Fréttablaðið - 01.10.2004, Blaðsíða 4
4 1. október 2004 FÖSTUDAGUR
Bandarískur dómari segir lögin ganga of nærri persónuvernd:
Þjóðræknislögin brjóta
gegn stjórnarskránni
BANDARÍKIN, AP Í annað sinn á
skömmum tíma hefur fallið dóm-
ur þar sem svokölluð þjóðræknis-
lög, sem Bandaríkjaþing sam-
þykkti eftir hryðjuverkaárásirnar
11. september 2001, eru sögð
brjóta gegn stjórnarskránni.
Lögin veita bandarískum lög-
reglustofnunum víðtækar leitar-
og eftirlitsheimildir sem dómarar
segja ganga of nærri persónu-
vernd einstaklinga.
Þjóðræknislögin heimila lög-
reglu að safna upplýsingum um
síma- og netnotkun einstaklinga án
þess að þeir fái nokkurn tíma að
vita af því. Bandarískur alríkis-
dómari hefur nú kveðið upp þann
úrskurð að þetta brjóti gegn því
ákvæði stjórnarskrárinnar sem
kveður á um að fólk geti leitað rétt-
ar síns gagnvart yfirvöldum. Þar
sem lögin banna síma- og netfyrir-
tækjum að láta viðskiptavini sína
vita um eftirlitið er tekið fyrir
þann möguleika.
Í janúar komst annar alríkis-
dómari að þeirri niðurstöðu að ann-
ar hluti laganna, sem bannar fólki
að aðstoða hryðjuverkasamtök eða
veita þeim upplýsingar, bryti gegn
stjórnarskránni þar sem ákvæðin
væru of almennt orðuð og gætu
brotið gegn málfrelsisákvæðum
stjórnarskrárinnar.
„Það er næstum öruggt að
þessu verður áfrýjað,“ sagði John
Ashcroft dómsmálaráðherra en
mannréttindasamtök fögnuðu nið-
urstöðunni. ■
DÓMSMÁL Sækjandi í sakamáli
gegn Stefáni Loga Sívarssyni
krafðist þess í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær að hann yrði
dæmdur í fjögurra ára fangelsi
fyrir þrjár líkamsárásir sem hann
er sakaður um að hafa framið á
tveimur dögum í apríl.
Ein líkamsárasanna var sér-
staklega hættuleg en þá réðst
Stefán á sextán ára pilt. Pilturinn
segir Stefán hafa slegið sig á
kjaftinn og í magann og að lokum
hafi hann sparkað í magann á hon-
um þar sem hann lá í gólfinu. Stef-
án hefur játað tvö högg af þremur.
Vitnisburður í hinum tveimur lík-
amsárásunum er mjög á reiki.
Vitni muna ýmist ekki eftir hvað
gerðist, segjast ekki hafa verið á
staðnum eða ber ekki saman um
hvað gerst hafi. Stefán Logi segist
sjálfur ekki muna neitt vegna
áfengis- og vímuefnaneyslu. Síð-
asta líkamsárásin var gegn ungri
konu og segist Stefán ekkert
muna en neitar árásinni þar sem
hann hafi aldrei lagt hendur á
kvenmann.
Verjandi Stefáns segir hann
hafa átt erfiða æsku og foreldrar
hans hafi ekki verið góðar fyrir-
myndir. Kvöldsögur frá föður
Stefáns hafi fjallað um ofbeldi og
drykkju. Stefán var á reynslu-
lausn þegar hann var handtekinn
vegna líkamsárásanna en ekki
fékkst gæsluvarðhald eftir þá
fyrstu. Verjandinn segir lögreglu
hafa farið fram á gæsluvarðhald
vegna rannsóknarhagsmuna en
það ekki gengið eftir enda Stefán
þá búinn að játa brotið að mestu.
