Fréttablaðið - 01.10.2004, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 01.10.2004, Blaðsíða 27
Smáauglýsingar byrja í dag á bls. 8 Flokkar & fjöldi Bílar & farartæki 67 stk. Keypt & selt 29 stk. Þjónusta 31 stk. Heilsa 8 stk. Skólar & námskeið 1 stk. Heimilið 13 stk. Tómstundir & ferðir 9 stk. Húsnæði 28 stk. Atvinna 26 stk. Tilkynningar 7 stk. 299* 399 *Algengt verð í matvöruverslunum * ar gu s – 0 4- 05 60 Útivistarvörur á útsölu BLS. 5 Góðan dag! Í dag er föstudagurinn 1. október, 275. dagur ársins 2004. Reykjavík 7.46 13.16 18.45 Akureyri 7.33 13.01 18.28 Heimild: Almanak Háskólans Sólarupprás Hádegi Sólarlag Túnfiskur hefur ekki verið algengur réttur á borðum Íslendinga hingað til nema mauk- aður í majónessalötum. Túnfiskur er hins vegar annað og meira og auðvelt að búa til úr honum alls kyns eðalrétti. Lárusi Gunnari Jónassyni, matreiðslu- manni í Sjávarkjallaranum, finnst allt of lítið um að fólk eldi túnfisk heima hjá sér en Sjávarkjallarinn hefur verið með túnfisk á matseðlinum frá upphafi og hann hefur notið mikilla vinsælda. „Nú er hægt að fá túnfiskinn frosinn í flestum verslunum í 180-200 gramma pakkningum,“ segir Lárus. „Það er alls ekk- ert erfitt að matreiða fiskinn, aðalatriði er að meðhöndla hann rétt, passa að elda hann sama dag og hann er þíddur, steikja lítið og krydda mikið. Mér finnst til dæmis gott að nota kóríander og ávextir passa mjög vel með til að gefa honum suðrænan blæ.“ Lárus segir af og frá að sjóða túnfiskinn, heldur beri að steikja hann eða grilla. „Hann er líka ofboðslega ljúffengur hrár, og hentar sérlega vel í sushi og sashimi. Ég nota hann mikið þegar ég held matarboð heima og þá ýmist sem forrétt eða aðalrétt. En hann er líka alveg tilvalinn hversdags.“ Lárus gefur sér tíma til að elda fyrir okkur túnfisk og uppskriftin fylgir hér á eftir. Annars er Lárus, sem ber titilinn mat- reiðslumaður ársins, á leið til Þýskalands á Ólympíuleika matreiðslumeistara með ís- lenska landsliðinu. „Við förum eftir mánuð og erum á fullu að undirbúa okkur. Við verðum að sjálf- sögðu landi og þjóð til sóma og stefnum á að toppa níunda sætið sem við hlutum síðast,“ segir Lárus. ■ Auðvelt að elda: Túnfiskur spari og hversdags tilbod@frettabladid.is Heilsárdekk af gerðunum Zhone og Eurowun eru á tilboði hjá Bílkó á Smiðjuvegi. „Þetta eru toppvörur sem við höfum góða reynslu af og hafa rokselst,“ segir af- greiðslumaður á staðnum. Hann segir Zhone-dekkin fást með og án nagla en Eurowun séu heilsárs- dekk. Lækkunin nemur 30-35% eftir stærðum og gerðum. Stafrænar myndavélar af gerðinni Konica eru nú á tilboði hjá Sjónvarpsmiðstöðinni í Síðu- múla. Þær eru nettar og hleðsluraf- hlaða og hleðslutæki fylgja með. Um fjórar týpur er að ræða og er verðið frá 19.990 upp í 44.990 eftir punktafjölda og öðrum tækni- legum mismun. Mest lækkun er á ódýrustu vélinni. Hún lækkar úr 29.990 í 19.990 eða um 30%. AEG þvottavél og þurrkari seljast nú saman á sérstöku tilboði hjá Bræðrunum Ormsson í Lág- múla, samtals á 147.000. Þvotta- vélin er hljóðlát og sparneytin og kostar 80.000, sem er afmælistil- boð er hefur gilt síðustu misseri. Þurrkarinn er barkalaus með ló- sigti og þéttibúnaði. Hann var áður á 83.763 fer nú niður í 67.000. Vélarnar eru sérframleidd- ar fyrir íslenskan markað og því er stjórnborðið allt á íslensku og einnig ítarleg hand- bók. Nánari upplýsing- ar eru á www.orms- son.is Lagersala á skóm og fötum með merkjum eins og Ecco, Blend, Ree- bok og Gas er um helgina að Guðríðarstíg 4-6 í Grafarholtinu, húsinu sem merkt er „Bolur & Margt smátt“. Opið er í dag frá 16 til 19, á morgun frá 12 til 18 og á sunnudag frá 13 til 16. Húsgögn eftir hinn þekkta hönn- uð Le Corbusier eru seld með 15% afslætti um þessar mundir í versluninni Mirale á Grensásvegi. Varan er öll sérpöntuð og má reik- na með sjö vikna afgreiðslutíma. Hægt er að semja um dreifingu á greiðslum í allt að þrjú ár og þær eru vaxta- lausar í allt að sex mánuði. Lárus Gunnar Jónasson matreiðslumeistari segir ekkert mál að elda túnfisk. Smáauglýsingar á 995 kr. visir.is SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 Liggur í loftinu Í TILBOÐUM FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA TILBOÐ TÍSKA NEYTENDUR o.fl. Þú getur pantað smáauglýsingar á www.visir.is KRÍLIN Til hvers eru drullupollar ef það má ekki hoppa svolítið í þeim? Forréttur (4 manns): HRÁEFNI: 500-600 g af túnfisk (frá Snæ- fiski) 150 g súrsað engifer 150 ml japönsk sojasósa Wasabi (til í túpum), eftir smekk Söl Ferskt kóríander Sjávargras Alfalfa baunaspírur Chilisulta (uppskrift) 1 krukka Tandoori-mauk (Hag- kaup) AÐFERÐ: Túnfiskur er tekinn hrár og velt upp úr tandoori-maukinu. Steikt- ur á pönnu eða grillaður í 1-2 sekúndur á öllum fjórum hliðun- um. Þá skorinn í fallegar sneiðar (4-5 á mann). Klakinn settur í skál og fiskinum raðað fallega á klakann. Sojasósa og chilisulta bornar fram með ásamt engifer og wasabi. Skreytt með alfalfa- baunaspírum, sjávargrasi, sölum og kóríander. Chilisulta: 20 g engifer 5 stk. skalottlaukur 8 geirar hvítlaukur 4 stk. rauður chili 1 stk. lemongrass 100 g sykur 100 ml hvítvín 100 ml mirin (sætt sake) 100 ml sake AÐFERÐ: Allt grænmeti er skrælt eða pillað. Skorið fínt, steikt í potti. Sykrinum bætt út í ásamt vökvanum. Soðið niður þangað til vökvinn er horfinn. Sett í mixer og maukað. Sett í skál og gefið með. Túnfisk-sashimi „on the rocks“ [ í tandoori með chilisultu og sojasósu ]
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.