Fréttablaðið - 03.10.2004, Side 20

Fréttablaðið - 03.10.2004, Side 20
17SUNNUDAGUR 3. október 2004 Trésmiðir Vegna aukinna verkefna framundan viljum við ráða til starfa trésmiði. Um er að ræða framkvæmdir við stækkun Norðuráls og framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli. Möguleikar á húsnæði fyrir trésmiði af landsbyggðinni. Upplýsingar um störfin og umsóknareyðublöð eru á skrifstofu Ístaks, Engjateigi 7 og í síma 530 2700 á skrif- stofutíma milli 8:15 og 17. Sjá einnig heimasíðu Ístaks www.istak.is þar sem hægt er að ná í eyðublöð og senda. Í Hafnarfirði búa um 21 þúsund manns. Bærinn stendur í fallegu umhverfi hrauns og kletta. Hafnarfjörður hefur þá bæjarsál sem einkennir búsetu við sjó og státar um leið af hagkvæmni stærðar- innar og staðsetningar í jaðri höfuðborgarsvæðisins. Það er gott að búa og starfa í Hafnarfirði. Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar Leikskólakennarar Arnarberg ( s. 555 3493, arnarberg@ismennt.is) Leikskólakennara vantar nú þegar að leikskólanum Arnarbergi. Í skólanum er megináhersla lögð á kenningar John Dewey, heimspeki, slökun og könnunarleikinn. Allar upplýsingar veitir leikskólastjóri, Oddfríður Jónsdóttir en umsóknarfrestur er til 10. okt. Samkvæmt jafnréttisreglum Hafnarfjarðar eru karlar jafnt sem konur hvattir til að sækja um starfið. Fræðslustjórinn í Hafnarfirði ÍÞRÓTTAFULLTRÚI Íþróttafélag í Reykjavík óskar eftir að ráða full- trúa. Í boði er áhugavert og fjölbreytilegt fram- tíðarstarf fyrir aðila sem að vill vinna að íþrótta- málum. Starfssvið • Skipulagning á íþróttaþjálfun og félags starfi. • Samstarf við skóla, frístundamiðstöðvar, ÍTR, ÍBR og önnur félagssamtök. • Markaðssetning íþrótta í hverfi félagsins. • Rekstur íþróttaskóla. Hæfniskröfur • Íþróttakennari, íþróttafræðingur eða sam bærileg menntun æskileg • Leikni í mannlegum samskiptum, forystu hæfileikar og frumkvæði Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is fyrir 9. október n.k. Frekari upplýsingar veitir Baldur G. Jónsson, net- fang baldur@hagvangur.is Laus störf Óskum eftir að ráða gott fólk, leikskólakennara eða leiðbeinendur til starfa við einkaleikskólann Fossakot. Um er að ræða framtíðarstörf. Góður starfsandi og skemmtileg vinnuaðstaða í vel búnum leikskóla þar sem unnið er með mikil- vægasta fólki í heimi eftir mannræktarstefnu leikskólanna. Allar nánari upplýsingar veitir Guðríður í síma 586 1838 kl 10-17 daglega. Leikskólarnir Fossakot og Korpukot eru einkareknir. Báðirleikskólarnir eru reknir með sömu áherslum þar sem unnið er samkvæmt aðalnámskrá og nám- skrá leikskólanna Fossa- og Korpukots. Draga má saman meginmarkmið og stefnu leikskólanna í eft- irfarandi: Markmið leikskólanna er að skila til þjóðfélagsins námsfúsum og lífsglöðum einstaklingum með já- kvætt viðhorf til samfélagsins. Einstaklingum með sterka sjálfsmynd og heilbrigða siðferðiskennd. Ein- staklingum með virðingu fyrir sjálfum sér, samfélag- inu og náttúrunni. Viðkomandi þyrfti að hefja störf sem fyrst Meiraprófsbílstjórar Olíudreifing ehf. sér um dreifingu á fljótandi eldsneyti fyrir Olíufélagið ehf. og Olíuverzlun Íslands hf. Félagið hefur starfað frá 1. janúar 1996 Sjá nánari upplýsingar um fyrirtækið á www.oliudreifing.is Olíudreifing ehf. óskar eftir að ráða starfsmann við starfsstöðvar sínar í Grindavík og Borgarnes/Reykjavík. Viðkomandi þarf að hafa meirapróf. Æskilegt er að viðkomandi sé með ADR réttindi, en ekki skilyrði. Starfið stendur jafnt til boða báðum kynjum. Starfssvið: Grindavík: Afgreiðsla og dreifing á fljótandi eldsneyti og öðrum vörum Borgarnes/Reykjavík: Mjólkursöfnun Allar nánari upplýsingar veitir: Þorsteinn Guðmundsson í síma 550-9937 Olíudreifing ehf. óskar eftir að ráða starfsmann við starfsstöð sína í Reykjavík. i andi þarf að h fa meirapróf. Æs ilegt er að vi komandi sé með ADR réttindi, en það er ekki skilyrði. Starfið stendur jafnt til boða báðum kynjum. Starfssvið: Afgreiðsla og dreifing á fljótandi eldsneyti og öðrum vörum. Allar nánari upplýsingar veitir: Auðunn Birgisson í síma 550-9900 Reykjavík

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.