Fréttablaðið - 03.10.2004, Blaðsíða 20
17SUNNUDAGUR 3. október 2004
Trésmiðir
Vegna aukinna verkefna framundan viljum við ráða til starfa trésmiði. Um er að
ræða framkvæmdir við stækkun Norðuráls og framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli.
Möguleikar á húsnæði fyrir trésmiði af landsbyggðinni. Upplýsingar um störfin og
umsóknareyðublöð eru á skrifstofu Ístaks, Engjateigi 7 og í síma 530 2700 á skrif-
stofutíma milli 8:15 og 17.
Sjá einnig heimasíðu Ístaks www.istak.is þar sem hægt er að ná í eyðublöð og
senda.
Í Hafnarfirði búa um 21 þúsund manns. Bærinn stendur í fallegu
umhverfi hrauns og kletta. Hafnarfjörður hefur þá bæjarsál sem
einkennir búsetu við sjó og státar um leið af hagkvæmni stærðar-
innar og staðsetningar í jaðri höfuðborgarsvæðisins. Það er gott að
búa og starfa í Hafnarfirði.
Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar
Leikskólakennarar
Arnarberg
( s. 555 3493, arnarberg@ismennt.is)
Leikskólakennara vantar nú þegar að leikskólanum
Arnarbergi. Í skólanum er megináhersla lögð á kenningar
John Dewey, heimspeki, slökun og könnunarleikinn.
Allar upplýsingar veitir leikskólastjóri, Oddfríður Jónsdóttir en
umsóknarfrestur er til 10. okt.
Samkvæmt jafnréttisreglum Hafnarfjarðar eru karlar jafnt
sem konur hvattir til að sækja um starfið.
Fræðslustjórinn í Hafnarfirði
ÍÞRÓTTAFULLTRÚI
Íþróttafélag í Reykjavík óskar eftir að ráða full-
trúa. Í boði er áhugavert og fjölbreytilegt fram-
tíðarstarf fyrir aðila sem að vill vinna að íþrótta-
málum.
Starfssvið
• Skipulagning á íþróttaþjálfun og félags
starfi.
• Samstarf við skóla, frístundamiðstöðvar,
ÍTR, ÍBR og önnur félagssamtök.
• Markaðssetning íþrótta í hverfi félagsins.
• Rekstur íþróttaskóla.
Hæfniskröfur
• Íþróttakennari, íþróttafræðingur eða sam
bærileg menntun æskileg
• Leikni í mannlegum samskiptum, forystu
hæfileikar og frumkvæði
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is
fyrir 9. október n.k.
Frekari upplýsingar veitir Baldur G. Jónsson, net-
fang baldur@hagvangur.is
Laus störf
Óskum eftir að ráða gott fólk, leikskólakennara
eða leiðbeinendur til starfa við einkaleikskólann
Fossakot. Um er að ræða framtíðarstörf. Góður
starfsandi og skemmtileg vinnuaðstaða í vel
búnum leikskóla þar sem unnið er með mikil-
vægasta fólki í heimi eftir mannræktarstefnu
leikskólanna.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðríður í síma 586
1838 kl 10-17 daglega.
Leikskólarnir Fossakot og Korpukot eru einkareknir.
Báðirleikskólarnir eru reknir með sömu áherslum
þar sem unnið er samkvæmt aðalnámskrá og nám-
skrá leikskólanna Fossa- og Korpukots. Draga má
saman meginmarkmið og stefnu leikskólanna í eft-
irfarandi:
Markmið leikskólanna er að skila til þjóðfélagsins
námsfúsum og lífsglöðum einstaklingum með já-
kvætt viðhorf til samfélagsins. Einstaklingum með
sterka sjálfsmynd og heilbrigða siðferðiskennd. Ein-
staklingum með virðingu fyrir sjálfum sér, samfélag-
inu og náttúrunni.
Viðkomandi þyrfti að hefja störf sem fyrst
Meiraprófsbílstjórar
Olíudreifing ehf. sér um dreifingu á fljótandi
eldsneyti fyrir Olíufélagið ehf. og Olíuverzlun Íslands hf.
Félagið hefur starfað frá 1. janúar 1996
Sjá nánari upplýsingar um fyrirtækið á www.oliudreifing.is
Olíudreifing ehf. óskar eftir að ráða starfsmann við
starfsstöðvar sínar í Grindavík og Borgarnes/Reykjavík.
Viðkomandi þarf að hafa meirapróf. Æskilegt er að
viðkomandi sé með ADR réttindi, en ekki skilyrði.
Starfið stendur jafnt til boða báðum kynjum.
Starfssvið:
Grindavík: Afgreiðsla og dreifing á
fljótandi eldsneyti og öðrum vörum
Borgarnes/Reykjavík: Mjólkursöfnun
Allar nánari upplýsingar veitir:
Þorsteinn Guðmundsson í síma 550-9937
Olíudreifing ehf. óskar eftir að ráða starfsmann
við starfsstöð sína í Reykjavík.
i andi þarf að h fa meirapróf.
Æs ilegt er að vi komandi sé með ADR réttindi,
en það er ekki skilyrði.
Starfið stendur jafnt til boða báðum kynjum.
Starfssvið: Afgreiðsla og dreifing á fljótandi eldsneyti
og öðrum vörum.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Auðunn Birgisson í síma 550-9900
Reykjavík