Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.10.2004, Qupperneq 47

Fréttablaðið - 01.10.2004, Qupperneq 47
FÖSTUDAGUR 1. október 2004 35 Hljóðfærahúsið Laugavegi 176 105 Reykjavík www.hljodfaerahusid.is info@hljodfaerahusid.is Sími 525 5060 Hljóðfærahúsið og Trommustúdíóið kynna Tveggja vikna trommunámskeið hefst þann 4. október n.k. Kennarar eru Gulli Briem og Jóhann Hjörleifsson. Þátttakendur fá nýja kennslubók á íslensku, trommukjuða og geisladisk. Námskeiðið samanstendur af einkatímum, hóptímum og samspili. Upplýsingar og skráning í síma 661 9011 og í Hljóðfærahúsinu sími 525 5060. Trommuleikur frá byrjun - nýja kennslubókin eftir Gulla og Jóhann er einnig fáanleg stök og kostar kr. 2.590,- Bókinni fylgir geisladiskur. Kenns lubóki n Tromm uleiku r frá byr jun fylgir ö llum tr ommu settum ! Premier Cabria án diska. Alvöru trommusett. Frá 79.900 kr. Tilboð á trommusettum og fylgihlutum! Trommuvörur frá flottustu framleiðendum í heimi! BIKAR Á LOFT Eiríkur Önundarson, fyrir- liði ÍR-inga, lyftir hér Reykjavíkurmeist- arabikarnum í gær. Fréttablaðið/Pjetur ÁFRAM Í ÁRBÆNUM Þorlákur Árnason mun stýra Fylkisliðinu áfram næsta sumar. Reykjavíkurmót karla í körfu: ÍR meistari KÖRFUBOLTI ÍR-ingar tryggðu sér Reykjavíkurmeistaratitilinn í kör- fubolta í gær þrátt fyrir að tapa 95–93, fyrir Fjölni í Grafarvogi. ÍR, Fjölnir og KR urðu öll jöfn með sex stig en ÍR-ingar höfðu betur út úr innbyrðisviðureignum liðanna þriggja. Eiríkur Önundarson, fyrirliði ÍR-ingar, spilaði aðeins í seinni hálfleik vegna meiðsla en var allt í öllu þær 13 mínútur sem hann spilaði og skoraði á þeim 15 stig. Ómar Sævarsson átti einnig frábæran dag hjá ÍR en hann skoraði 24 stig, tók 9 fráköst, gaf 5 stoðsendingar og varði 4 skot en næstur honum í stigaskorun kom Danny McCall með 16 stig, Eiríkur skoraði 15 og Ólafur Þórsson var með 12 stig, öll úr þriggja stiga skotum í þriðja leikhluta þegar ÍR vann upp 12 stiga forskot Fjölnis frá því í hálfleik þegar Fjölnir leiddi 51–39. ÍR mátti tapa með fjórum stigum og þeir náðu muninum niður fyrir það í blálokin. Darrel Flake átti algjöran stórleik hjá Fjölni, skoraði 41 stig, tók 11 fráköst og gaf 7 stoðsendin- gar, Pálmar Ragnarsson var með 17 stig og Nemanja Sovic bætti við 16 stigum og 8 fráköstum. ■ SIGUR HJÁ STÚDÍNUM Signý Hermanns- dóttir skoraði 14 stig í gær. Reykjavíkurmót kvenna í körfu: Titillinn til ÍS KÖRFUBOLTI Stúdínur vörðu Reykja- víkurmeistaratitlinn í körfubolta sinn með því að vinna 12 stiga sigur á KR, 51–39, í seinni leik liðanna í KR-heimilinu en ÍS vann 34 stiga sigur í fyrri leiknum og mátti því tapað leiknum með 33 stigum. ÍS hafði 12 stig yfir í hálf- leik, 26–14. Alda Leif Jónsdóttir, fyrirliði ÍS, fór fyrir sínu liði með 21 stig, Signý Hermannsdóttir skoraði 14 stig og þær Hafdís Helgadóttir og Þórunn Bjarnadóttir voru með 6 stig hvor. Hjá KR skoraði Lilja Oddsdóttir 11 stig og Halla Jóhannsdóttir var með 9 en Helga Þorvaldsdóttir lék þarna sinn fyrsta leik fyrir félagið eftir meira en barnsburðarársleyfi. ■ Fylkismenn ganga frá þjálfaramálum sínum fyrir næsta sumar í Landsbankadeildinni: Þorlákur verður áfram í Árbæ HANDBOLTI Þorlákur Árnason verður áfram við stjórnvölinn hjá Fylkismönnum en hann tók við stjórn liðsins síðastliðið haust. Þor- lákur gerði þriggja ára samning sem er uppsegjanlegur á hverju ári. Undir stjórn hans enduðu Fylk- ismenn í fjórða sæti Landsbanka- deildarinnar eftir að hafa verið í efsta sætinu um tíma. Ásgeir Ás- geirsson er formaður meistara- flokksráðs Fylkis og hann var ánægður með að samningurinn væri nú í höfn og segir Fylkismenn binda miklar vonir við störf hans. „Þetta snérist fyrst og fremst um að staðfesta áframhaldið, það var gagnkvæmur vilji beggja aðila að halda samstarfinu áfram. Það eina sem kom í veg fyrir að samn- ingurinn væri staðfestur fyrr var að Þorlákur fór snögglega í ferð til útlanda, í smá frí, og það náðist einfaldlega ekki að klára málið áður en hann fór. Það var því bara formsatriði að ganga frá samningnum. Við höfum verið mjög ánægðir með hans störf og erum bjartsýnir á framhaldið hér í Árbænum,“ sagði Ásgeir Ás- geirsson. Þorlákur Árnason var áður við stjórnvölinn hjá Val og hefur einn- ig verið yfirþjálfari yngri flokka hjá Skagamönnum. ■ Góð frammistaða í Þýskalandi Á skotskónum HANDBOLTI Logi Geirsson skoraði 8 mörk þegar lið hans, Lemgo, bar sigurorð af 2. deildarliði Gens- ungen í bikarkeppninni, 39-23. Svissneska stórskyttan, Marc Baumgartner, var meiddur og því fékk Logi tækifæri í skyttustöð- unni. Annar Íslendingur, Guðjón Valur Sigurðsson, var einnig at- kvæðamikill, en hann skoraði 6 mörk þegar lið hans, Essen, tapaði fyrir Gummersbach, 29-30, og er því úr leik í bikarnum. ■
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.