Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.10.2004, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 16.10.2004, Qupperneq 16
Harald Ólafsson veðurfræð-ing þekkja flestir lands-menn af sjónvarpsskján- um en óhætt er að segja að hann hafi fikrað sig eftir nýjum braut- um að undanförnu. Þegar verkfall grunnskólakennara skall á fyrir tæpum mánuði setti Haraldur á laggirnar Hávallaskóla en þar kennir hann börnum sínum og vinum þeirra ýmsar námsgreinar, sérstaklega stærðfræði og íslensk ljóð. Haraldur er fæddur í Reykjavík árið 1965, sonur hjónanna Þóreyjar Kol- beins og Ólafs Einars Ólafssonar veður- fræðings, en þau eru bæði látin. Harald- ur ólst upp í höfuð- borginni í samfél- agi við systur sín- ar tvær og var að sögn kunnugra skemmtilegt og forvitið barn. Eins og títt er um slíka drengi var hann nokkuð uppátækjasam- ur og hvatvís en mikill ljúf- lingur. Harald- ur gekk í Menntaskó l - ann við Hamra- hlíð og vann fyr- ir sér á sumrin við bílasprautun. Þótti hann svo efni- legur í faginu að vinnu- veitendur hans sendu hann á námskeið í Englandi til að nema fræð- in. Það átti hins vegar ekki eftir að liggja fyrir Haraldi að vinna á verkstæðum heldur fetaði hann í fótspor föður síns og skráði sig til náms í veðurfræðum í Osló. Þaðan hélt hann til Toulouse í Frakk- landi þar sem hann lauk dokt- orsprófi í faginu árið 1996. Næstu árin starfaði hann á Veðurstofu Íslands en frá ár- inu 1999 hefur hann kennt við raunvísindadeild Háskóla Ís- lands þar sem hann gegnir stöðu prófessors. Haraldur er kvæntur Eddu Einarsdóttur arki- tekt og eiga þau fjögur börn. Engum dylst að Haraldur er af- burðagreindur maður og hæfi- leikaríkur á mörgum sviðum. „Ég held að það séu ekki margir sem standa honum framar í faginu en það eru heldur ekki margir sem slá honum við í tungumálum,“ segir gamall félagi hans á Veður- stofunni en Haraldur talar reiprennandi norsku, sænsku, dönsku, þýsku, frönsku og ensku. Sami félagi sagðist eitt sinn hafa verið staddur með Haraldi á al- þjóðlegri samkomu sjónvarpsveð- urfræðinga og allt í einu rann það upp fyrir honum að Haraldur ræddi við nánast hvern einasta mann á hans þjóðtungu. „Ég hafði búið í Svíþjóð í fjögur ár og gat rétt stautað mig fram úr málinu en Haraldur sem hafði dvalið í Noregi talaði sænskuna eins og innfæddur.“ Við þetta má svo bæta að maðurinn leikur ágæt- lega á píanó. Að sögn vinar Har- aldar er hann helst fyrir klassíska tónlist en þó fóru þeir saman á tónleika þýsku þungarokkssveit- arinnar Rammstein um árið. Þrátt fyrir kurteislegt yfir- bragðið á sjónvarpsskjánum hef- ur Haraldur ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum sem hann er ófeiminn við að gera kunnar. Frægt er þegar Haraldur sagði í veðurfréttum vorið 1999 að vel viðraði til loftárása en þá stóðu loftárásir NATO á Belgrad sem hæst. Eitt af lögum hljómsveitar- innar Sigurrósar dregur nafn sitt af þessari athyglisverðu veður- spá. Samferðamönnum hans ber saman um að hann sé mikill frið- arsinni án þess þó að vera sér- staklega flokkspólitískur. „Það er svolítil kratalykt af honum en hann gæti alveg verið týpan í að mæta á kjörstað og skila auðu,“ segir vinnufélagi hans til margra ára. Á sömu spýtu hangir áhugi Haraldar á mennta- og uppeldis- málum. Fyrir tæpu ári gagnrýndi hann stærðfræðikennslu grunn- skólanema sem hann líkti við myglað mjöl. Taldi hann að menn hefðu misst sjónar á upprunalegum mark- miðum kennslunn- ar og varaði við að haldið yrði