Fréttablaðið - 15.05.2004, Side 71

Fréttablaðið - 15.05.2004, Side 71
59LAUGARDAGUR 15. maí 2004 ■ FÓLK Í FRÉTTUM Íslensku skákáhugafólki gefst ein-stakt tækifæri á morgun þegar Hrókurinn býður upp á fjöltefli við stórmeistarana Reginu Pokorna og Thomas Oral í höfuð- stöðvum sínum í Skúlatúni 4. Regina, sem er ein besta skákkona heims, er einn mikilvirkasti meðlimur Hróksins. Hún hefur teflt á Ís- landsmóti skákfélaga með Hrókn- um, stórmótum sem Hrókurinn hefur skipulagt og verið afar virk í barnastarfi félagsins þar sem hún hefur meðal annars heimsótt skóla og teflt fjöltefli við nemendur og nú gefst Hrókskrökkum og foreldrum þeirra tækifæri til að etja kappi við skákdrottninguna en Regina og Thomas setjast að tafli klukkan 14 á sunnudaginn. Stórmeistarinn Thom- as Oral hefur líkt og Regina tekið þátt í Íslandsmótinu og heimsótt fjölmarga skóla á höfuðborgarsvæð- inu til að kynna skákina fyrir yngri kynslóðinni. Liðsmenn Hróksins hvetja bæði krakka og foreldra að missa ekki af þessu skemmtilega tækifæri til þess að etja kappi við skákmenn á heimsmælikvarða. Blaðamannafélag Íslands heldurúti „faglegum“ spjallvettvangi á heimasíðu sinni Press.is. Þar er meiningin að menn ræði vitrænt um málefni er snerta fjölmiðla og fjölmiðl- un en þrátt fyrir að allt sé að verða brjál- að á fjölmiðlamarkaði hefur umræðan verið hálf loðmulluleg. Ró- bert Marshall, for- maður Blaðamannafélagsins, og Birgir Guðmundsson, ritstjóri vef- sins, virðast að mestu leyti rekja doðann til Ingimundar, nokkurs, Kjarval sem þeir telja drepa niður alla umræðu með gríðarlegum lang- hundum. Þeir hafa nú opinberað þau áform sín að loka fyrir aðgang allra sem ekki eru skráðir í Blaðamanna- félagið að vefnum. „Nú er svo kom- ið að enginn nennir lengur að skrifa hér á vefinn. Það er því miður að verða augljóst að loka verður vefn- um öllum þeim sem eru ekki félag- ar í BÍ.“ Forsvarsmenn Press.is hafa ítrek-að bent Ingimundi að hann sé best geymdur á spjallvefnum Malefnin.com en þar hafa margir þéttir alvitringar hreiðrað um sig og fá álíka útrás og Þjóðarsál Rásar 2 bauð mönnum upp á á sínum tíma. Blaðamenn virðast því telja sínar um- ræður öllu merkilegri en argaþrasið á Málefnunum þó oft megi vart milli sjá hvar vitleysan er meiri. Spekingarnir á Málefnunum hafa, að því er virðist, jafn lítið álit á blaðamönnum og blaðamenn á þeim en hafa fyllst vandlætingu nú þegar BÍ íhugar að skella á nefið á þeim. Ingimundur Kjarval lætur þó ekk- ert raska ró sinni og segir á Málefn- unum: „Ég fyrir mína parta er ánægður með þennan árangur að hafa verið hent út af þeim vef, reyndi alltaf að skrifa það sem ég taldi satt. Spái að hann verði dauður innan tíðar, það sem þeir skrifa er svo ægilega leiðinlegt.“ Tekið til hendinni Mikið gekk á hjá Íslenska út-varpsfélaginu í gær þegar haldinn var hinn árlegi Hreinsunar- dagur. Allir starfsmenn á Lyng- hálsinum mættu í búningum í tilefni dagsins, tóku til í kringum sig og í lok dags var haldin mikil grillveisla. Dómnefnd gekk á milli, með Ingólf Bjarna Sigfússon í broddi fylkingar, í gervi Davíðs Oddssonar ásamt skósveinum sínum og má segja að Bláa höndin hafi verið þemað í ár í samræmi við tíðar- andann uppi á Lynghálsi. Hlutverk dómnefndar var að meta hverjir stæðu sig best í því að hreinsa í kringum sig en ekki er víst að sigur- vegarar Hreinsunardags séu þeir hreinlátustu, því alsiða er að gera tilraunir til að múta dómnefndinni með súkkulaði eða öðru góðgæti. Búningar voru mismunandi á milli deilda. Framleiðsludeildin mætti til dæmis sem málaliðar, markaðsdeildin klæddi sig eins og helsta hetjan sín úr söngleiknum Fame og þjónustudeild mætti í flugfreyjubúningum, þjónustu- glöð að vanda. Þar að auki mætti dagskrárdeild sjónvarps sem indjánar og fréttadeildin mætti í eiturefnabúningum. Ekki er vitað hvort það hafi verið sökum þess að þeir hafi ekki tekið til hjá sér í langan tíma eða hvort frá þeim komi svona eitrað efni. Útvarpssviðið þótti taka sig mjög vel út í gervi helstu popp- stjarnanna. Þar mátti sjá Bjarna Ara svífa um ganga, klæddan eins og Kónginn, Kiddi Bigfoot hélt sig vera Enrico Iglesias og Sigga Lund tók Lovegúrúinn sér til fyrirmyndar. Einnig mátti sjá Siffa í fötum kærustu sinnar, hennar Tinnu Maríu. ■ SIGURÐUR G. GUÐJÓNSSON OG PÁLL MAGNÚSSON Félagarnir mynda hreinsibrúsann til að taka svolítið til í kringum sig. YFIRMENN ÍSLENSKA ÚTVARPSFÉLAGSINS Taka við skipununum um hvar skuli taka næst til hendinni. HREINSUN ÍSLENSKA ÚTVARPSFÉLAGIÐ ■ hélt hinn árlega hreinsunardag. 70-71 (58-59) Fólk 14.5.2004 21:36 Page 3

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.