Fréttablaðið - 16.10.2004, Síða 26
26 16. október 2004 LAUGARDAGUR
Það eru liðin tvö ár frá því aðÞórunn Antónía Magnúsdótt-ir flutti til Bretlands eftir að
hafa undirritað plötusamning við
BMG-útgáfuna. Hún ákvað að
freista gæfunnar og fór út með
tvær hendur tómar. Það var svo í
gegnum upptökustjórana The
Away Team sem hún komst í sam-
band við lagahöfundinn Wayne
Murray. Saman mynda þau dúett-
inn The Honeymoon í dag. Fyrsta
breiðskífa þeirra, Dialogue, kom
svo út í Bretlandi fyrir skemmstu,
og svo loks á Íslandi í vikunni.
„Ég hitti The Away Team þegar
þeir voru að vinna að fyrstu plötu
Leaves á Íslandi. Við urðum góðir
vinir og vorum að grínast með það
að vinna saman, Svo fékk ég sím-
tal frá þeim og ég kom hingað.
Þeir stungu upp á því að ég og
Wayne færum í hljóðver saman í
viku og sjá hvað myndi gerast,“
segir Þórunn.
Þetta var ást við fyrstu laga-
smíð, og dúettinn The Lovers varð
til. Undir því nafni spiluðu þau
sína fyrstu tónleika saman á
Airwaves-hátíðinni í fyrra. Önnur
sveit átti tilkall til nafnsins og þau
neyddust til þess að skipta yfir í
The Honeymoon, og undir því
nafni spila þau á Listasafni
Reykjavíkur á hátíðinni, á laugar-
daginn í næstu viku.
Tónlist dúettsins er mjög
minimalísk, oftast samansett af
einföldu gítarspili og lítillátum
töktum. Raddir þeirra beggja eru
hárfínar og sykursætar. Nafn
sveitarinnar The Honeymoon gef-
ur þannig ágætismynd af tónlist-
inni. Í Bretlandi eru þau markaðs-
sett sem undarlegt par, sem örlög-
in leiddu saman. Jafnvel kynning-
armynd sem gerð var um sveitina
sýnir þetta, hvernig Þórunn fer
frá snævi þöktu Íslandi yfir til
Bretlands. Útkoman er eins og
blanda af pólskri kvikmynd, úr
smiðju Kieslowski, og danskri
sjónvarpsmynd. Tvöfalt líf Þór-
unnar?
„Þórunn er alveg bókað mál
hrifin af mér,“ segir Wayne og
þau hlæja bæði. „Þetta varð bara
að brandara á milli okkar. Við
höfum þekkst lengi núna, en það
hafa aldrei verið neistar á milli
okkar. Við erum ekki alveg eins
og systkini. Við erum nánari en
vinir, en við erum ekki elskend-
ur.“
Í þessari fyrstu samstarfsviku
þeirra sömdu þau meðal annars
nokkur af þeim lögum sem svo
enduðu á plötunni. Þar á meðal
fyrstu smáskífuna Passive
Agressive sem verður gefin út
snemma á næsta ári.
Það voru tískublöðin sem
kveiktu fyrst á The Honeymoon í
Bretlandi. Eftir að platan kom út
hafa þau fengið mjög blíðar við-
tökur í blöðum á borð við Arena
og The Face. Verstu dómanna
fengu þau hins vegar í NME, sem
er þekkt fyrir harðneskju.
Það er svolítið erfitt að stað-
setja The Honeymoon á tónlistar-
kortinu. Þau búa bæði yfir sykur-
sætum poppmelódíum sem hefur
gefið þeim færi á að hita upp fyr-
ir tónlistarmenn á borð við Nelly
Furtado og Darren Hayes. En
samt er eitthvað svalt við tónlist-
ina líka, eins og hún sé smíðuð
fyrir kvikmyndir.
„Það getur oft verið stærsti
Akkilesarhæll tónlistarmanna
hér í Bretlandi ef pressan á erfitt
með að skilgreina tónlistina. Þá
verða sjálfstæðu blöðin varari
um sig og vilja síður skrifa um
sveitirnar. Popppressan verður
svo vör um sig af því að þeir
halda kannski að við séum of
mikið út á kantinum,“ segir
Wayne að lokum, greinilega
búinn undir alla möguleika.
Brúðkaupsferðin er þó bara
rétt að byrja og líklega verða þau
á tónleikaferðalagi út árið.
Snemma á næsta ári ætti svo lag-
ið þeirra Passive Agressive að
poppa upp í sjónvarpi og útvarpi
víðs vegar um heim. ■
ÞÓRUNN ANTÓNÍA OG WAYNE MURRAY Mynda saman dúettinn The Honeymoon,
eftir að þau urðu að skilja við nafnið The Lovers.
Hveitibrauðsdagarnir eru rétt að byrja
Mazda3 T 5HB 1,6 l kostar a›eins 1.795.000 kr.
Aukahlutir á mynd: álfelgur og flokuljós
Mazda3
– margver›launa›ur bíll á ótrúlegu ver›i
H
im
in
n
o
g
h
a
f
-
9
0
4
0
4
7
0
Fyrsta breiðskífa
Þórunnar Antóníu
Magnúsdóttur og
Wayne Murray,
Dialogue, kom út í
Bretlandi fyrir
skemmstu. Þau
segjast vera nánari
en vinir, en samt
ekki elskhugar.
Birgir Örn
Steinarsson hitti þau
í London og ræddi
um ástina og líf
tónlistarmanna í
Bretlandi.