Fréttablaðið - 15.05.2004, Qupperneq 54
Breska ljóðskáldið StephenSpender lést árið 1995, 86 ára
gamall. Hann var 24 ára þegar
fyrsta ljóðabók hans kom út og
fékk frábærar viðtökur. Í þau
rúmu 60 ár sem Spender átti ólif-
að tókst honum aldrei að fylgja
þeirri bók eftir á sannfærandi
hátt. Hann sagði sjálfur að öfund-
in sem velgengni hans vakti hefði
eitrað viðhorf gagnrýnenda
gagnvart sér og áleit sig vera
stórskáld sem hefði ekki notið
sannmælis. Mjög skiptar skoðan-
ir hafa verið um skáldskap hans.
Spender sagði eitt sinn í fyrir-
lestri: „Öll skáld tala sama tungu-
mál“. „Andskotans lygi,“ sagði
Dylan Thomas, „hver vitnar svo
sem í Spender?“
Nú hefur ævisagnaritari
Spenders, og fyrrum samkennari
hans við Lundúnaháskóla, John
Sutherland, snúið vörn í sókn með
ævisögu skáldsins, sem hrifnustu
gagnrýnendur segja meistara-
lega. Sutherland efast ekki um
hæfileika Spenders á ljóðasviðinu
og bók hans þykir líkleg til að
endurreisa orðspor skáldsins.
Friðarsinni, sósíalisti og
snillingur
Spender var sonur Harold
Spender, sem var blaðamaður og
stjórnmálamaður. Þegar Harold
bauð sig fram til þings fékk hann
Stephen, sem þá var 14 ára, og
yngri son sinn til aðstoðar. Þetta
starf átti sinn þátt í að efla athygl-
issýki Stephen Spender, en hún
var alla tíð mjög áberandi þáttur í
persónuleika hans. Í sjálfsævi-
sögu sinni viðurkenndi hann að
hann fylltist stundum hryllingi
við að lesa blöð þar sem nafn hans
var ekki nefnt.
Spender var einstaklega léleg-
ur námsmaður. Hann komst þó í
Oxford og stimplaði sig inn með
því að tilkynna að hann væri frið-
arsinni, sósíalisti og síðast en
ekki síst snillingur. Hann hengdi
eftirlíkingar af myndum eftir
Gauguin, van Gogh og Klee á her-
bergisveginn og á sólríkum dög-
um fór hann með stóran púða út í
skólagarðinn, hlammaði sér þar
niður og las ljóð. T.S. Eliot gaf út
fyrstu ljóðabók hans, sem kom út
árið 1933. Spender sagði Eliot að
hann vildi verða skáld. Eliot
svaraði: „Ég get skilið að þú vilj-
ir yrkja ljóð en ég skil ekki alveg
hvað þú átt við með því að vilja
verða skáld.“
Hæfileiki til að vera ham-
ingjusamur
Í Oxford kynntist hann skáld-
unum W.H. Auden og Christopher
Isherwood, sem hann bar sam-
stundis mikla lotningu fyrir. Þeir
voru samkynhneigðir en Spender
hneigðist jafnt til karla og
kvenna. Hann kom samkyn-
hneigðum vinum sínum verulega
á óvart með því að finna sér konu
sem hann kvæntist. Hún yfirgaf
hann vegna annars manns. Seinni
kona hans var píanóleikari,
Natasha Litvin, sem var tíu árum
yngri en hann. Þau eignuðust sam-
an tvö börn og voru saman allt þar
til hann lést. Hún lýsir honum sem
sannleiksleitandi manni, mjög op-
inskáum og segir að hann hafi
búið yfir einstökum hæfileika til
að vera hamingjusamur.
Hann gat oft verið barnalega
trúgjarn. Hann gekk í breska
Kommúnistaflokkinn árið 1937 og
hafði þá lýst á prenti efa sínum
um hin frægu Moskvuréttarhöld.
Ritari Kommúnistaflokksins full-
vissaði hann um að þar hefði allt
farið vel fram og niðurstaðan ver-
ið réttlát. Spender var fljótur að
skrifa grein þar sem hann leið-
rétti fyrri skoðun sína.
Sönn væntumþykja
Hann gaf út endurminningar
sínar árið 1951, World Within
World þar sem hann skrifaði op-
inskátt um samkynhneigð sína á
yngri árum. Samkynhneigð var
refsiverð á Bretlandi á þeim
tíma og hann sýndi mikið hug-
rekki með játningu sinni. Hann
átti alla ævi í ástríðufullum
samskiptum við unga karlmenn.
„Ég skildi þetta,“ sagði ekkja
hans í nýlegu viðtali. „Hjóna-
band snýst ekki um eignarhald,
heldur um væntumþykju. Ég
var aldrei í minnsta vafa um
væntumþykju hans í minn garð
– eða mína í garð hans. Þannig
að þetta snerti mig ekki eins og
manneskju sem hugsar: „Hann
er eiginmaður minn, hvað er
hann að gera með þessari mann-
eskju?“ Það gerðist ekki. Ég
þekki fólk sem lætur eins og það
hafi keypt eiginmann sinn í Sel-
fridge.“
Eftir seinna stríð gekk
Spender í þjónustu UNESCO,
menningardeildar Sameinuðu
þjóðanna, og starfaði í 20 ár
sem eins konar sendiherra sam-
takanna og þeyttist á milli
landa. Hann var meðritstjóri
tímaritsins Encounter en sagði
af sér árið 1967 eftir að upp
komst að bandaríska leyniþjón-
ustan hafði í áraraðir lagt fé til
tímaritsins.
Spender birti lítið af ljóðum
síðustu árin sem hann lifði og
kvartaði margoft undan því að
fá litla athygli. Árið 1985 gaf
hann út dagbækur sínar og við-
brögðin voru hrifningarfull.
