Fréttablaðið - 15.05.2004, Side 44
■ MAÐUR AÐ MÍNU SKAPI
32 15. maí 2004 LAUGARDAGUR
Fyrir sumum er sumarið ekkiannað en knattspyrna. Fríið
er skipulagt í kringum niður-
röðun leikja, garðverk og golf
eru einungis til að drepa tímann
milli stórátaka og í spjalli við
vini og kunningja eru mark-
varslan, föstu leikatriðin, dóm-
gæslan og möguleikarnir í næsta
leik helsta umræðuefnið.
Áhugi á knattspyrnu hefur
aukist með árunum og helgast
það jöfnum höndum af vaxandi
áhuga í heiminum öllum og
bættri umgjörð um íslensku lið-
in og leikina. Heilu fjölskyldurn-
ar hópast á völlinn, börnin máluð
litum liða sinna í andliti og full-
orðna fólkið með húfur og trefla
í stíl. Þeir hörðustu láta sér ekki
nægja að sækja viðureignir
sinna liða heldur reyna að fara á
sem flesta leiki enda fallegar
fyrirgjafir og vel útfærðar tækl-
ingar með því fegursta sem þeir
sjá. Allur gangur er á hvort við-
komandi hafi getað eitthvað í
fótbolta á sínum yngri árum,
sumir voru efnilegir og urðu
jafnvel einhvern tíma góðir á
meðan aðrir voru alltaf valdir
síðastir í liðið í skólavellinum.
Svo eru það þeir sem næstum
aldrei hafa sparkað í tuðru en
eru engu að síður að springa úr
áhuga á knattspyrnu. Hinir
sömu vita hverjir höfnuðu í
þriðja sæti efstu deildar árið
1978, muna eftir sigurmarkinu í
leik Víkings og Keflavíkur árið
1983 og kunna innáskiptingar í
liði sínu á síðasta tímabili utan
bókar.
Bannað að fara úr treyjunni
Landsbankinn er, líkt og í
fyrra, helsti stuðningsaðili ís-
lensku knattspyrnunnar og
virðist leggja talsvert upp úr
samstarfinu við KSÍ og liðin í
efstu deild. Bankinn borgar dá-
góð laun fyrir sigur í deildinni
eða eina og hálfa milljón króna,
sem raunar er aðeins milljón
króna hærri fjárhæð en liðin fá
sem falla úr deildinni. Þá verð-
ur félögum greitt sérstaklega
fyrir líflega og skemmtilega
framkomu stuðningsmanna en
þeim er sérstaklega upp á lagt
að vera samstilltir og háværir,
vel merktir félagi sínu og sýna
af sér drengilegt atferli.
Við dómgæslu inni á vellin-
um sjálfum verður líka horft til
drengskapar og ber dómurum
að gæta þess sérstaklega að
leikmenn missi ekki fótanna af
leikaraskap einum saman til að
klekkja á andstæðingnum.
Óheiðarlegur leikur og
óíþróttamannsleg framkoma
verða ekki með nokkru móti lið-
in.
Einnig hafa línur verið lagð-
ar fyrir leikmenn um hvernig
þeim ber að fagna marki, eða
öllu heldur hvernig þeim ber
ekki að fagna marki. Þannig
skulu menn áminntir ef þeir
rífa sig úr keppnistreyjunni og
eru þær reglur settar fyrir til-
stilli Alþjóða knattspyrnusam-
bandsins. Ekki má heldur lyfta
treyjunni þannig að skíni í slag-
orð eða auglýsingar á nærbol
né heldur fagna með ögrandi
hætti eða með því að egna
mótherja og hæðast að þeim.
Hverjir eru bestir?
Að vanda leika tíu félög í
Landsbankadeildinni og eins og
gengur setja þau markið mishátt.
Nokkur stefna á Íslandsmeistara-
titilinn og líta á annað sem tap,
öðrum nægir að tryggja sig í sessi
í deildinni eða jafnvel að halda
sæti sínu. Nokkrar spár um gengi
liðanna í sumar hafa birst síðustu
daga og séu þær dregnar saman
má sjá að flestir gera ráð fyrir að
fjögur lið berjist á toppnum, þ.e.
KR, Fylkir, FH og ÍA. Flestir
búast við sigri Vesturbæjarliðsins
en skiptar skoðanir eru um röð
hinna þriggja liðanna. Um miðja
deild verða KA, Keflavík og Fram
en á botninum berjast Grindavík,
Víkingur og Vestmannaeyjar.
Vart þarf að taka fram að um
spár er að ræða sem sjálfsagt
byggja á mannavali, árangri í vor-
leikjum og hefð en verða oftar en
ekki að engu þegar upp er staðið.
Fyrstu leikirnir
Það verður ekkert elsku
mamma á KR-vellinum í dag þar
sem heimamenn taka á móti FH-
ingum. Þetta eru liðin sem höfn-
uðu í fyrsta og öðru sæti deildar-
innar á síðasta tímabili og elduðu
Dagbjartur Einarsson út-gerðarmaður hefur fylgt
sínum mönnum í Grindavík í
gegnum þykkt og þunnt. Hann
segir sumarið leggjast ágæt-
lega í sig. „Ja, ég er allavega að
reyna að vera bjartsýnn,“ segir
Dagbjartur. „Ég á svo sem ekki
von á neinum titli eða slíku en
reikna með að við verðum fyrir
ofan miðja deild. Það er best að
segja ekkert meira um það. Við
ætlum ekkert að fara að falla.“
Sumir vilja meina að það
verði hlutskipti Grindvíkinga
að falla í fyrstu deildina en
Dagbjartur hlustar ekki á slíkt.
