Fréttablaðið - 01.10.2004, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 01.10.2004, Blaðsíða 46
34 1. október 2004 FÖSTUDAGUR Við óskum... ... handknattleiksdeild FH góðs gengis í leit sinni að nýjum þjálfara. Þorbergur er horfinn á braut, Viggó vill ekki koma nálægt liðinu og sagan segir að lítil stemning sé meðal íslenskra þjálfara að taka við liðinu enda leikmanna- hópurinn ekki beint burðugur né áhugaverður. „Það er varla að við munum hvernig á að spila stífan varnarleik.“ Heimir Guðjónsson, fyrirliði FH, eftir leikinn gegn Aachen í gær. Þrátt fyrir 5-1 tap í fyrri leiknum pökkuðu FH-ingar í vörn og forðuðu sér þar með frá annarri flengingu.sport@frettabladid.is HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 28 29 30 1 2 3 4 Föstudagur OKTÓBER HANDBOLTI Einn öflugasti, og skraut- legasti, handboltamaður Íslands, Sigfús Sigurðsson, hefur ákveðið að taka sér frí frá íslenska lands- liðinu í handknattleik. Hann mun ekkert spila með landsliðinu næsta árið og svo gæti farið að hann spil- aði ekkert næstu tvö árin. Íslenska landsliðið er á leiðinni á World Cup í Svíþjóð í nóvember og svo bíður heimsmeistaramótið í Túnis strax í byrjun næsta árs. Koma sjálfum sér í lag „Það er kominn tími til þess að ég setji sjálfan mig í fyrsta sætið,“ sagði Sigfús í samtali við Frétta- blaðið frá Þýskalandi. „Ég vil fara að koma sjálfum mér í lag en ég hef átt í þrálátum meiðslum og mér veitir ekkert af landsleikjafrí- unum til þess að lappa upp á sjálf- an mig. Ég verð að halda sjálfum mér í standi í stað þess að keyra mig alltaf út.“ Sigfús er einmitt meiddur þessa dagana en hann var skorinn upp fyrir tveim vikum síðan og getur þar af leiðandi ekki spilað hand- bolta næstu tvö mánuði. „Vonandi verð ég klár fyrr en þetta snýst mikið um það hversu langan tíma þetta tekur að gróa. Svo var taugin sem liggur í vinstri fótinn orðin mjög bólgin og þetta tekur allt tíma,“ sagði Sigfús sem er orðinn þreyttur á því að vera sí- fellt meiddur og tekur því þessa ákvörðun. „Með því að taka mér frí frá landsliðinu er ég að vonast til þess að lengja minn atvinnumannsferil um tvö til þrjú ár. Auðvitað er leið- inlegt að geta ekki spilað áfram með liðinu því það er alltaf mikill heiður, og gaman, að spila með landsliðinu en ég því miður get bara ekki haldið áfram svona leng- ur. Vonandi fæ ég bót meina minna svo ég geti spilað með landsliðinu síðar,“ sagði Sigfús. Mikið breytt landslið Það er ljóst að nýr landsliðsþjálf- ari verður með mikið breytt lið í höndunum á HM í byrjun næsta árs því Ólafur Stefánsson segist heldur ekki ætla að vera með á HM í Túnis. Svo er Patrekur Jóhannes- son ekki í ástandi til að spila með landsliðinu og svo er alls óvíst hvort Dagur Sigurðsson spilar áfram með liðinu. henry@frettabladid.is EKKI MEÐ Á NÆSTUNNI Einn öflugasti, og skrautlegasti, handboltamaður Íslands, Sigfús Sigurðsson, hefur ákveðið að taka sér frí frá íslenska landsliðinu í handbolta. Fréttablaðið/Teitur Sigfús á leiðinni í langt frí Áfall fyrir íslenska handboltalandsliðið sem hefur þegar misst Ólaf Stefánsson frá því á Ólympíuleikunum í Aþenu á dögunum. Sigfús er að vinna sig út úr erfiðum bakmeiðslum og er nýkominn úr aðgerð.■ ■ LEIKIR  18.00 Haukar og Stjarnan eigast við á Ásvöllum í handknattleik kvenna.  19.15 Grótta KR og Valur eigast við á Seltjarnarnesi í handknat- tleik karla.  19.15 KA og HK eigast við í KA- heimilinu í handknattleik karla.  19.15 Víkingur og ÍBV eigast við í Víkinni í handknattleik karla.  