Fréttablaðið - 16.10.2004, Side 2
2 16. október 2004 LAUGARDAGUR
Fjórir menn ákærðir af Ríkissaksóknara:
Reyndi að smygla
15 kílóum af hassi
DÓMSMÁL 22 ára maður er ákærður
af Ríkissaksóknara fyrir innflutn-
ing á samtals fimmtán kílóum af
hassi í þremur skipaferðum frá
Danmörku frá júní í fyrra þar til í
janúar á þessu ári. Þrír menn eru
ákærðir fyrir að hafa staðið að
innflutningnum að hluta með
manninum. Málið var þingfest í
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
Maðurinn er sagður hafa sett
tvö kíló af hassi í varadekk bíls og
flutt til landsins með Norrænu í
júní á síðasta ári. Efnin á hann að
hafa afhent einum mannanna sem
ákærðir eru með honum. Sá af-
henti þriðja manninum 1,2 kíló til
sölu en á sjálfur að hafa selt hálft
kíló. Maðurinn á aftur að hafa
keypt hass ytra, nú fimm kíló, og
komið þeim fyrir í fjórum hjól-
börðum sem hann sendi einum
fjórmenninganna með Dettifossi.
Sá tók á móti efnunum og fór með
þau í íbúð í Hraunbæ þar sem
fjórmenningarnir bjuggu allir
saman á þeim tíma. Enn og aftur
er maðurinn sagður hafa farið
utan og keypt nær átta kíló af
hassi. Hassið á hann að hafa falið
í fjórum hjólbörðum sem hann
sendi einum fjórmenningana, þá
með Goðafossi. Sá sem fékk efnin
send sótti þau í vöruafgreiðslu
Eimskips en var handtekinn af
lögreglu skömmu síðar. -hrs
Telja samkeppnis-
brotin vera fyrnd
Olíufélögin halda því fram að meint brot á samkeppnislögum á rúmlega
sjö ára tímabili af níu sem Samkeppnisstofnun rannsakar séu fyrnd.
Dómurinn í grænmetismálinu er sagður styðja staðhæfingu olíufélaganna.
OLÍUFÉLÖGIN Olíufélögin halda því
fram að stærsti hluti meintra
brota þeirra á samkeppnislögum
sem Samkeppnisstofnun hefur
rannsakað síðan 2001 sé fyrndur,
samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins. Olíufélögin eru sökuð um
ólöglegt verðsamráð á tímabilinu
1993-2001.
Um er að ræða þann hluta hinna
meintu brota sem framinn var
fyrir 26. maí 2000, en þá var hegn-
ingarlögum breytt og fyrningar-
tímabil lengt í fimm ár úr tveimur
árum.
„Fyrningarfrestur samkeppnis-
brota sem framin eru fyrir 26. maí
2000 er því tvö ár, en fimm ár eftir
það tímabil,“ segir Þórunn Guð-
mundsdóttir lögmaður.
Eitt það
helsta sem olíu-
félögin deila
við Samkeppn-
isstofnun um er
hvenær fyrn-
i n g a r f r e s t u r
rofnar. Olíu-
félögin segja að
S a m k e p p n i s -
stofnun haldi
því fram að
fyrningarfrest-
urinn hafi verið rofinn við húsleit
Samkeppnisstofnunar í desember
2001. Olíufélögin halda því hins
vegar fram að fyrningarfrestur
verði ekki rofinn fyrr en Sam-
keppnisráð úrskurði í málinu. Er
þetta þýðingarmikið atriði því ef
dómstólar telja að olíufélögin hafi
rétt fyrir sér munu samkeppnisyf-
irvöld ekki hafa heimild til að sekta
olíufélögin vegna meintra brota
sem framin voru fyrir 26. maí 2000.
Það eru sjö ár af þeim átta sem
Samkeppnisstofnun rannsakar.
Olíufélögin telja að einungis
verði hægt að beita sektum vegna
meintra brota sem framin voru á
tímabilinu 27. maí 2000 og þar til
húsleit Samkeppnisstofnunar fór
fram, í desember 2001, eða í um
eitt og hálft ár. Þá halda olíufélög-
in því fram að á því tímabili hafi
ekki verið um neina brotastarf-
semi að ræða.
Þórunn rak mál Mata í græn-
metismálinu svokallaða, þar sem
Sölufélagið, Ágæti og Mata voru
dæmd fyrir ólöglegt samráð. Hún
bendir á að deilt hafi verið um
fyrningu málsins en Hæstiréttur
hafi staðfest að fyrningarfrestur
rofni ekki fyrr en Samkeppnisráð
saki fyrirtæki um brot á sam-
keppnislögum. Dómur Hæstarétt-
ar er í samræmi við það sem olíu-
félögin halda fram, að stærsti hluti
hinna meintu samkeppnisbrota
olíufélaganna sé fyrndur.
Talið er að úrskurður Sam-
keppnisráðs muni liggja fyrir eftir
um þrjár vikur.
sda@frettabladid.is
Fíkniefnasmygl:
Einn enn
handtekinn
LÖGREGLUMÁL Maður á fimmtugs-
aldri var handtekinn á fimmtu-
dagsmorgun og úrskurðaður í
tveggja vikna gæsluvarðhald í
gær. Handtakan var í tengslum
við rannsókn á umfangsmiklu
fíkniefnasmygli hingað til lands
þar sem fíkniefnum var smyglað í
tveimur sendingum með Detti-
fossi auk þess sem um tvö þúsund
e-töflum var smyglað til landsins í
pósti.
Sex manns eru nú í haldi lög-
reglu vegna málsins. Tveir til við-
bótar voru einnig handteknir en
þeim var síðar sleppt úr haldi.
