadeildar www.hi.is/nam/laek. Í
hjúkrunarfræðideild og tannlæknadeild eru
samkeppnispróf við lok haustmisseris í desember.
Fyrirvari er gerður um mögulega
fjöldatakmörkun í fleiri greinum.
Háskóli Íslands – Nemendaskrá
Aðalbyggingu við Suðurgötu - 101 Reykjavík
Sími 525 4309 – nemskra@hi.is – www.hi.is
Opið virka daga kl. 10-15.
UMSÓKNIR NÝNEMA
Í HÁSKÓLA ÍSLANDS 2004-2005
Umspil í 1. deild:
Palace vann
FÓTBOLTI Crystal Palace vann
Sunderland 3-2 á heimavelli í
fyrri viðureign þeirra í keppni
fjögurra félaga um sæti í úr-
valsdeildinni á næsta ári.
Marcus Stewart kom Sunder-
land yfir með marki úr víta-
spyrnu á 50. mínútu en Neil
Shipperley jafnaði tveimur
mínútum síðar. Danny Butter-
field náði forystunni fyrir
Palace á 63. mínútu þegar hann
skoraði með skoti af 30 metra
færi. Sex mínútum fyrir leiks-
lok jafnaði Kevin Kyle fyrir
Sunderland en Andrew Johnson
skoraði sigurmark Palace
þremur mínútum síðar.
Sunderland og Crystal
Palace mætast að nýju í Sund-
erland á mánudag en sigur-
vegarinn leikur til úrslita við
Ipswich eða West Ham laugar-
daginn 29. maí. ■
HELENA ÓLAFSDÓTTIR
„Það var margt jákvætt í leik liðsins og það munum við nýta okkur í framhaldinu.“
Jafntefli hefði
verið sanngjarnt
Englendingar sigruðu Íslendinga 1-0
í vináttuleik í gærkvöldi.
FÓTBOLTI Íslenska kvennalandsliðið
tapaði 1-0 fyrir Englendingum í
vináttuleik í gærkvöldi. Fara
Williams, leikmaður Charlton
Athletic, skoraði eina mark leiks-
ins fimm mínútum fyrir leikhlé.
„Fyrri hálfleikur fór svolítið í
að átta sig á hlutunum og mér
fannst við ekki nógu duglegar við
að halda boltanum innan liðsins,“
sagði Helena Ólafsdóttir lands-
liðsþjálfari. „Við vorum að flýta
okkur svolítið mikið í aðgerðum. Í
seinni hálfleik fannst mér allt
annar bragur á liðinu. Við spiluð-
um boltanum betur og þorðum að
halda honum meira. Það var
svekkjandi að tapa þessu 1-0 en
það var margt jákvætt í leik liðs-
ins og það munum við nýta okkur
í framhaldinu.“
„Við fengum svona fimm, sex
mjög góð færi, kannski svipað
mörg og þær,“ sagði Helena.
„Þess vegna er ég svekkt með
þetta tap því jafntefli hefði verið
sanngjarnt í þessum leik fannst
okkur.“
Englendingar gerðu sex breyt-
ingar á liði sínu eftir leikhléið.
Var einhver styrkleikamunur á
liðunum sem léku fyrir og eftir
hlé? „Ég átta mig ekki alveg á
því,“ sagði Helena. „Það hefur
eðlilega einhver áhrif þegar sex
mönnum er skipt inn á en ég held
að þessi hópur þeirra sé það breið-
ur að þær eigi að þola það án þess
að liðið verði mikið lakara.“
„Þegar við áttuðum okkur á
hraðanum þá fannst mér við vaxa
inn í leikinn. Þessi hraði og tími
sem við fáum í leik eins og þess-
um er ekki nándar nærri sá sami
og heima. Það tekur sinn tíma að
átta sig á því og svo má ekki
gleyma því að við erum að hefja
okkar tímabil en þær ekki.“
„Við erum að leggja upp marga
nýja hluti sóknarlega og það hafa
orðið breytingar á liðinu og mér
fannst breytingar að mörgu leyti
ganga upp fyrir utan það að klára
ekki færin. Ég sá leikinn sem liðin
spiluðu í Birmingham fyrir tveim-
ur árum og hann var ekki eins op-
inn og þessi. En það hafa orðið
breytingar á báðum liðum frá
þeim tíma. Mér fannst liðið í
heildina mjög duglegt og það
gafst aldrei upp.“
Lið Íslands í gær: Þóra B.
