Fréttablaðið - 01.10.2004, Síða 31

Fréttablaðið - 01.10.2004, Síða 31
Afsláttur er á hægindastólum, sófa- settum og svefnsófum í versluninni Sett í Hlíðarsmára í Kópavogi þar sem verið er að rýma fyrir nýjum vörum. Einnig eru sýningarsett seld á niðursettu verði. Sófarnir koma frá Ítalíu og fást meðal annars með leður- og microfiber-áklæði. ■ Afsláttur á sófum: Ítalskir sófar og hægindastólar 5FÖSTUDAGUR 1. október 2004 Í versluninni Stasia í Kringlunni er allt á öðrum endanum og við- skiptavinirnir fá að njóta þess. „Við ákváðum í tilefni af fimm ára afmæli þessa hluta Kringl- unnar að breyta innréttingunum og gefa búðinni léttara og skemmtilegra yfirbragð,“ segir Rósa Hallgeirsdóttir, eigandi verslunarinnar. „Okkur hefur þótt vanta ýmislegt til að geta boðið viðskiptavinum okkar upp á þá aðstöðu og þjónustu sem við vilj- um bjóða þeim og þessvegna réð- umst við í þessar framkvæmdir. Við vildum samt ekki loka búðinni í marga daga heldur erum með opið meðan á framkvæmdunum stendur en bjóðum í staðinn vald- ar vörur með 20-40% afslætti.“ Viðskiptavinir hafa sumir talið að verslunin sé að hætta en Rósa vill koma í veg fyrir þann misskiln- ing. „Búðin er alls ekki að hætta og við verðum með sömu góðu merkin áfram svo sem Fransa, Studio og B-Young.“ Tilboðið stendur fram yfir helgina og þá verður búðin vonandi tilbúin í sín- um nýja ham. ■ Bætiefni á betra verði! Sterkt ginseng eykur starfsþrek 1 á dag! Gerið verðsamanburð! Fáðu flott munnstykki Golfútsala er nú í gangi í Markinu í Ármúla þar sem er 20% til 70% afsláttur af öllum golfvörum. Á útsölunni eru meðal annars vörur frá Hippo og Taylor Made sem eru heimsþekkt og reynd vöru- merki. Einnig eru hjól seld með 20% afslætti meðan á útsölunni stendur, auk körfuboltaspjalda og rólusetta. ■ Allt að 70% afsláttur: Golfvörur og hjól Stasía í Kringlunni breytir í tilefni afmælis Kringlunnar: Tilboð vegna breytinga Hildur Dagný, verslunarstjóri í Stasíu í Kringlunni, skoðar tilboðsslána. Í BT í Skeifunni stendur nú yfir allsherjar útsala á heimilistækj- um af öllum toga. Þeir BT-menn segjast vera með ódýrustu heimil- istækin á landinu en hver getur dæmt um það fyrir sig. Sem dæmi um tæki er hægt að fá Siemens uppþvottavél á 29.999 krónur en hún var áður á 44.900 krónur, Teba eldavél sem var á 49.900 krónur er nú á 29.999 krónur og Wilfa örbylgjuofn er á 3.999 krón- ur en hann var á 5.995 krónur. Einnig er Whirlpool kæli- og frystiskápur nú á 34.999 krónur en hann var á 49.900 krónur og Indesit þvottavél er hægt að fá á 29.999 krónur en hún var áður á 44.900 krónur. Takmarkað magn er af þessum heimilistækjum og er vert að ít- reka það að þessi tilboð gilda ein- göngu í verslunum BT í Skeifunni í Reykjavík. ■ Sportbúðin Títan býður gestum og gangandi nú upp á útsölu á útivistarvörum. Afslátturinn er 25 til 70 prósent og stendur útsal- an yfir á meðan birgðir endast. Til dæmis er hægt að fá svefn- poka með fjörutíu prósenta af- slætti, pottasett með þrjátíu prósenta afslætti, gas- hitara á fimmtíu prósenta af- slætti og fjallahjól á 45 prósenta afslætti svo eitthvað sé nefnt. Einnig bíður Sportbúðin upp á góðar veiðigræjur frá Amer- istep. Í því merki er hægt að fá gervigæsir, heybagga, regngalla og vatnsheldar byssutöskur. Einnig eru skotfæri í miklu úrvali þannig að þetta er svo sannarlega búð veiði- mannsins þó að allir séu velkomnir á útsöluna. Sportbúðin Títan er til húsa að Krókhálsi 5g í Reykjavík og er síminn þar 517 8810. ■ Allt að sjötíu prósenta afsláttur: Útsala á útivistarvörum Ódýr heimilistæki: Eldavélar og þvottavélar Smáauglýsingasíminn er 550 5000 auglysingar@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.