Fréttablaðið - 16.10.2004, Síða 28
Ef þú hyggur á að selja bílinn þinn, þrífðu hann þá frá toppi til
táar til að auka líkur á sölu. Skiptu um olíu, rúðuþurrkur og
settu góðan ilm í kaggann. Hann hlýtur að seljast þannig.
Range Rover HSE 4,4
árg 7/2002 ekin 44 þús km svartur abs, orginal dráttarbeisli, litað
gler,handfrjáls símabúnaður,leður í öllu, 19“ álfelgur. Bíll hlaðin búnaði
Verð: 8.900,000,-
Ný 1 lína frá BMW:
Bíll fyrir unga
fólkið
Nýja 1 línan frá BMW verður frumsýnd
hjá B&L um helgina. Nýja 1 línan er
fyrsti fimm dyra bíllinn frá BMW en
hingað til hafa þeir eingöngu verið með
fjögurra dyra útgáfur í hönnun sinni.
Þetta er þó ekki eina nýjungin sem
BMW boðar með 1 línunni. Til að koma
á móts við markhópinn, ungt fólk, er
bíllinn með tengi fyrir iPod, litla MP3
spilarann frá Apple. Þá kemur línan
með margvíslegum búnaði sem ekki
hefur sést áður í flokki smærri fjöl-
skyldubíla. Má þar nefna stöðugleika-
stýringuna sem er með spólvörn og
run-flat öryggisdekkjum, en á þeim er
hægt að keyra allt að 250 km þótt
springi. Verð á nýju BMW 1 línunni er
frá 2.490.000 kr.
Nú styttist í að ný lög um olíu-
gjald og kílómetragjald o.fl. taki
gildi, eða 1. júlí á næsta ári. Við
gildistöku laganna lækkar þunga-
skattur sem eigendur dísilbíla
hafa greitt og með því getum við
Íslendingar tekið af fullum þunga
þátt í þeirri dísilbílabylgju sem
gengur yfir heiminn. Dísilbílar
eru í tísku. Það sést meðal annars
á því að að stöðugt fleiri nettir
fólksbílar fást nú í dísilútgáfu.
Dísilvélarnar eru líka í framþró-
un og það er liðin tíð að dísilbílar
séu hávaðasamir og illa lyktandi.
Þeir eru þvert á móti umhverfis-
vænn kostur sem æ fleiri velja.
Einn hinna minni fjölskyldu-
bíla sem nú fást í dísilútgáfu er
Volkswagen Golf, bíllinn sem
notið hefur mestrar velgengni
allra þýskra bíla og var kynntur í
nýrri útgáfu í vor. Skemmst er
frá að segja að það klæðir
Golfinn vel að vera dísilbíll.
Golfinn er massífur bíll miðað
við stærð og passar því malandi
dísilvélin einstaklega vel við
hann. Bíllinn er lipur og sprækur
og sjötti gírinn er óneitanlega
skemmtileg viðbót á lengri
akstri. Golfinn er þægilegur
borgarbíll, einn af þeim sem eru
stærri að innan en utan. Hann er
því nettur í innanbæjarakstri án
þess að það komi niður á plássinu
inni í bílnum þar sem vel fer um
alla, jafnvel fullorðna í aftursæt-
inu. Úti á þjóðveginum nýtur
hann sín ekki síður, liggur vel og
er öruggur og skemmtilegur á
veginum.
Volkswagen Golf dísil er
skemmtilegur fjölskyldubíll.
Ekki spillir fyrir að hann er spar-
neytinn kostur, fór til dæmis
hringinn á þjóðvegi 1 í sumar á
vegum FÍB á rúmlega fjórum
lítrum á hundraði.
steinunn@frettabladid.is
Ekið um á Volkswagen Golf dísil:
Bíll í takti við tímann
Nýi Golfinn sem kynntur var í vor hefur sterklegt og skemmtilegt útlit.
Volkswagen Golf 1,9TDI
5 dyra Trendline
beinskiptur 6 gíra
105 hestöfl
4 cylendra dísilvél
hröðun upp í 80 km/klst. 7,5 sek.
hámarkshraði 187 km/klst.
meðaleyðsla 5,2 l/100 km
verð 2.290.000 kr.
ALLT Á EINUM STAÐ
• HEILSÁRSDEKK
• OLÍS SMURSTÖÐ
• BÓN OG ÞVOTTUR
• HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
• NAGLADEKK
• RAFGEYMAÞJÓNUSTA
• BREMSUKLOSSAR
• PÚSTÞJÓNUSTA
SBD, SÆTÚNI 4, SÍMI 562 6066
25% afsláttur af 12" og 16" barnahjólum á meðan
birgðir endast. Sendum í póstkröfu.
Smiðjuvegi 8 (græn gata) 200 Kópavogur
HAUSTTILBOÐ
Öryggis-
hurðir
B Í L S K Ú R S
OG IÐNAÐAR H U RÐ I R
Smíðað
eftir máli
Hurðir til
á lager
Eldvarnar-
hurðir
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
Full búð af aukahlutum á bílinn þinn
Ný verslun Kletthálsi 9
Nú opið á Laugardögum frá 12 - 16
www.ag-car.is/motorsport s: 587 5547
- mest lesna blað landsins
Á ÞRIÐJUDÖGUM
Allt fyrir líkama og sál
Auglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is