Helgadóttir - Íris Andrésdóttir
(Málfríður Sigurðardóttir 46.),
Björg Ásta Þórðardóttir, Erla
Hendriksdóttir (fyrirliði), Guðrún
Sóley Gunnarsdóttir - Edda Garð-
arsdóttir (Dóra Stefánsdóttir 75.),
Erna B. Sigurðardóttir (Rakel
Logadóttir 57.), Hólmfríður
Magnúsdóttir (Dóra María Lárus-
dóttir 80.), Margrét Lára Viðars-
dóttir, Laufey Ólafsdóttir - Olga
Færseth.
Leikurinn fór fram á London
Road vellinum í Peterborough
að viðstöddum 2.762 áhorfend-
um. ■
Einn ótrúlegasti endir allra tíma þegar Lakers sigraði Spurs í fimmta leiknum:
„Í þessi sekúndubrot sem ég flýt“
KÖRFUBOLTI Los Angeles Lakers unnu
hreint út sagt ótrúlegan, 73-74, sigur
á San Antonio Spurs þegar liðin
mættust fimmta sinni í undan-
úrslitum Vesturdeildar NBA-körfu-
boltans í Texas. Þar með er Lakers
komið yfir í einvíginu og getur
tryggt sér sæti í lokaúrslitunum með
sigri í næsta leik sem fram fer í Los
Angeles. Þrátt fyrir að missa niður 16
stiga forskot sem liðið hafði í þriðja
leikhluta og það að skora aðeins 12
stig í lokaleikhlutanum tókst Lakers
samt sem áður að landa sigri og það
segir sitthvað um hvernig þessi
leikur var.
Tim Duncan skoraði makalausa
körfu úr fáránlega erfiðu færi með
Shaquille O’Neal í andlitinu, þegar
aðeins 0.4 sekúndur voru eftir og allt
varð gjörsamlega vitlaust í höllinni
og sigur í sjónmáli hjá heima-
mönnum. Raunin varð önnur. Gary
Payton tók innkastið fyrir Lakers og
leikmenn San Antonio gerðu allt sem
þeir gátu til að koma í veg fyrir að
Kobe Bryant fengi boltann og það
tókst. Hins vegar fékk Derek Fisher,
af öllum, boltann og skoraði sigur-
körfuna yfir Manu Ginobili með öðru
ótrúlegu skoti á þessum blessuðu
sekúndubrotum og þar með lauk
einum magnaðasta leik allra tíma.
Kobe Bryant var stigahæstur á
vellinum og skoraði 22 stig en næstur
honum hjá Lakers kom Devean
George með 16. Tröllkarlinn
Shaquille O’Neal skoraði aðeins 11
stig sem er í það allra minnsta hjá
honum en hann bætti það upp með 11
fráköstum og þremur vörðum sko-
tum. Karl Malone skoraði sjö stig og
reif niður 12 fráköst og kannski hann
nái loksins að draga hring á fingur -
glóandi gull.
Tim Duncan var atkvæðamestur
heimamanna með 21 stig og 21
frákast auk þess að verja fjögur skot.
Tony Parker skoraði 15 stig og gaf
sex stoðsendingar og Devin Brown
setti niður 11 stig. Núna er San
Antonio liðið komið upp að þessum
fræga vegg og þá kemur í ljós úr
hverju leikmenn liðsins eru gerðir. ■
DEREK FISHER
Fagnar hér sigurkörfu sinni ásamt Byron Russell, í þessum ótrúlega leik gegn San Antonio
Spurs. Með sigri í næsta leik er Lakers komið í lokaúrslitin.
58-59 (46-47) Sport 14.5.2004 21:56 Page 3