Fréttablaðið - 16.10.2004, Side 39

Fréttablaðið - 16.10.2004, Side 39
LAUGARDAGUR 16. október 2004 Banvænn rafstraumur HVERNIG DREPUR RAF- STRAUMUR LIFANDI VEF? SVAR: Rafstraumur getur valdið minniháttar skaða í lifandi vefj- um en einnig verið banvænn. Þeg- ar straumur hleypur gegnum lík- amann myndast hiti og staðbund- in skemmd verður í vefjum sem er í raun brunadrep. Raflost, það er að segja mikill straumur í snöggu höggi af völdum há- spennu, getur líka orðið mönnum að fjörtjóni. Hvort heldur um er að ræða aftöku í rafmagnsstóln- um, lost af eldingu eða rafstuð úr leiðslu eða biluðu rafmagnstæki er það rafstraumurinn eftir lík- amsvefjunum sem veldur skaðan- um og getur leitt til dauða við ákveðin skilyrði. Til þess að svo verði þarf líkaminn að verða hluti straumrásar úr leiðara í leiðara eða í jörð. Þetta er útskýrt frekar á Vísindavefnum í svari við spurningunni Hvers vegna geta fuglar setið á háspennuvír án þess að fá raflost? Rök húð - meiri skaði Rafstraumsskaði í vefjum verður með ýmsum tilbrigðum eftir kringumstæðum. Skaðinn ræðst einkum af straumstyrk, stærð snertiflatar, eðli straumsins (rið- straumur eða jafnstraumur), lengd tímans sem straumurinn varir og leið hans gegnum lík- amann. Straumstyrkurinn ákvarð- ast síðan af spennunni milli stað- anna þar sem straumurinn fer inn í líkamann og út úr honum. Ólík- legt er að spenna sem er minni en um það bil 20 volt valdi skemmd- um en 220 voltin sem algeng eru í húsum geta valdið skaða. Ekki er þó alveg sama hver spennugjaf- inn er því að straumurinn verður mestur ef innra viðnám hans er lítið eins og yfirleitt er í spennu- gjöfum sem ætlað er að skila miklu afli eða afköstum. Einnig verður straumurinn meiri ef húð- in er rök því að þá verður hann fyrir minna viðnámi á leið sinni inn í húðina og út úr henni. Riðstraumur er skaðlegri en jafnstraumur Tvær ástæður eru einkum til þess að riðstraumur er skaðlegri en jafnstraumur miðað við sömu spennu, og byggjast báðar á því að í riðstraumnum sveiflast raf- hleðslan fram og aftur í stað þess að berast stöðugt í sömu átt. Í fyrsta lagi getur riðstraumurinn inni í líkamanum orðið meiri en ella af því að rafhleðslur myndast á víxl innan við húðina í stað þess að fara gegnum hana. Í öðru lagi hafa sveiflur riðstraumsins meiri truflandi áhrif á taugaboð og heilastarfsemi en jafnstraumur. Straumurinn hefur brunaáhrif á líffæri sem hitna við það að taka við varmaorkunni á sama hátt og ýmsir hlutir í umhverfi okkar hitna þegar rafstraumur fer um þá. Mesta hættan tengist þó því að starfsemi lífsnauðsynlegra vefja byggist á rafvirkni, það er að segja einhvers konar rafstraumi eða rafboðum. Þetta á meðal ann- ars við um taugavef og hjarta- vöðva, sem geta truflast af fram- andi rafstraumi, og stöðvun á starfsemi þeirra valdið dauða. Þetta á ekki síst við um riðstraum eins og áður er sagt. Ef um há- spennu er að ræða (til dæmis meiri en 1.000 volt) getur straum- urinn haft áhrif á heilastarfsemi og valdið öndunarlömun. Raf- straumur sem leiðir eftir hand- legg í brjóstkassann á leið niður eftir ganglim og í jörð getur trufl- að hjartað og valdið hjartsláttaró- reglu og leitt þannig til dauða. Vefjaskemmdir af völdum hita Skaðinn þar sem rafstraumurinn fer í gegnum hörund sést sem grá- hvítir blettir á yfirborði húðarinn- ar og einnig vottar fyrir roða. Fölvinn er vegna æðaskemmdar sem orðið hefur við hitamyndun þegar straumurinn fór gegnum húðina. Í húðinni mætir hann yfir- leitt mestu viðnámi á leið sinni og þess vegna myndast þar mestur varmi og hitun verður mest. Nán- ar tiltekið verða vefjaskemmdir af völdum hita af því að eggja- hvítuefnin sem eru meginuppi- staðan í frumum líkamans hlaupa í kökk í stað þess að vera í upp- lausn í fryminu. Frumurnar sem þannig skemmast deyja og mynda skorpu sem hreytist af eftir nokkurn tíma. Eftir situr sár sem getur leitt til óásjálegrar örmynd- unar sem kallar á lýtaaðgerðir ef sárið er til dæmis í andliti. För rafstraums í blóðríkum vefjum undir húðinni er hins vegar greið og skemmdir þar eru fátíðar nema við mikinn straumstyrk. Rafmagnsslys eru fátíð Miðað við hina miklu notkun raf- magns í lífi okkar og starfi verða slys af völdum þess að teljast blessunarlega fátíð. Rafmagns- slys verða oftast á vinnustöðum og heimilum en hér á landi hafa ekki orðið dauðsföll vegna elding- ar sem slær niður þótt slíkt sé vel þekkt í nágrannalöndum okkar. Sérstaklega er ástæða til þess að vara við því að börn stingi „raf- magnsgjafa“ í munn sér. Rök og þunn þekja varanna er góður leið- ari og rafbruni getur orðið um- talsverður með örvefsmyndun. Af þessum ástæðum er sérstök ástæða til að fara varlega með rafmagn í umhverfi barna. Gunnlaugur Geirsson, prófessor í réttarlæknisfræði við HÍ. Vísindavefurinn þakkar eðlisfræð- ingunum Þorsteini Vilhjálmssyni og Ara Ólafssyni yfirlestur og góð- ar ábendingar. VÍSINDAVEFUR HÁSKÓLA ÍSLANDS Á Vísindavef Háskóla Íslands er að finna svör við fjölmörgum spurningum um raf- magn og efni tengt því, meðal annars: Hvað er rafmagn, hvernig framleiðir hrökkáll rafmagn, er hægt að breyta örbylgjum í rafmagn og hvers vegna fær maður stund- um straum þegar stigið er út úr bíl í frosti? Hægt er að lesa svörin við þessum spurningum og fjölmörgum öðrum með því að setja efnisorð í leitarvél vefsins á slóðinni www.visindavefur.hi.is. ELDING Í nágrannalöndum okkar er það vel þekkt að dauðsföll geti orðið vegna eldingar sem slær niður.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.