Fréttablaðið - 03.10.2004, Page 10

Fréttablaðið - 03.10.2004, Page 10
11SUNNUDAGUR 3. október 2004 Franski kvikmyndaleikstjórinn Jean-Jacques Annaud er stadd- ur á Íslandi til þess að kynna nýjustu mynd sína, Two Brothers, sem verður frumsýnd í Reykjavík í lok mánaðarins. Ferill Annauds er glæsilegur en hann á að baki jafn ólíkar mynd- ir og Enemy at the Gates, með Jude Law; Seven Years in Tibet, með Brad Pitt í aðalhlutverki; Elskhugann, Nafn Rósarinnar, Björninn og síðast en ekki síst Leitina að eldinum sem hann gerði árið 1981 og fjallaði um, eins og nanfið bendir til, leit frummanna að eldinum. Annaud þótti Ísland henta vel sem umhverfi fyrir heim frummannanna og hugðist taka myndina hér. „Ég þekki Ísland mjög vel og tel óhætt að fullyrða að ég þekki hvern einasta veg á landinu.Ég kom hingað örugglega 20-30 sinnum á sínum tíma. Við byggðum girðingar fyrir fílana okkar við Heklurætur og ætluð- um að taka myndina hér. Við lentum svo í heimskulegu leik- araverkfalli í Los Angeles sem seinkaði okkur um mánuð þannig að við urðum að hætta við Ísland. Okkur hefði einfald- lega ekki gefist tími til að flytja fílana hingað, ljúka tökum og koma þeim til baka á tilskyldum tíma.“ Annaud segist hafa fundið vel fyrir íslenskri gestrisni á meðan hann undirbjó tökurnar. „Við leigðum hús af fólki sem bjó í grennd við Þórsmörk og svo sendum við fólkið til Karabíska hafsins í mánuð og ætluðum að búa í húsunum á meðan. Við gát- um svo ekki notað húsin en vor- um að fá bréf frá þessu fólki árum saman þar sem það var að minna okkur á að við ættum inni hjá þeim dvöl í húsunum þeirra. Þetta voru mér gríðarleg von- brigði þar sem ég hafði fundið afskaplega fallega tökustaði. Ég er yfir mig ástfanginn af land- inu ykkar og fallega landslaginu og ég hefði svo gjarnan viljað gera bíómynd hérna. Ég vona bara að ég eigi eftir að fá tæki- færi til þess.“ ■ Ætlaði að flytja fíla til Íslands JEAN-JACQUES ANNAUD Er staddur á Íslandi til að kynna Two Brothers en ætlar að nota tækifærið til að heimsækja aftur staðina sem hann hugðist nota í Leitina að eldinum og ætlar um leið að sýna eiginkonu sinni fegurð Íslands. AFMÆLI Sigmar B. Hauksson, matgæðingur með meiru, er 54 ára í dag. Tolli, myndlistarmaður, er 51 árs. ANDLÁT Hjálmar Sveinsson, fyrrum bóndi á Syðra-Vatni, Efribyggð, Skagafirði, síðast til heimilis á Norðurgötu 60, Akureyri, lést 28. september. Gunnar Karl Gunnarsson, Bæjarholti 13, Laugarási, Biskupstungum, lést af slysförum 30 september. Jarðarförin verður auglýst síðar. Tómas Guðmundsson, Hrafnistu, Hafn- arfirði, síðast til heimilis á Austurvegi 16, Grindavík, lést 30. september. Benjamín Magnús Sigurðsson, frá Eyj- um, Strandasýslu, Engihjalla 11, Kópa- vogi, lést 30. september. Páll Kristjánsson, Lönguhlíð 20, Bíldu- dal, lést 1. október. NÝJAR BÆKUR JPV útgáfa hefur sent frá sér skáldsög- una Ellefu mínútur í þýðingu Guðbergs Bergssonar. Ellefu mínútur er nýjasta skáldsaga Paulo Coelho en áður hefur Alkemistinn komið út á íslensku. Þegar Paulo Coelho sneri aftur á hótel sitt eftir að hafa sótt ráðstefnu á Ítalíu árið 1999 beið hans handrit. Þetta var ævisaga brasilísku vændiskonunnar Soniu. Frásögnin heillaði Coelho og eftir miklar rannsóknir og heimildaleit varð Ellefu mínútur til og hefur hún nú verið þýdd á meira en 39 tungumál. Ellefu mínútur segir frá Maríu, ungri brasilískri stúlku, sem er tilfinningalega niðurbrotin eftir reynslu sína af fyrstu ástinni. Hún er á viðkvæmum aldri og sannfærist um að hún muni aldrei finna sanna ást og að henni fylgi ekkert nema þjáning, vonbrigði og kvöl. Hún fer til Genfar þar sem hana dreymir um að verða fræg og rík en verður þess í stað vændiskona. Í Genf fjarlægist María ástina æ meira um leið og hún verður heltekin af kynlífi. Þegar hún kynnist myndarlegum, ung- um listamanni fer verulega að reyna á hugmyndir hennar um ástina. María þarf að velja á milli kynlífs, kynlífsins vegna, og að taka þá áhættu að finna ljósið innra með sjálfri sér. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P JE TU R

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.