19.15 Fram og Þór Ak. eigast við í Framhúsinu í handknattleik karla.  20.00 Afturelding og Haukar eigast við á Varmá í handknattleik karla.  20.00 Stjarnan og ÍR eigast við í Ásgarði í handknattleik karla. ■ ■ LEIKIR  17.20 Olíssport á Sýn. Fjallað um helstu íþróttaviðburði heima og erlendis.  18.00 Upphitun á SkjáEinum. Breskir knattspyrnuspekingar spá og spekúlera í leikjum helgar- innar.  18.35 Trans World Sport á Sýn. Íþróttir um allan heim.  19.30 Gillette-sportpakkinn á Sýn.  20.00 Motorworld á Sýn. Kraftmikill þáttur um allt það nýjasta í heimi akstursíþrótta.  20.30 UEFA Champions League á Sýn. Fréttir af leikmönnum og liðum í Meistaradeild Evrópu.  21.00 Mótorsport 2004 á Sýn. Ítar- leg umfjöllun um íslenskar akstursíþróttir.  21.40 World Series of Poker á Sýn. Sýnt frá HM í póker. Seinni leikur FH gegn þýska liðinu Aachen í Evrópukeppni félagsliða fór fram í gærkvöld: Varnarsinnaðir Íslandsmeistarar héldu jöfnu FÓTBOLTI FH-ingar gerðu marka- laust jafntefli við þýska 2. deild- arliðið Allemania Aachen en þetta var seinni leikur liðanna í Evrópu- keppni félagsliða. Eins og alkunna er töpuðu FH-ingar fyrri leiknum stórt, 1–5, á Laugardalsvelli og því vitað að möguleikar FH-inga á að komast áfram væru afar litlir. Viðureignin fór fram í Köln, á glæsilegum leikvangi, og voru tæplega 22 þúsund manns við- staddir leikinn sem var sá síðasti á tímabilinu hjá FH-ingum - besta tímabili í þeirra sögu, hingað til. Greinilegt var á öllu fyrir leik- inn að FH-ingar ætluðu sér ekki að fá á sig fleiri mörk því þetta sókndjarfa lið stillti upp mjög varnarsinnuðu leikskipulagi. Boð- ið var upp á 5-3-2 þar sem Guð- mundur Sævarsson og Davíð Þór Viðarsson voru í bakvarðarstöð- unum. Þeir Tommy Nielsen, Freyr Bjarnason, og Sverrir Garðarsson voru allir í miðvarðarstöðunni. Baldur Bett, Heimir Guðjónsson og Ásgeir Gunn- ar Ásgeirsson voru síðan á miðjunni en í f r a m l í n - unni var þeim Allan Borgvardt og Atla V i ð a r i Björnssyni stillt upp. F r é t t a - blaðið náði tali af fyrirliða FH, Heimi Guðjónssyni í g æ r k v ö l d i . „Dagsskipunin var að halda hreinu og þess vegna breyttum við nú leikskipulaginu hjá okkur og fórum í 5-3-2 og það verð- ur að segjast eins og er að það tók okkur talsverð- an tíma að átta okkur á því - það er varla að við munum hvernig á að spila stífan v a r n a r l e i k . Þeir á hinn bóginn spiluðu svipað og í fyrri leiknum - pressuðu okk- ur um allan völl,“ sagði Heimir Guð- jónsson, ný- kominn úr sturtunni. „Þeir voru mun meira með boltann og áttu ein- hver þrjú góð færi en við fengum hins vegar tvö mjög góð færi. Atli Viðar (Björnsson) átti skot í stöng og Allan (Borgvardt) komst einn inn fyrir en markvörðurinn varði vel. Í seinni hálfleik prófuðum við aðeins að færa okkur framar og Jón Þorgrímur (Stefánsson) og Emil (Hallfreðsson) komu inná. Auðvitað langaði okkur að ná sigri en þetta var ágætisleikur hjá okk- ur þegar á heildina er litið, við vörðumst vel og héldum markinu hreinu sem var aðalmarkmiðið og ekkert nema gott um það að segja.“ Heimir segir leikmenn FH hafa verið afar meðvitaða um möguleikana. „Þessi leikur var náttúrulega bara spilaður upp á stoltið, við gerðum okkur nú ekki miklar vonir um að fara áfram. Við erum hins vegar afar sáttir eftir þetta sumar, brutum ísinn og náðum þeim stóra,“ sagði Heimir Guðjónsson. sms@frettabladid.is FYRIRLIÐINN SÁTTUR Heimir Guðjónsson, fyrirliði FH, var ánægður með jafnteflið í gær.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.