- hrs
MÓTMÆLT Í KAUPMANNAHÖFN
Leiðsöguhundar og hvítir stafir voru áber-
andi frammi fyrir þinghúsinu í Kaup-
mannahöfn.
Mótmæli:
Blindir í
kröfugöngu
KAUPMANNAHÖFN, AP „Danmörk
getur kannski stært sig af því að
bjóða upp á eitt besta velferðar-
kerfi í heimi en það nær ekki til
blindra,“ sagði Jens Bromann,
formaður landssambands blindra
í Danmörku, þegar um 500 blindir
einstaklingar fóru í mótmæla-
göngu í Kaupmannahöfn. Göngu-
menn studdust við leiðsöguhunda
og hvítu stafina sína þegar þeir
gengu saman inn á Ráðhústorg.
Fólkið krafðist aðgerða stjórn-
valda til að rétta hlut sinn. Níu af
hverjum tíu blindum Dönum eru
atvinnulausir og samfélagið huns-
ar blinda, sögðu mótmælendur. ■
NÝ FJARSKIPTAMIÐSTÖÐ Komið
hefur verið upp nýrri fjarskipta-
miðstöð og aðstöðu fyrir Neyðar-
línuna á lögreglustöðinni á Akur-
eyri. Miklar endurbætur hafa
verið unnar á stöðinni að undan-
förnu og í gær var haldið upp á
að framkvæmdum er lokið. Björn
Bjarnason dómsmálaráðherra
opnaði nýju fjarskiptamiðstöðina.
■ LÖGREGLUFRÉTTIR■ EVRÓPA
„Hann er á plötunni með Sálinni
hans Jóns míns.“
Steingrími Ólafssyni blaðamanni var boðið að
taka við ritstjórn Mannlífs en afþakkaði sökum
lítillar löngunar og skorts á neista.
SPURNING DAGSINS
Steingrímur, hvar er draumurinn?
Sólbakssamningur fyrir
félagsdóm:
Vilja heimild
til verkfalls
KJARAMÁL Framkvæmdastjórn Sjó-
mannasambands Íslands ákvað á
fundi í gær að fara með Sólbaks-
samninginn svokallaða fyrir
Félagsdóm.
Sjómannasambandið telur að
samningurinn brjóti í bága við
gildandi kjarasamning milli Sjó-
mannasambandsins og Landssam-
bands íslenskra útvegsmanna og
freistar þess að fá hann dæmdan
ógildan. Jafnframt ákvað stjórnin
að kalla samninganefnd sam-
bandsins saman eins fljótt og unnt
er til að fara yfir stöðuna í kjara-
viðræðunum við Landssamband
íslenskra útvegsmanna og fá
heimild til að undirbúa atkvæða-
greiðslu um verkfall til að knýja á
um lausn deilunnar. ■
Klerkar í Falluja hvetja til friðsamlegrar andspyrnu gegn Bandaríkjaher:
Hvöttu til friðsamlegrar andstöðu
ÍRAK, AP Klerkar í Falluja hvöttu
landsmenn í gær til friðsamlegrar
andstöðu gegn Bandaríkjamönnum
um allt Írak ef þeir reyndu að
brjóta andspyrnu gegn þeim á bak
aftur. Yfirlýsing klerkanna var les-
in upp í moskum víða í Írak.
Bandarískar herflugvélar vörp-
uðu sprengjum á Falluja í gær, degi
eftir að ráðamenn í bænum drógu
sig út úr friðarviðræðum við írösku
bráðabirgðastjórnina. Þær viðræð-
ur strönduðu á kröfu stjórnvalda
um að bæjarbúar handsömuðu jórd-
anska hryðjuverkamanninn Abu
Musab al-Zarqawi og framseldu
hann í hendur stjórnvöldum.
Að sögn vitna í Falluja handtóku
bandarískir hermenn helsta samn-
ingamann bæjarbúa, íslamska
klerkinn Khaled al-Jumeili, þegar
hann yfirgaf mosku í nágrenni
Falluja eftir bænahald.
Hinn helgi mánuður múslima,
Ramadan, hófst í gær. Í fyrra hófu
íraskir uppreisnarmenn miklar
árásir um það leyti en undanfarið
hafa íraskar og bandarískar her-
sveitir ráðist í herferð gegn upp-
reisnarmönnum til að minnka líkur
á slíkum árásum.
Tíu manns létust þegar bíl-
sprengja sprakk nærri lögreglu-
stöð í Bagdad. ■
STJÓRNIN HÉLT VELLI Pólska rík-
isstjórnin stóð af sér vantrausts-
ályktun sem borin var fram í
þinginu í gær. 234 þingmenn
lýstu trausti á stjórnina en 218
vantrausti. Ríkisstjórnin er innan
við hálfs árs gömul en mikið at-
vinnuleysi og deilur um veru her-
manna í Írak hafa leitt til óvin-
sælda hennar.
DETTIFOSS
Ein sendingin á að hafa komið með Detti-
fossi en hinar tvær með Norrænu og
Goðafossi.
HERFERÐINNI MÓTMÆLT
Fjöldi Bagdadbúa mótmælti herferð Bandaríkjahers og íraskra öryggissveita gegn
uppreisnarmönnum.
OLÍUFÉLÖGIN ERU SÖKUÐ UM ÓLÖGLEGT VERÐSAMRÁÐ
Olíufélögin halda því fram að meintar sakir Samkeppnisstofnunar um verðsamráð þeirra
á milli séu fyrndar.
ÞÓRUNN
GUÐMUNDSDÓTTIR
ÁTÖK Á HAFNARBAKKA
Forystumenn sjómanna börðust gegn
sérsamningi Brims við áhöfn Sólbaks í
síðustu viku.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI