Fréttablaðið - 01.10.2004, Qupperneq 2
2 1. október 2004 FÖSTUDAGUR
Ríkislögreglustjóri ákærir fyrrverandi framkvæmdastjóra öðru sinni:
Íslandsmet í fésektum
DÓMSMÁL Örn Garðarsson, fyrr-
verandi framkvæmdastjóri
og stjórnarformaður Brasserie
Borgar, játaði í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær, rúmlega sex-
tíu milljóna króna skattsvik. Á
síðasta ári var hann dæmdur í
þriggja mánaða skilorðsbundið
fangelsi fyrir fimmtán milljón
króna skattsvik og til greiðslu
þrjátíu milljón króna sektar.
Búast má við miðað við dóms-
venjur og ákvæði skattalaga að
Örn verði dæmdur til að greiða
um 122 milljónir króna í sekt
fyrir brotið. Ef af líkum lætur
mun hann slá Íslandsmet í fé-
sektum samtals um 152 milljónir
króna.
Örn stóð ekki skil á um fjörutíu
milljónum króna virðisaukaskatti
á árunum 1999 til 2001. Þá stóð
hann ekki skil á greiðslum opin-
berra gjalda upp á rúmar tuttugu
milljónir króna sem haldið var
eftir af launum starfsmanna árin
2000 til 2001. ■
Sveitarfélögin verði
færri og stærri
Tillögur um að fækka sveitarfélögum um 64. Sjötíu prósent þjóðarinnar greiða atkvæði um til-
lögurnar. Færa á aukin verkefni til sveitarfélaga. Breytt tekjuskipting skilyrði fyrir því.
SVEITARSTJÓRNARMÁL Sveitarfélögum
á landinu fækkar úr 103 í 39 ef til-
lögur nefndar á vegum félagsmála-
ráðuneytisins verða samþykktar.
Rúmlega 70% þjóðarinnar býr í
þessum sveitarfélögum. Kosið verð-
ur um sameiningu átta sveitarfé-
laga í nóvember en í apríl á næsta
ári er fyrirhuguð kosning um sam-
einingu áttatíu sveitarfélaga.
Tillögurnar voru kynntar á fundi
Árna Magnússonar, félagsmálaráð-
herra, með sveitarstjórnarmönnum
í gær. Þeir hafa nú tvo mánuði til að
koma á framfæri athugasemdum
áður en nefndin leggur fram endan-
legar tillögur í desember.
Í tillögunum er meðal annars
gert ráð fyrir að Suðurnes verði eitt
sveitarfélag, einnig Snæfellsnes,
norðanverðir Vestfirðir og Vestur
Skaftafellssýsla. Á höfuðborgar-
svæðinu er gerð tillaga um samein-
ingu Reykjavíkur og Kjósarhrepps
annars vegar og Garðabæjar og
Álftaness hins vegar.
Tillögur sameiningarnefndar-
innar miða að því að hvert sveitar-
félag myndi heildstætt þjónustu- og
atvinnusvæði og var miðað við að
þau næðu ekki yfir stærra land-
svæði en svo að níutíu prósent íbú-
anna væru innan þrjátíu mínútna
akstursvegalengdar frá þjónustu-
kjarna sveitarfélagsins eða grunn-
skóla. Þá eiga þau ekki að spanna
stærra svæði en svo að þau geti
myndað heildstætt samfélag og að
samgöngur innan sveitarfélagsins
séu greiðar.
Árni Magnússon, félagsmálaráð-
herra segir að markmið með sam-
einingu sveitarfélaganna sé meðal
annars að gera þau nægilega burð-
ug til að sinna lögbundnum verkefn-
um sínum. Einnig geri breytingarn-
ar sveitarfélögin reiðubúin til að
taka við nýjum velferðarverkefn-
um. Hefur í þeim efnum verið rætt
um málefni fatlaðra, heilbrigðis-
þjónustu og vinnumiðlanir. Þá eru
uppi tillögur um að sveitarfélögin
taki að sér rekstur framhaldsskól-
anna, framkvæmd atvinnustefnu og
samgöngumál, þar á meðal rekstur
flugvalla.
Árni segir það sameiginlegan
skilning ríkis og sveitarfélaga að
ekki verði gengið til þessarar
breyttu verkaskiptingar nema að
samkomulag liggi fyrir um breytta
tekjuskiptingu. Tillögur um hana
verði að liggja fyrir áður en gengið
verði til atkvæðagreiðslu um sam-
eininguna í apríl. ghg@frettabladid.is
Árekstur í Grímsnesi:
Ungur maður
þungt haldinn
SLYS Átján ára piltur slasaðist al-
varlega þegar bifreið sem hann ók
skall framan á annarri bifreið á
Biskupstungnabraut um miðjan
dag í gær. Þrennt var í hinum bíln-
um, tveir fullorðnir og kornabarn,
og hlutu þau minniháttar meiðsl,
en öflugur barnastóll er talinn
hafa bjargað því að ekki fór verr.
Þyrla Landhelgisgæslunnar
var kölluð til og kom hún á vett-
vang rúmum hálftíma eftir að til-
kynning um slysið barst. Að sögn
vakthafandi læknis á bráðadeild
var ástand piltsins alvarlegt og
var honum haldið sofandi í öndun-
arvél í gærkvöld. ■
ÉG ER Í VERKFALLI OG Á SVO LÉLEGU
KAUPI AÐ HEF EKKI EFNI Á AÐ FARA.