áfram á sömu braut. Spunnust heit- ar umræður um málið í samfélaginu og þótti ýms- um Haraldur ganga hart fram. Heim- i l d a m e n n Fréttablaðs- ins voru s a m m á l a um að þetta sé helsti galli Har- aldar, að hann geti verið „upp- tjúnaður“ og ágengur við þá sem ekki eru hon- um sammála. Að öðru leyti ber þeim sem þekkja Harald Ólafsson sam- an um að hann sé skemmtilegur maður sem gaman sé að vera samvistum við. „Hann er reyndar nörd, en það má segja um flesta í þessu fagi,“ segir góður félagi hans. Starfsorka hans virðist óþrjótandi og hann kemur miklu í verk á skömmum tíma, „en ekki er hann stimpil- klukkuhestur,“ segir sam- starfsmaður á Veðurstof- unni. Svo hefur hann líka kímnigáfuna í lagi þó að hún sé í lúmskari kantinum. Þótt enginn efist um áhuga hans á uppeldismálum telja sumir að Há- vallaskóli sé öðrum þræði stofn- aður í hálfgerðri kerksni eða til að ögra. Ljóðakennslan í Hávalla- skóla (sem samkvæmt Haraldi „má vallakallaskóla“) virðist í það minnsta vera skemmtileg eins og eftirfarandi erindi úr Baráttu- söng kennara ber með sér, en ljóð- ið, sem má syngja við „Það er leik- ur að læra“ sömdu starfsmenn og nemendur skólans. Upp með framtíðar-fána, fylgjum Eiríki glöð. syngum „Öxar við ána“ allir fram nú í röð! FRÁ RITSTJÓRN GUÐMUNDUR MAGNÚSSON 16. október 2004 LAUGARDAGUR HÓTEL ÖRK sími 483 4700 20. 26. og 27. nóvember - 3. 4. 10. og 11 desember - www.hotel-ork.is DAGBLAÐIÐ VÍSIR 234. TBL. – 94. ÁRG. – [LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 2004] VERÐ KR. 295 D V -M Y N D H A R I Fyrrum Inga Sólveig Friðjónsdóttirgiftist Bubba Morthens ungþrátt fyrir mikla andstöðusinna nánustu. Árin með Bubba voru eng-inn dans á rósum ogþau slitu samvistum þegar Bubbi var á hátindineyslu sinnar. Inga er virt-ur ljósmyndari sem hefurþurft að berjast á mörgumvígstöðvum. Bls. 10-12 Forræðisdeilan,kókaínið og krabbameinið kona Bubba Stjörnurnar lifa ekki af poppinuSelja pylsur og auglýsingar Bls. 24 Forræðisdeilan, kókaínið og krabba- meinið MAÐUR VIKUNNAR Fjöltyngdur friðarsinni HARALDUR ÓLAFSSON VEÐURFRÆÐINGUR Um aðsendar greinar til blaðsins Frá og með deginum í dag tekur Fréttablaðið eingöngu við að- sendu efni til birtingar á skoðanasíðum blaðsins ef það berst rafrænt um netmiðil okkar Vísi. Veffangið er visir.is. Á for- síðu Vísis er smellt á „Skoðanir“ efst í vinstra horni síðunnar og þegar komið er inn á „Skoðanir“ er smellt á borða ofarlega á síðunni sem merktur er „Senda inn efni til Fréttablaðsins og Vísis: Lesendabréf – Greinar“. Birtast þá nánari leiðbeiningar. Við hvetjum lesendur til að senda okkur línu og leggja orð í belg um málefni líðandi stundar og efni Fréttablaðsins og netmiðilsins Vísis þar sem lífleg þjóðfélagsumræða fer fram. Greinar og bréf skulu vera stutt og gagnorð enda segir reynslan okkur að þannig nái efni mestri athygli. Við það er miðað að bréf séu ekki lengri en 1.000 slög með bilum og greinar ekki lengri en 3.000 slög með bilum. Ljósmynd af höf- undi þarf að fylgja öllum greinum. Ritstjórn ákveður hvort aðsent efni birtist í Fréttablaðinu eða Vísi eða í báðum miðl- unum að hluta eða í heild. Áskilinn er réttur til nauðsynlegra leiðréttinga og til að stytta efni áður en að birtingu kemur. Slíkt er aðeins gert í undantekningartilvikum og þá jafnan í samráði við höfunda. ■ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /T EI KN : H EL G I S IG - H U G VE R K A. IS
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.