Þegar ævisagnahöfundur hafði
samband við hann og vildi skrifa
ævisögu hans hafnaði Spender
boðinu. Hann sagði af miskunn-
arlausri sjálfsgagnrýni sem alla
jafna einkenndi hann ekki: „Ég
hef ekki skrifað bækurnar sem
ég hefði átt að skrifa og ég hef
skrifað margar bækur sem ég
hefði ekki átt að skrifa.“
kolla@frettabladid.is
Þann 23. júní næstkomandi hefðiMatthías Viðar Sæmundsson,
bókmenntafræðingur og dósent við
Háskóla Íslands, orðið fimmtugur.
Í desember 2003 hófu þeir Eiríkur
Guðmundsson og Þröstur Helgason
að vinna að útgáfu að bók til heið-
urs Matthíasi fimmtugum. Matthí-
as Viðar lést þann 3. febrúar síðast-
liðinn eftir hetjulega baráttu við
krabbamein. Bókin, Engill tímans,
mun koma út þann 23. júní til minn-
ingar um hann. Í hana skrifa á
fjórða tug þekktra íslenskra fræði-
manna og listamanna greinar, smá-
sögur eða ljóð og varpa ljósi á þá
tíma sem við nú lifum.
JPV forlag gefur bókina út og
býður mönnum að rita nafn sitt á
lista þeirra sem vilja minnast
Matthíasar Viðars Sæmundssonar
sem birtur verður fremst í bókinni
ásamt því að eignast bókina á sér-
stöku kynningarverði: 3.980 kr.
Hægt er að senda tölvupóst á
johann@jpv.is með nafni, heimilis-
fangi og kennitölu og bókin verður
send viðkomandi við útkomu.
Einnig er hægt að hringja í Sif
Jóhannsdóttur í síma 575 5600. ■
42 15. maí 2004 LAUGARDAGUR
BÓK VIKUNNAR
Einhvers konar ég eftir Þráin Bertelsson.
Þessi manneskjulega og vel skrif-
aða bók varð metsölubók fyrir
síðustu jól og hlaut mikið lof
gagnrýnenda. Starfsfólk bóka-
verslana valdi hana bestu ævi-
sögu ársins 2003. Bókin er nú
komin út í kilju. Þráinn Bertels-
son rekur hér minningar sínar og
fjallar meðal annars um fátækt,
einelti og þunglyndi. Vissulega
dapurleg umfjöllunarefni en bók-
in er samt full af hlýju og húmor.
■ BÆKUR
Metsölulisti
Máls og menningar,
Eymundssonar og
Pennans
ALLAR BÆKUR
1. Da Vinci lykillinn
Dan Brown
2. Stóra garðabókin
Forlagið
3. Skyndibitar fyrir
sálina Barbara
Berger
4. Náðhúsið 2004
Gústav S. Berg
5. Ótuktin Anna Pálína Árnadóttir
6. Afi og amma Inger Anna Aikman /
Margrét Blöndal
7. Uppeldisbókin Susan Mortweet /
Edward E. Christophersen
8. Ég er ekki hræddur Nicolo Amman-
iti
9. Svo fögur bein Alice Sebold
10. Kortabók 1:300.000 Mál og menn-
ing
SKÁLDVERK -
INNBUNDNAR
BÆKUR
1. Stormur Einar
Kárason
2. Svartir englar
Ævar Örn Jósepsson
3. Alkemistinn
Paulo Coelho
4. Silmerillinn J.R.R.
Tolkien
5. Steinn Steinarr - Ljóðasafn Steinn
Steinarr
6. Þjóðskáldin - stórbók Ýmsir
höfundar
7. Kantaraborgarsögur Geoffrey
Chaucer
8. Herra Alheimur Hallgrímur Helgason
9. Refskák Arturo Pérez-Reverte
10. Perlur úr ljóðum íslenskra kvenna
Ýmsir höfundar
SKÁLDVERK -
KILJUR
1. Da Vinci lykillinn
Dan Brown
2. Ég er ekki hrædd-
ur Nicolo Ammaniti
3. Svo fögur bein
Alice Sebold
4. Öxin og jörðin
Ólafur Gunnarsson
5. 39 þrep til
glötunar Eiríkur Guðmundsson
6. Mýrin Arnaldur Indriðason
7. Vetrardrottningin Boris Akúnin
8. Villibirta Liza Marklund
9. Mynd af ósýnilegum manni Paul
Auster
10. Röddin Arnaldur Indriðason
Listinn er gerður út frá sölu
dagana 28.04.-04.05. 2004
í Bókabúðum Máls og menningar,
Eymundsson og Pennanum.
Rit til minningar um Matthías Viðar Sæmundsson:
Engill tímans
Stephen Spender gaf út sína fyrstu ljóðabók 24 ára gamall, en náði aldrei að fylgja frábærum viðtökum eftir á
60 ára ferli. Nú er ný ævisaga komin út um skáldið, sem sögð er meistaraleg.
Stephen Spender
fær uppreisn æru
STEPHEN SPENDER
Í sjálfsævisögu sinni viðurkenndi hann að hann fylltist stundum hryllingi við að lesa blöð
þar sem nafn hans var ekki nefnt.
Spender var einstak-
lega lélegur náms-
maður. Hann komst þó í Ox-
ford og stimplaði sig inn
með því að tilkynna að hann
væri friðarsinni, sósíalisti og
síðast en ekki síst snillingur.
,,
MATTHÍAS VIÐAR SÆMUNDSSON
Í júnímánuði kemur út bók til
minningar um hann.
54-55 (42-43) bækur 14.5.2004 19:37 Page 2