„Það eru spekingarnir sem spá
því. En þeim hefur nú stundum
orðið hált á sínum spádómum.“
Grindvíkingar voru hárs-
breidd frá falli í fyrra og þegar
aðeins nokkrar mínútur lifðu af
lokaleikjum Íslandsmótsins
stefndi allt í að þeir kveddu úr-
valsdeildina. „Guð minn almátt-
ugur,“ segir Dagbjartur þegar
hann rifjar þetta upp. „Við vor-
um eiginlega dottnir. Ég var
eiginlega búinn að sætta mig
við fall. Ég leit upp til Guðs og
hugsaði að ef hann vildi hafa
þetta svona þá væri ekkert við
því að segja.“
Dagbjartur tekur jafnan
virkan þátt í leiknum og hvetur
sína menn áfram. „Mér líður
alltaf vel á vellinum og tek ekki
tap með mér heim. Svoleiðis
lagað heldur ekki fyrir mér
vöku eða slíkt. Ég reyni hins-
vegar að hvetja strákana og
segi gjarnan: „Það liggur í loft-
inu“. Maður verður að hafa
gaman af þessu.“
Dagbjartur neitar því að
vera hjátrúarfullur þegar
knattspyrna er annarsvegar en
hann hefur sinn hátt á undir-
búningi fyrir leiki. „Ég legg
ákveðinn kapal og spyr spilin
hvernig þetta fari. Það er nú
allur gangur á hvort þetta reyn-
ist rétt.“ ■
Stuðningsmaðurinn
DAGBJARTUR EINARSSON GRINDVÍKINGUR
„Mér líður alltaf vel á vellinum og tek ekki tap með mér heim.“
Líður alltaf vel
á vellinum
Það er komið að því, loksins, loksins. Íslandsmótið í
knattspyrnu hefst í dag. Undirbúningstímabilið er að
baki, úrslit vorleikjanna skipta ekki máli og þaðan af
síður árangur fyrri ára. Í næstu átján leikjum hvers
liðs skilur á milli feigs og ófeigs. Hjá hörðustu knatt-
spyrnuáhugamönnum er fótbolti ekki hluti af lífinu.
Lífið er
fótbolti
Við vorum eiginlega
dottnir. Ég var eig-
inlega búinn að sætta mig
við fall. Ég leit upp til Guðs
og hugsaði að ef hann vildi
hafa þetta svona þá væri
ekkert við því að segja.
,,
WILL OLDHAM
Hann er maður að skapi
Sverris Bergmann.
Með flott
skegg og
skalla
Maður að mínu skapi er tónlis-tarmaðurinn Will Oldham sem
er einnig þekktur undir nafninu
Bonnie Prince Billy,“ segir Sverrir
Bergmann, söngvari hljóm-
sveitarinnar Daysleeper og sjón-
varpsmaður
á Popptívi.
„ O l d h a m
semur góða
og flotta
tónlist. Ég
fíla það sem
hann er að
gera sem
t ó n l i s t a r -
maður. Svo
er hann líka
með flott
skegg og
skalla.“
Bonnie Prince Billy hefur í tví-
gang haldið tónleika hér á landi en
Sverrir missti af þeim báðum. „Ég
vissi ekki hver hann var þá og sé
heldur betur eftir því í dag. Vinir
mínir fóru á þessa tónleika og sögðu
að þeir hefðu verið geðveikir,“ segir
Sverrir, sem ætlar að reyna að sjá
Bonnie Prince Billy á tónleikum
seinna. ■
Ormurinn
Pétur
Nafnið mitt kemur úr móðurætt-inni. Afi minn hét Hans Pétur
en nafnið er samt ekki mjög þekkt
í fjölskyldunni minni,“ segir Pétur
Úlfar Ormslev, fyrrverandi knatt-
s p y r n u -
hetja með
Fram. „Ég
veit ekki
h v a ð a n
Ú l f a r s -
n a f n i ð
kemur. Ég
held að
það sé
bara út í
loftið og ég
nota það
ekki mikið
– bara ein-
s t a k a
s i n n u m .
Ormslev-nafnið er hins vegar
danskt og kemur úr föðurættinni.“
Samkvæmt Hagstofu Íslands
eru 1.409 sem bera nafnið Pétur
sem fyrsta eiginnafn en 600 sem
annað. Nafnið er fengið úr biblí-
unni, komið af gríska nafninu
„Petros“ sem merkir klettur.
Pétur hefur verið kallaður
ýmsum nöfnum. Systkini hans
kalla hann yfirleitt Pésa en vinir
hans Orminn. „Ormurinn hefur
verið helsta gælunafn mitt síðustu
ár,“ segir Pétur.
Honum var talsvert strítt á
nafninu þegar hann var yngri. „Þá
var það allt sem viðkom því að
slefa ormum,“ segir Pétur, sem tók
stríðnina talsvert nærri sér þegar
hann var yngri. „Stríðnin er alltaf
erfiðust þegar það eru krakkar í
spilinu en í seinni tíð hefur þetta
verið meira grín og ég tek því ekki
mjög alvarlega,“ segir Pétur Úlfar
Ormslev að lokum. ■
PÉTUR ÚLFAR ORMSLEV
Pétur var lykilmaður í liði
Fram fyrir nokkrum árum.
Hann er yfirleitt kallaður
Ormurinn af vinum og
kunningjum.
SVERRIR BERGMANN
Missti af báðum tón-
leikum Will Oldham
hér á landi.
■ NAFNIÐ MITT
44-45 (32-33) fótbolti 14.5.2004 15:39 Page 2