Fréttablaðið - 01.10.2004, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
FÖSTUDAGUR
DAGURINN Í DAG
RIGNING MEÐ KÖFLUM UM
sunnan- og vestanvert landið en þurrt
norðan- og austan til. Milt og hiti 10-14
stig að deginum. Sjá síðu 6
1. október 2004 – 268. tölublað – 4. árgangur
● matur ● tilboð
Eldar túnfisk til spari
og hversdags
Lárus Gunnar Jónsson:
nr. 39 2004
FYLGIST MEÐ
stjörnuspá fólk tíska bækur matur kvikmyndir
SJÓ
NV
AR
PS
DA
GS
KR
ÁI
N
1.
ok
t.
- 7
. o
kt
.
+
Skemmtilegt daður
Agnar Jón Egilsson
Brjóstakrabbamein
HAUSTTÍSKAN
Loðin
& litrík
Loðin og litrík
birta
Hausttískan:
▲
Fylgir með Fréttablaðinu í dag
SVEITARFÉLÖGUM
FÆKKAR OG ÞAU
STÆKKA Tillögur um
að fækka sveitarfélög-
um um 64. Sjötíu pró-
sent þjóðarinnar
greiða atkvæði um til-
lögurnar. Fyrirhugað að
færa aukin verkefni til sveitarfélaga. Breytt
tekjuskipting skilyrði fyrir því. Sjá síðu 2
KREFST FJÖGURRA ÁRA FANG-
ELSIS Sækjandi krefst þess að Stefán Logi
Sívarsson verði dæmdur í fjögurra ára fang-
elsi fyrir þrjár líkamsárásir. Verjandi hans vill
að tekið verði tillit til erfiðrar æsku. Kvöld-
sögur föður Stefáns hafi verið um ofbeldi
og drykkju. Sjá síðu 4
BORGIN GRÍPUR EKKI INN Í
DEILUNA Fjárhagsstaða Reykjavíkurborg-
ar er slæm rétt eins og annarra sveitarfé-
laga, að sögn forseta borgarstjórnar.
Reykjavíkurborg grípi ekki inn í samninga-
viðræður kennara og launanefndar sveitar-
félaganna. Fjárhags- og verkfallsvandinn
séu óskyldir. Sjá síðu 6
STAÐFESTA KYOTO-SÁTTMÁLANN
Rússar hafa tekið ákvörðun um að sam-
þykkja Kyoto-sáttmálann. Með því verður
raunhæft að sáttmálinn taki gildi en hing-
að til hefur andstaða Bandaríkjanna og
Kína auk efasemda Rússa komið í veg fyrir
það. Sjá síðu 8
● daður ● stjörnuspá
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Kvikmyndir 40
Tónlist 42
Leikhús 42
Myndlist 42
Íþróttir 34
Sjónvarp 48
FRÁBÆR TILBOÐ!
SÉRBLAÐ FYLGIR
25-49 ára
Me›allestur
72%
50%
Fréttablaðið Morgunblaðið
Allt landið
Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallups ágúst '04
VEÐRIÐ Í DAG
Þriðjungur verktaka í
þrot vegna lóðaverðs
Tæpur þriðjungur verktaka í Grafarholti urðu gjaldþrota. Fyrirkomulagi við úthlutun lóða
kennt um. Verktaki óttaðist verkefnaleysi tryggði hann sér ekki lóð á uppsprengdu verði.
BYGGINGARIÐNAÐUR Tæpur þriðj-
ungur þeirra verktaka sem fengu
úthlutað lóðum í Grafarholti á ár-
unum 1999 til 2002 hafa síðan
orðið gjaldþrota. Þetta kom fram í
erindi Þorsteins Víglundssonar,
forstjóra BM-Vallár, á fundi Sam-
taka iðnaðarins í gær.
Þorsteinn segir að þetta megi
rekja til fyrirkomulags á úthlutun
lóða, en lóðum í Grafarholti var
úthlutað eftir útboð. ,,Þetta fyrir-
komulag er óheppilegt meðal ann-
ars vegna þess að þetta hækkar
byggingakostnað hjá verktökum,
sér í lagi þar sem skortur hefur
verið á byggingarlóðum í borg-
inni,“ segir Þorsteinn.
Samkvæmt tölum Hagstofunn-
ar hefur kostnaður við byggingu
hvers fermetra hækkað úr 72.000
krónum árið 1999 í 95.000 krónur
nú. Lóðaverð hefur á sama tíma
hækkað úr 13.000 krónum á fer-
metra í rúmar 25.000 krónur.
Rúmur helmingur af hækkun
byggingarkostnaðar á þessu tíma-
bili má því útskýra með hækkun
lóðaverðs.
Þorsteinn segir að þá hækkun
megi rekja til þessarar aðferðar
Reykjavíkurborgar við úthlutun
lóða. ,,Reykjavíkurborg er með
þessu að skattleggja kaupendur
og verktaka. Yfirleitt hafa sveit-
arfélög lagt fast verð á lóðirnar
og gera þá ráð fyrir að fá greitt
fyrir kostnað við gatnagerð og
leggja svo eitthvert álag þar ofan
á. En uppboðsfyrirkomulag með
þessum hætti er ekki heppileg
leið til að verðleggja lóðir.
