Fréttablaðið - 16.10.2004, Page 24
Kraftur, sem er stuðningsfélag
fyrir ungt fólk með krabbamein
og aðstandendur, er 5 ára nú í
október og fagnar afmælinu með
göngu kl. 14 í dag undir yfirskrift-
inni „Göngum sólarmegin“, þar
sem gengið verður frá Hallgríms-
kirkju niður að Ingólfstorgi og
1.000 blöðrum verður þar sleppt.
„Athöfnin er táknræn fyrir þá við-
leitni okkar að sleppa taki af ótt-
anum sem við og ættingjar okkar
fyllumst þegar við greinumst,“
segir Daníel Reynisson, formaður
Krafts, sem sjálfur greindist með
krabbamein fyrir um fimm árum
en hefur sigrast á meininu. „Með-
an við erum lifandi eigum við að
lifa lífinu og láta ekki óttann
stjórna því hvernig við lifum eftir
að við greinumst,“ segir Daníel
brosandi. Eftir gönguna verður
fólki boðið í kaffi og kleinur í ráð-
húsinu þar sem meðal annars
verður dregið í happdrætti en
happdrættismiðum verður dreift
við Hallgrímskirkju fyrir göng-
una á meðan birgðir endast.
Eitt af markmiðum Krafts
segir Daníel vera að aðstoða ungt
fólk sem greinist með krabba-
mein og aðstandendur með allar
þær grunnupplýsingar sem eru
þeim nauðsynlegar. „Við erum
ekki mikið að veita þær upplýs-
ingar sem fólk fær frá læknum
og hjúkrunarfólki heldur hvernig
fólk á að bera sig að í kerfinu þeg-
ar lífið tekur óvænta stefnu. Það
getur tekið mikinn tíma og orku
frá manni að þeytast á milli staða
í leit að upplýsingum og vildum
við því koma þeim öllum á einn
stað,“ segir Daníel en félagið gaf
út bókina Lífskraftur þar sem all-
ar þessar upplýsingar eru teknar
saman. Bókina er hægt að nálgast
á uppflettanlegu formi á heima-
síðu Krafts á slóðinni kraftur.org.
„Afurðin af okkar grunnvinnu er
í þessari bók en með því að hafa
hana á netinu getum við sífellt
uppfært upplýsingarnar,“ segir
Daníel og bendir á að félagið veiti
einnig sálfélagslegan stuðning
sem ekki er síður mikilvægur.
„Fólk getur hringt til okkar eða
sent okkur tölvupóst og bjóðum
við fólki að hitta annan einstak-
ling sem hefur þurft að kljást við
krabbamein, og leitumst jafnvel
við að finna einhvern sem greind-
ist á svipuðum aldri við svipaðar
aðstæður,“ segir Daníel, sem
sjálfur fékk að hitta slíkan ein-
stakling. „Hann stóð þarna fyrir
framan mig brosandi með lítið
barn og konuna sína og ég sá að
lífið sem beið hans var frábært.
Þetta gerði mikið fyrir mig og
sýndi mér að reynslan skiptir svo
miklu máli,“ segir Daníel.
Kraftur er með hjálparsíma
866 9600.
kristineva@frettabladid.is
24 16. október 2004 LAUGARDAGUR
Taki sleppt af óttanum
KRAFTUR: SLEPPIR BLÖÐRUM Á 5 ÁRA AFMÆLINU
timamot@frettabladid.is
TIM ROBBINS
Þessi eðalleikari er 46 ára í dag.
„Allir menn deyja en þeir lifa hins
vegar ekki allir.“
- Tim Robbins veit sínu viti og vill að fólk lifi lífinu lifandi.
DANÍEL REYNISSON Davíð er formaður Krafts sem fagnar 5 ára afmæli sínu, en sjálfur
greindist hann með krabbamein fyrir um 5 árum. Hann sigraðist á meininu og nýtir nú
krafta sína til aðstoðar ungu fólki sem greinist með krabbamein og aðstandendum þess.
!"#
$!
#%&
'
#!
!
"
!
" # #
!
$ " # #
!
% " # #
)
" !
!
#
%%
!
'
# $
!
"
%*
!
$
!'
!
'$ %
+!
"
'
,
&
'(
)&!!*(
Sérstakar þakkir færum við læknum, hjúkrunarfólki og Rósu djákna á gjör-
gæsludeild Landspítalans við Hringbraut fyrir alla þeirra aðstoð og nærgætni.
Einnig viljum við þakka Séra Pálma Matthíassyni fyrir einstaka athöfn og tón-
listarfólki fyrir yndislegan og einlægan flutning. Guð blessi ykkur öll og fylgi.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur stuðning,
samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför ástkærrar
móður minnar, tengdamóður, dóttur, systur, mágkonu
og ömmu
Helgu Leifsdóttur
Trönuhjalla 19, Kópavogi
Ingibergur Sigurðsson, Íris Kristjánsdóttir, Steinunn Gísladóttir,
Hulda Leifsdóttir, Bjarni Pálsson, Hafdís Leifsdóttir, Sigurbjörn
Sigurðsson, Anton G. Ingibergsson, Kristján A. Írisarson, Valgerður Ýr
Ásgeirsdóttir og aðrir ástvinir.