Eftir hinar árásirnar hafi hann
hins vegar verið úrskurðaður í
gæsluvarðhald sem farið hafi ver-
ið fram á vegna hagsmuna al-
mennings. Verjandinn segir Stef-
án hafa beðið fangelsismálayfir-
völd um að fá að ljúka afplánun í
meðferð en honum hafi verið neit-
að vegna agabrota. „Hann fékk
ekki hjálp af því að hann hafði
verið óþekkur en hann hefur ver-
ið óþekkur allt sitt líf,“ sagði verj-
andinn. Þegar hann hafi svo losn-
að út fyrir um ári síðan hafi hann
reynt að standa sig enda nýorðinn
faðir. Um áramótin hafi
fíknin fellt hann og eftir það hafi
allt farið til verri vegar.
Stefán á langan afbrotaferil að
baki og hlaut meðal annars tveggja
ára fangelsisdóm fyrir líkamsárás
árið 2002 á heimili sínu á Skelja-
granda, auk annarrar líkamsárásar
sem hann framdi sama dag.
hrs@frettabladid.is
GEIR HAARDE
Fjármálaráðuneytið segir tekjur og gjöld rík-
isins í samræmi við fjárlög og fjáraukalög.
Ríkisreikningur 2003:
Hallinn á
ríkissjóði 6
milljarðar
STJÓRNMÁL Niðurstöðutölur ríkis-
reiknings fyrir árið 2003 sýna 6,1
milljarðs króna halla á rekstri ríkis-
sjóðs samanborið við 8,1 milljarðs
króna halla árið á undan. Tekjur
ársins urðu 275 milljarðar króna,
33,9% af landsframleiðslu saman-
borið við 33,3% árið 2002. Fjármála-
ráðuneytið segir að tekjubreytingin
milli ára endurspegli góða afkomu
fyrirtækja í landinu og vaxandi
kaupmátt almennings.
Gjöld ársins vvoru 281 milljarð-
ur króna eða 34,6% af landsfram-
leiðslu sem er svipað hlutfall og
á fyrra ári. Útgjöld til heil-
brigðismála, almannatrygginga og
fræðslumála vega þungt hjá ríkis-
sjóði og námu þau alls 152 milljörð-
um króna eða 54,2% af útgjöldum
ríkisins. Árið 2002 námu þessi út-
gjöld tæplega 137 milljörðum króna
eða 51,1%. Hækkunin á milli ára
nam tæplega 16 milljörðum króna
eða um 9,4% að raungildi. Útgjöld
jukust mest til almannatrygginga
en þau hækkuðu um 9,4 milljarða
króna eða 17,5% að raungildi. ■
■ MIÐ-AUSTURLÖND
Var rétt að skipa Jón Steinar
Gunnlaugsson í Hæstarétt?
Spurning dagsins í dag:
Ætti að veita undanþágu í kennara-
verkfallinu vegna fatlaðra nemenda?
Niðurstöður gærdagsins
á visir.is
67%
33%
Nei
Já
KJÖRKASSINN
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KOMNIR TIL ÍTALÍU
Á fimmta hundrað karlmenn voru um borð
í skipinu.
Ólöglegir innflytjendur:
400 komu
til Ítalíu
ÍTALÍA, AP Rúmlega 400 ólöglegir
innflytjendur komu á land á
Lampedusa, lítilli ítalskri eyju
nærri Sikiley. Innflytjendurnir
voru komnir víða að, sumir frá
Marokkó, aðrir frá Írak, Bangla-
desh og Palestínu. Nokkur þúsund
ólöglegir innflytjendur freista
þess ár hvert að komast til Evrópu
í gegnum Ítalíu.