Reynslan sýnir að annað tveggja
gerist; kaupandinn borgar hærra
verð eða afkoma byggingaverk-
takans rýrnar.“
Verktaki sem varð gjaldþrota
eftir að hann byggði í Grafarholti
og vill ekki láta nafn síns getið
segist sannfærður um að þessi að-
ferð við úthlutun lóða hafi leitt til
gjaldþrotahrinu. ,,Þetta er orðin
þvæla þegar maður þarf að kaupa
lóðina fyrir fjórar til fimm
milljónir. Ég held að lóðaverðið
hafi tvöfaldast með þessu móti.
Stjórnmálamennirnir héldu því
fram að verktakarnir greiddu
bara það sem þeir treystu sér til.
En menn teygðu sig langt út fyrir
það til að tryggja sér þær lóðir
sem buðust til að verða ekki verk-
efnalausir.“
ghg@frettabladid.is
KYRRÐ Í KIRKJU Kyrrðarstund verð-
ur í Hallgrímskirkju klukkan tólf í dag.
Hægt er að kaupa sér léttan málsverð að
stundinni lokinni.
SIGLUFJÖRÐUR Bæjaryfirvöld á
Siglufirði hafa þegar hafið fram-
kvæmdir sem tengjast gerð Héð-
insfjarðarganga milli Siglufjarðar
og Ólafsfjarðar. Verið er að
byggja brú yfir Fjarðará sem
tengist vegi sem liggur að ganga-
munnanum.
Runólfur Birgisson, bæjar-
stjóri Siglufjarðar, segir að gengið
sé út frá því sem vísu að ný sex
milljarða króna göng milli Siglu-
fjarðar og Ólafsfjarðar verði boð-
in út á næsta ári. Framkvæmdir
hefjist síðan árið 2006 og þeim
ljúki árið 2009. Mikil óánægja
varð meðal bæjarbúa fyrir rúmu
ári síðan þegar gangagerðinni var
frestað um eitt ár.
Vegalengdin milli Siglufjarð-
ar og Ólafsfjarðar er nú 60 kíló-
metrar að sumri, en 240 kíló-
metrar þegar Lágheiðin er ófær
að vetri. Við opnun ganganna
skilja 15 kílómetrar bæina að.
Héðinsfjarðargöng eru for-
senda fyrir sameiningu Siglu-
fjarðar við önnur sveitarélög við
Eyjafjörð. Viðræður milli sveitar-
félaganna eru í fullum gangi og
hefur verið samið við Háskólann á
Akureyri um að gera hagkvæmn-
isathugun á sameiningu þeirra.
Einnig mun háskólinn gera könn-
un meðal íbúa á svæðinu.
Sjá síðu 22
UNDIRBÚNINGUR FYRIR HÉÐINSFJARÐARGÖNG HAFINN Í sumar hefur verið unnið við byggingu nýrrar brúar fyrir Fjarðará við Siglu-
fjörð. Brúin, sem mun tengjast vegi sem mun liggja að fyrirhuguðum Héðinsfjarðargöngum, er kölluð „friðþægingarbrúin“ af gárungunum
en mikil óánægja varð meðal íbúa Siglufjarðar í fyrra þegar framkvæmdum við göngin var frestað.
Tony Blair:
Lagður inn
á sjúkrahús
LONDON,AP Tony Blair forsætisráð-
herra Bretlands gengst í dag undir
meðhöndlun á sjúkrahúsi vegna
hjartsláttartruflana sem gerðu
vart við sig hjá ráðherranum í gær.
Blair tilkynnti sjálfur um veikindi
sín í gærkvöldi, skömmu eftir að
hann tók þátt í lokaathöfn lands-
þings Verkamannaflokksins.
Sagði Blair að veikindin myndu
hvorki hafa áhrif á störf hans né þá
fyrirætlan hans að leiða flokk sinn
þriðju kosningarnar í röð. Hann sá
þó ástæðu til taka fram að hann
myndi ekki halda áfram að loknu
næstu kjörtímabili en hann er 51
árs gamall. ■
Gert ráð fyrir því að Héðinsfjarðargöng verði boðin út eftir áramót:
Göngin eru forsenda
sameiningar sveitarfélaga
Kristinn H. Gunnarsson:
Áfram í
Framsókn
FRAMSÓKN „Mönnum finnst þeir
tefla hagsmunum sínum í tvísýnu
ef þeir setja fram sjónarmið í um-
deildum málum sem eru á annan
veg en þann sem forystan hefur
gefið upp. Þetta
er stóra vanda-
málið í flokkn-
um,“ segir Krist-
inn H. Gunnars-
son, alþingismað-
ur, um Fram-
sóknarflokkinn,
í ítarlegu viðtali
við Fréttablaðið í
dag. Kristinn seg-
ist eiga samleið
með Framsóknarflokknum þrátt
fyrir að hann sé upp á kant við
forystu hans.
„Menn verða að vera frjálsir í
skoðunum sínum til þess að stjórn-
málaflokkur sé í raun lýðræðisleg
hreyfing,“ segir Kristinn meðal
annars í viðtalinu.
Sjá síður 14-15
KRISTINN H.
GUNNARSSON
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M