Innilegar þakkir til ykkar allra sem sýndu okkur
stuðning, samúð, hlýhug og vináttu við andlát
og útför
Halldóru Ingu Ingólfsdóttur
Lyngbrekku 1, Kópavogi
Sigurður K. Ragnarsson, Ásta Salný Sigurðardóttir,
Viðar Snær Sigurðsson, Sonja Erna Sigurðardóttir,
Tómas Guðmundsson, barnabörn og fjölskyldur.
sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri miðvikudaginn
13. október, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn
19. október kl. 11.00.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Sigurlaug Jóhannsdóttir
Huldugili 56, Akureyri,
Snæborg Stefánsdóttir, Bragi Stefánsson, Jónas Stefánsson, Sigrún
Kristjánsdóttir, Fjóla Stefánsdóttir, Valur Sigurjónsson, barnabörn
og barnabarnabörn.
Íslandsbanki, Skákfélagið Hrók-
urinn og Húsdýragarðurinn
standa í vetur fyrir mótaröð fyrir
krakka í 1. til 10. bekk. Teflt verð-
ur í einum opnum flokki en verð-
launað í eftirtöldum þremur
flokkum: 1.-3. bekkur, 4.-6. bekkur
og 7.-10. bekkur.
Fyrsta mótið hefst á morgun í
veitingatjaldinu í Húsdýragarðin-
um. Mótið hefst klukkan 13 á
sunnudaginn en mæting er á milli
12 og 12.40.
Fyrirkomulagið er með þeim
hætti að fyrst fara fram þrjú stiga-
mót, eitt í mánuði og munu 6
krakkar úr hverjum flokki tryggja
sér rétt til að tefla á úrslitamóti
þar sem fyrstu verðlaun eru ferð
fyrir tvo til Kaupmannahafnar.
Eftir áramót hefst svo önnur syrpa
með sama fyrirkomulagi.
Íslandsbanki og Hrókurinn
verðlauna einnig þau sem lenda í
1., 2. eða 3. sæti á öllum stigamót-
um sem haldin verða í Húsdýra-
garðinum í vetur. Einnig verða
viðurkenningar fyrir mætingu og
framfarir, og á hverju móti verð-
ur happdrætti.
Keppendur fá ókeypis í Hús-
dýragarðinn en foreldrar og for-
ráðamenn greiða aðgangseyri.
Tekið er við skráningum á net-
fanginu hrokurinn@hrokurinn.is
eða í síma 844 1295. Vinningar
fyrir verðlaunahafa og í happ-
drætti á mótinu á sunnudaginn
koma frá Eddu, Hróknum og
Húsdýragarðinum. ■
KRAKKASKÁK Það verður teflt í Húsdýra-
garðinum í allan vetur.
Skák í Húsdýragarðinum AFMÆLIPétur Pétursson, fyrrverandi þulur, er
86 ára.
Guðbergur Bergsson rithöfundur er 72
ára.
Ólafur Mixa læknir er 65 ára.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir al-
þingiskona er 55 ára.
ANDLÁT
Bergþóra Benediktsdóttir, Hlíðarhús-
um 3-5, Reykjavík, lést 13. október.
Sigurbjörg M. Benediktsdóttir, Hraun-
bæ 103, Reykjavík, lést 13. október.
JARÐARFARIR
11.00 Guðmundur Sveinbjörnsson, frá
Sölvanesi, verður jarðsunginn frá
Goðdalakirkju.
14.00 Ármannía Kristjánsdóttir, Aðalgötu
56, Ólafsfirði, verður jarðsungin
frá Ólafsfjarðarkirkju.
14.00 Friðrik Stefánsson, Hvanneyrar-
braut 2, Siglufirði, verður jarð-
sunginn frá Siglufjarðarkirkju.
14.00 Klara E. Hansen, Bókhlöðustíg 17,
Stykkishólmi, verður jarðsungin
frá Stykkishólmskirkju.
14.00 Sigurður Jónsson, Reynistað,
Skagafirði, verður jarðsunginn frá
Reynistaðarkirkju.
14.00 Sigurgeir Bóasson, Heiðmörk 16,
Hveragerði, verður jarðsunginn frá
Hveragerðiskirkju.
Á þessum degi árið 1793, níu
mánuðum eftir að Loðvík XVI
Frakklandskonungur var líflátinn,
fylgdi drottning hans, Marie
Antoinette, honum í fallöxina.
Loðvík og Marie Antoinette
gengu í hjónaband árið 1770
en ráðhagnum var ætlað að
strykja samband Frakklands og
Austurríkis. Þegar kreppti veru-
lega að í efnahag Frakklands og
almenningur svalt heilu hungri
lifði Marie Antoinette hátt og
hvatti eiginmann sinn ein-
dregið til þess að sporna við
umbótum í ríkinu. Hún hafði
litla samúð með alþýðunni og ummæli hennar um að lýðurinn
gæti bara étið kökur fyrst hann ætti ekki brauð eru alræmd.
16. OKTÓBER 1793 Byltingar-
menn tóku Marie Antoinette af lífi.
ÞETTA GERÐIST
Drottningin í fallöxina
Tilkynningar um andlát og jarðarfarir eru
velkomnar á síður Fréttablaðsins.
Sími: 550 5000