Fréttablaðið - 15.05.2004, Síða 60

Fréttablaðið - 15.05.2004, Síða 60
60 15. maí 2004 LAUGARDAGUR Frá Læknadeild Háskóla Íslands Inntökupróf í læknadeild Háskóla Íslands fyrir nám í læknisfræði og sjúkraþjálfun verður haldið í Reykjavík dagana 21. og 22. júní 2004. Staður og stund verða tilkynnt próftakendum eftir að skráningu er lokið. Þátttakendur þurfa að skrá sig til inntökuprófsins fyrir 5. júní 2004. Skráning er undir umsjón Nemendaskrá Háskóla Íslands og er skráningareyðublað að finna á netinu www.hi.is/stjorn/ nemskra/umsoknareydublod.html og á skrifstofu Nemendaskrár. Inntökuprófið er eitt próf sem tekur tvo daga, með þremur tveggja tíma próflotum hvorn daginn, eða 12 klst. alls. Niðurstaða prófsins birtist í einni einkunn sem verður reiknuð með tveimur aukastöfum. Reiknað er með að niðurstaða liggi fyrir ekki síðar en um miðjan júlí. Árið 2004 fá 48 nemendur í læknisfræði og 20 í sjúkraþjálfun rétt til náms í læknadeild Háskóla Íslands og skulu þeir hafa skráð sig hjá Nemendaskrá fyrir 20. ágúst. Þeir sem ekki öðlast rétt til náms í læknadeild, eiga þess kost að skrásetja sig, innan sömu tímamarka, í aðrar deildir gegn greiðslu skrásetningargjalds skv. reglum Háskóla Íslands. Nánari upplýsingar um inntökuprófið og dæmi um prófspurningar má finna á heimasíðu læknadeildar Háskóla Íslands www.hi.is/nam/laek. INNTÖKUPRÓF Í LÆKNADEILD HÍ SJÚKRAÞJÁLFUNARSKOR OG LÆKNISFRÆÐISKOR                                          Eftir Patrick McDonnell ■ PONDUS ■ ROCKY ■ KJÖLTURAKKAR ■ BARNALÁN ■ PÚ OG PA Eftir SÖB Eftir Kirkman/Scott Eftir Martin Kellerman Eftir Frode Överli Það var mikið um dýrðir í Kaupmannahöfn í gær þegar Mary Donaldsson frá Ástralíu gekk að eiga Friðrik krónprins Dana. Athöfnin var sýnd í beinni útsendingu í Sjónvarpinu og eins og gefur að skilja var mikill spen- ningur í loftinu. Ástarævintýri Friðriks og Mary hófst á Ólympíuleikunum í Sydney í Ástralíu fyrir fjórum árum. Þá var Mary ósköp saklaus sveitastúlka en Friðrik að sjálfsögðu konungborinn piparsveinn sem allra augu beindust að. Nánast um leið og þau voru farin að gefa hvort öðru auga voru danskir fjölmiðlar komnir með nefið ofan í málið og vildu vita hver þessi kona væri. Skiljanlegt, enda hugsanlega næsta drottning Danaveldis þar á ferðinni. Einhvers staðar las ég að Mary þessi kæri sig ekki um að hafa einkalíf sitt til sýnis. Þess vegna hafi hún farið fram á það við vini og fjölskyldu að þau segi fjölmiðlum ekki frá æsku sinni. Þessi ósk hennar á ekki eftir að verða upp- fyllt. Fjölmiðlar eru hnýsnir and- skotar og láta engan segja sér fyrir verkum. Veit Mary út í hvað hún er að fara? Örugglega, enda ku hún vera álíka snjöll og hún er fögur. Hún þarf þó að hugsa málið til enda. Núna er hún orðin almenningseign og getur ekki lengur farið út úr húsi án þess að stórfrétt verði úr. Ljósmyndarar munu leggja ýmislegt á sig til að geta fest líf hennar á filmu og það er ekkert sem hún getur gert eða sagt sem mun breyta því. Vonandi ganga þeir þó ekki eins langt og með hina prinnessuna, hana Díönu. Ég vona líka Mary sjálf eigi ekki eftir að breytast of mikið. Ég sé fyrirsögnina fyrir mér: Saklaus sveitastúlka breytist í ofsóknar- brjálaða taugahrúgu. Hún er örugglega of snjöll til að láta það gerast. STUÐ MILLI STRÍÐA FREYR BJARNASON VELTIR FYRIR SÉR FRAMTÍÐ MARY DONALDSSON ■ Saklausa sveitastúlkan breytist í prinsessu Ertu viss um að þú hafir þetta af? Hvað heldurðu að ég sé? Auðvitað ber ég þig yfir þröskuldinn! Tak mig í faðm þér! OBSASA! Ekki segja mér að þú sért með hausverk... ...herðar hné og tær... ...sósu og salat... Ertu sáttur við að þetta er búið hjá ykkur? Já, þetta var að verða eins og einhver Ikea-hryllings- saga! Vesenið er að finna nýja gellu, því það eru ein- tómar gærur á barnum! Njeee... Hjálp! En öldungadeildin? En að gera heimildarmynd um blautbolskeppni?Mér finnst diffurjöfnur æði, en þér? Njeee... Ha? Þú getur farið á reiðnámskeið! Njeee... JÁÁÁÁ!!!STÆLT& STOLIÐ Kynsvall við myndatökur! Sjáið myndirnar! Heldurðu að ég sé tilbúinn að leggjast í dvala yfir veturinn? Mér sýnist að það verði afgangur af þér! Núna förum við sko og finnum okkur HELLI! Ha? HELLI Já... Hvar hélstu að við myndum leggjast í dvala? Tjah... Mér datt Hawaii í hug. FLÝTTU ÞÉR!! Segið þá:Foreldrar! Eruð þið orðin þreytt á að vera misskilin? Barnalán kynnir Foreldratal sem annað tungumál Örugg samskipti milli foreldra og barna! 2. lexía Ef skilaboðin eru: „Slakaðu bara á og taktu þér eins mikinn tíma og þú vilt,“ 60-61 (48-49) Fólk-myndasaga 14.5.2004 20:16 Page 2

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.