Fréttablaðið - 16.10.2004, Page 46
34 16. október 2004 LAUGARDAGUR
Karl Sigurbjörnsson,
biskup Íslands, segir
að kirkjan eigi að taka
þátt í þjóðfélags-
umræðunni en óttast
að sá pólitíski rétt-
trúnaður sem ríkjandi
er í samfélaginu geti
sett henni skorður.
Sveinn Guðmarsson
ræddi við Karl um
líkurnar á aðskilnaði
ríkis og kirkju,
kirkjuþing og veikindi
í fjölskyldunni.
NAFN: Karl Sigurbjörnsson.
FÆDDUR: Í Reykjavík 5. febrúar
1947.
MENNTUN OG STÖRF: Guðfræð-
ingur frá Háskóla Íslands 1973.
Sóknarprestur í Vestmannaeyjum
1973-74. Sóknarprestur í Hallgríms-
kirkju frá 1975-98. Biskup Íslands
frá 1998.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Kvæntur Krist-
ínu Þórdísi Guðjónsdóttur og eiga
þau þrjú börn.
BÓKIN Á NÁTTBORÐINU: Faðir
Arseny en þar er sagt frá rússnesk-
um presti í gúlaginu.
MORGUNMATUR: Jógúrt og kaffi.
SÍÐASTA KVIKMYND SEM BISK-
UPINN SÁ: Shrek 2 (frábær mynd,
segir biskup).
FJÖLSKYLDUBÚGREININ: Faðir
hans, Sigurbjörn Einarsson, var
biskup í hartnær aldarfjórðung en
auk þess hafa þrír af bræðrum hans
skrýðst prestshempunni. Tengda-
sonur Karls, Sigurður Arnarsson, er
sömuleiðis prestur.
GUÐSMAÐUR
Í HÚÐ OG HÁR
Örugglega umdeildur
Það er eflaust ekki á allravaldi að gegna embættibiskups Íslands. Til fárra
eru gerðar jafn strangar kröfur
um rétta breytni og þýða lund en
jafnframt er til þess ætlast að
biskupinn sé hvort tveggja í senn
íhaldssamur og framsækinn. Svo
þarf hann að ganga í fjólublárri
skyrtu. Það er reyndar ekki að sjá
að þessi atriði valdi Karli Sigur-
björnssyni miklu hugarangri því
hann er léttur í lund á skrifstofu
sinni þar sem hann undirbýr sig
fyrir kirkjuþing sem hefst í dag.
Það er líka eitt og annað til að
gleðjast yfir.
Tvíbent staða kirkjunnar
Staða kirkjunnar er býsna sterk
ef marka má niðurstöður skoðana-
könnunar sem birtar voru í vik-
unni. Þar kom fram að ríflega
helmingur landsmanna telur Þjóð-
kirkjuna standa styrkum fótum í
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M