Dóms- og innanríkisráðherrar
aðildarríkja Evrópusambandsins
koma saman til fundar í dag til að
ræða hugmyndir um að koma upp
búðum þar sem ólöglegir innflytj-
endur verða vistaðir meðan fjall-
að er um mál þeirra. Þýski innan-
ríkisráðherrann, Otto Schily, vill
setja slíkar búðir upp í norðan-
verðri Afríku. ■
STEFÁN LOGI SÍVARSSON Í RÉTTARSAL
Þriðja líkamsárasin sem Stefán er ákærður fyrir er gegn ungri konu. Stefán segist ekkert
muna vegna áfengis- og vímuefnaneyslu en hann neitar árásinni þar sem hann hafi aldrei
lagt hendur á konur.
Krefst fjögurra
ára fangelsis
Sækjandi krefst þess að Stefán Logi Sívarsson verði dæmdur í fjögurra ára
fangelsi fyrir þrjár líkamsárásir. Verjandi hans vill að tekið verði tillit til erf-
iðrar æsku. Kvöldsögur föður Stefáns hafi verið um ofbeldi og drykkju.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
LÖGREGLA Einn enn hefur verið
handtekinn og úrskurðaður í
gæsluvarðhald í tengslum við
eitt stærsta fíkniefnamál síðustu
ára. Maðurinn sem er um þrítugt
var handtekinn í fyrradag og úr-
skurðaður í tveggja vikna gæslu-
varðhald síðar sama dag.
Nú eru alls sjö í gæsluvarð-
haldi vegna málsins, fimm á
Íslandi og tveir í Hollandi. Beðið
hefur verið um framsal annars
mannanna í Hollandi en ekki er
ljóst hvort orðið verður við
beiðninni. Ásgeir Karlsson, hjá
fíkniefnadeild lögreglunnar í
Reykjavík, segir rannsóknina
enn vera í fullum gangi og verði
áfram.
Upphaf málsins má rekja
til þess þegar þrjú kíló af
amfetamíni og nokkuð af kókaíni
fannst í vörusendingu í Detti-
fossi í mars. Í framhaldinu
fannst mikið magn af am-
fetamíni í vörusendingu í skipinu
í júlí. Heimildir blaðsins herma
að það hafi verið um átta kíló. Þá
fundust tvö þúsund skammtar af
LSD í póstsendingu. ■
PYNTAÐIR VIÐ YFIRHEYRSLUR
Tveir menn sem ákærðir hafa
verið fyrir að skipuleggja tilræði
við erlenda sendimenn í Jórdaníu
neita öllum ákærum og segjast
hafa verið pyntaðir til að játa á
sig brot. Mennirnir, annar frá
Kúvæt en hinn frá Sádi-Arabíu,
voru handteknir í byrjun júní. BRYNHILDUR ÞÓRARINSDÓTTIR
Leyndardómur ljónsins er fjórða
bók Brynhildar.
Barnabókaverðlaunin:
Leyndar-
dómur
ljónsins vann
VERÐLAUN Brynhildur Þórarinsdóttir
hlaut í gær Íslensku barnabókaverð-
launin fyrir bók sína Leyndardómur
ljónsins en verðlaunaafhending fór
fram í Þjóðmenningarhúsinu.
Dómnefnd var sammála um að
handritið bæri af öðrum sem send
voru inn í keppnina og í áliti hennar
segir meðal annars að um sé að ræða
dularfulla og spennandi sögu, þar
sem höfundi takist að koma lifandi
og skemmtilega lýsingu á samfélagi
krakka í skólabúðum úti á landi.
Leyndardómur ljónsins er fjórða
bók Brynhildar en hún gaf út sína
fyrstu bók, Lúsastríðið, árið 2002.
Síðan þá hafa komið út tvær bækur
eftir hana, Njála og Egla, sem eru
endurritun á Njálssögu og Egils-
sögu. ■
Dettifossmálið:
Enn einn í haldi
JOHN ASHCROFT DÓMSMÁLARÁÐHERRA
Bandaríkjastjórn hefur verið gagnrýnd fyrir að ganga of nærri mannréttindum með þjóð-
ræknislögunum. Ashcroft segir þau hins vegar nauðsynleg í baráttunni gegn hryðjuverkum.