EKKI NEMA AÐ SÉ 18 KRÓNU TILBOÐ
HJÁ FLUGFÉLÖGUNUM.
Ólafur Loftsson formaður Kennarafélags Reykja-
víkur fór fylktu liði um borgina til að hitta framm-
ámenn í íslenskum stjórnmálum. Hvert sem kom-
ið var voru svörin á einn veg. Þeir voru á menn-
ingarhátíð í Frakklandi. Ólafur segir að starfsmenn
borgarinnar og menntamálaráðuneytisins hafi tek-
ið kennurum vel í fjarveru borgarstjóra og
menntamálaráðherra.
SPURNING DAGSINS
Ólafur, hefðuð þið hugsanlega átt að
mótmæla í Frakklandi?
VIÐ ÞINGSETNINGU MÁLSINS
Verjandi Hannesar, Jón Steinar Gunnlaugs-
son, ræðir við Gest Jónsson umbjóðanda
Siðanefndar Háskóla Íslands.
Mál Hannesar:
Vísað
frá dómi
HÆSTIRÉTTUR Máli Hannesar Hólm-
steins Gissurarsonar um lögbann
á efnismeðferð Siðanefndar Há-
skóla Íslands var vísað frá í
Hæstarétti í gær. Hannes krafðist
lögbanns á störf siðanefndarinnar
sem ætlaði að fjalla um vinnu-
brögð hans við ævisöguritun um
Halldór Laxness. Nefndin hafi
ekki verið komin á laggirnar
þegar hann ritaði bókina og reglur
hennar því ekki í gildi.
Dómurinn taldi hins vegar að
nefndin hefði ekki slíka stöðu inn-
an stjórnkerfis Háskóla Íslands
að hún gæti borið skyldur eða átt
réttindi að landslögum og átt þan-
nig aðild að dómsmáli. ■
HÓTEL BORG
Fyrrverandi framkvæmdastjóri Brasserie
Borgar er langt kominn með að verða Ís-
landsmeistari í fésektum. Meðal annars
stóð hann ekki skil á staðgreiðslu opin-
berra gjalda sem dregin höfðu verið af
launum starfsmanna.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
GAZA, AP Nær þrjátíu manns létu
lífið í bardögum palestínskra
vígamanna og ísraelskra her-
sveita. Ísraelskar hersveitir brutu
sér leið langt inn í Jebaliya flótta-
mannabúðirnar á Gazaströndinni
til að ráðast á palestínska víga-
menn sem skutu eldflaugum að
ísraelskum landnemabyggðum.
Flestir þeirra sem létust voru
Palestínumenn, í það minnsta 23.
Þrír Ísraelar létust, tveir her-
menn og ísraelsk kona sem var úti
að skokka létust í skotárásum
palestínskra vígamanna. Herförin
inn í Jebaliya var svar Ísraela við
eldflaugaárásum Palestínumanna
daginn áður sem kostuðu tvö
börn, tveggja og fjögurra ára, líf-
ið.
Þetta er í fyrsta skipti frá upp-
hafi uppreisnar Palestínumanna
gegn ísraelska hernámsliðinu sem
Ísraelar brjóta sér leið svo langt
inn í Jebaliyah. Mannfallið er með
því mesta á einum degi í átökum
Ísraela og Palestínumanna. Ekki
hafa fleiri Palestínumenn fallið
einn og sama daginn frá því 35
létu lífið í árás Ísraelshers á Vest-
urbakkanum fyrir rúmum tveim-
ur árum. ■
Tæplega þrjátíu féllu í bardögum Ísraela og Palestínumanna:
Mesta mannfall í tvö ár
HREINSAÐ TIL
Palestínskur karlmaður safnar saman munum í húsasundi þar sem nokkrir Palestínumenn
særðust og létu lífið.
ÁRNI MAGNÚSSON
Sveitarfélögin taka við fleiri verkefnum eftir að þau stækka. Félagsmálaráðherra segir forsendu þess vera breytt tekjuskipting.
ÁHRIF FYRIRHUGAÐRA BREYTINGA:
Í dag Tillögur
Fjöldi sveitarfélaga 103 39
Fjölmennasta sveitarfélag 113.387 113.529
Fámennasta sveitarfélag 37 93
Meðalíbúafjöldi um 2.800 um 7.500
Fjöldi sveitarfélaga með færri en 500 íbúa 53 4
Fjöldi sveitarfélaga með færri en 1.000 íbúa 71 13
Meðalstærð sveitarfélaga 987 ferkm. 2.633 ferkm.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
BÍLSLYS Í KÓPAVOGI Einn var
fluttur á slysadeild eftir árekstur
á Álfhólsvegi við Túnbrekku í
Kópavogi klukkan hálf fjögur í
gær. Báðar fólksbifreiðarnar
voru fluttar burt með krana.
VINNUSLYS Á SUÐURNESJUM
Maður datt ofan af traktorsgröfu
við Malbikunarstöð Suðurnesja í
Helguvík. Hann úlnliðsbrotnaði
og marðist á mjóbaki. Stóð hann
á þaki gröfunnar við háþrýsti-
þvott þegar hann steig aftur fyrir
sig og féll.