Fréttablaðið - 16.10.2004, Page 50

Fréttablaðið - 16.10.2004, Page 50
38 16. október 2004 LAUGARDAGUR Við óskum... FH-ingum hjartanlega til hamingju með 75 ára afmælið sem félagið heldur upp á í dag. Árið er búið að vera glæsi- legt hjá félaginu, knattspyrnuliðið landaði sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli og frjálsíþróttakonan Þórey Edda Elísdóttir margbætti Íslands- og Norðurlandametið í stangarstökki og hafnaði í fimmta sæti á Ólympíuleikunum í Aþenu. Til hamingju með daginn! sport@frettabladid.is HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 13 14 15 16 17 18 19 Laugardagur OKTÓBER HANDBOLTI Íslandsmeistarar Hauka í handknattleik mættu franska liðinu Créteil í öðrum leik sínum í Meistaradeildinni í gærkvöld en leikið var í Frakklandi. Hið unga lið Hauka bar enga virðingu fyrir franska liðinu og veitti því harða keppni allt til loka. Það vantaði aftur á móti herslumuninn hjá Haukunum og þeir hófu enda- sprettinn of seint og töpuðu leikn- um, 34-31. Engu að síður ágæt frammistaða hjá Hafnfirðingum gegn sterku frönsku liði en þeir geta mun betur en þeir sýndu í gær. Haukarnir mættu gríðarlega vel stemmdir til leiks og skoruðu tvö fyrstu mörkin. Leikurinn jafn- aðist fljótlega í kjölfarið en Frakkarnir tóku forystuna í leikn- um um miðbik hálfleiksins. Það gátu þeir að stóru leyti þakkað ísraelskum dómurum leiksins sem drógu taum heimamanna lengi vel. Þeir hættu þó fljótlega heimadómgæslunni og þá komust Haukarnir í gang á nýjan leik. Með geysilegri baráttu, grimmd og vel skipulögðum sókn- arleik tóku þeir leikinn í sínar hendur á nýjan leik og leiddu með einu marki, 14-15, þegar skammt var eftir af fyrri hálfleik. Þá kom slæmur kafli hjá Haukum í anda handboltalandsliðsins og síðustu mínútur hálfleiksins voru eign Frakkanna. Þeir skoruðu fjögur síðustu mörkin og gengu til bún- ingsherbergja með þriggja marka forystu, 18-15. Haukarnir voru meira og minna í eltingarleik í síðari hálf- leik. Frakkarnir litu út fyrir að stinga af í stöðunni 27-21 en Hauk- arnir neituðu að gefast upp. Þeir áttu fínan endasprett í leiknum og voru ekki fjarri því að jafna leik- inn og leikurinn var galopinn er Haukarnir minnkuðu muninn í 32- 30. Þá stigu Frakkarnir á bensínið á ný og með hjálp ísraelsku dóm- aranna kláruðu þeir leikinn, 34-31. Það var sómi að sóknarleik Haukanna en varnarleikurinn felldi þá. Tæknifeilar í sókninni gáfu Frökkunum líka nokkur ódýr hraðaupphlaupsmörk sem reynd- ust dýr þegar upp var staðið. Andri Stefan átti stórleik hjá Haukunum og skoraði mörk í öll- um regnbogans litum. Svo sannar- lega efnilegur strákur þar á ferð sem hefur tekið stórstígum fram- förum og verður fljótlega horfinn í atvinnumennsku ef hann heldur uppteknum hætti. Þórir Ólafsson skoraði einnig falleg mörk og Birkir Ívar varði vel en tók fáa bolta þegar mest á reyndi undir lokin. Senuþjófur kvöldsins var þó Halldór Ingólfsson sem átti frá- bæra innkomu í síðari hálfleik. Hann skoraði góð mörk og lék fé- laga sína uppi hvað eftir annað og það skilaði nánast ítrekaði marki eða vítakasti. Það var reyndar svolítið skrítið að sjá hversu klaufskur Halldór var í vítaköst- unum en hann er venjulega örygg- ið uppmálað á punktinum. Þrjú vítaköst fóru í súginn og það reyndist einnig dýrt þegar upp var staðið. Mikið munaði um það hjá Haukunum að Ásgeir Örn Hall- grímsson var heillum horfinn í leiknum og skoraði ekki fyrr en tæpar þrjár mínútur voru eftir af leiknum. Það segir okkur að mikið vantaði upp á hjá Haukunum að þessu sinni og árangur liðsins í leiknum er enn betri þegar horft er til þess að þeirra besti maður var nánast ekki með allan leikinn. Þetta franska lið er síst betra en Haukar og þeir eiga vafalítið eftir að hefna tapsins á heimavelli – þeir hafa svo sannarlega getuna til þess. Mörk Hauka: Andri Stefan 9, Þórir Ólafsson 6, Halldór Ingólfs- son 6/4, Vignir Svavarsson 4, Gísli Jón Þórisson 3, Ásgeir Örn Hall- grímsson 2 og Jón Karl Björnsson 1. Birkir Ívar Guðmundsson varði 17 skot og Jónas Stefánsson 2. henry@frettabladid.is Vörnin felldi Hauka Haukar veittu franska liðinu Créteil ágæta keppni í Meistaradeildinni. Slakur varnarleikur varð þeim þó að falli á endanum. Þeir eru því stiga- lausir eftir fyrstu tvo leikina í keppninni. ■ ■ LEIKIR  14.00 Stjarnan og ÍBV mætast í Ásgarði í 1. deild kvenna í hand- bolta.  16.15 Grótta/KR og ÍR mætast á Seltjarnarnesi í suðurriðli 1. deild- ar karla í handbolta.  16.15 Víkingur og FH mætast í Víkinni í 1. deild kvenna í hand- bolta. ■ ■ SJÓNVARP  11.10 Upphitun á Skjá einum. Hitað upp fyrir enska boltann.  11.40 Enski boltinn á Skjá einum. Bein útsending frá leik Birming- ham og Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.  13.05 K-1 á Sýn.  13.40 Á vellinum með Snorra Má á Skjá einum.  14.00 Enski boltinn á Skjá einum. Bein útsending frá leik Arsenal og Aston Villa í ensku úrvals- deildinni í fótbolta.  14.00 Íslandsmótið í handbolta á RÚV. Bein útsending frá leik Stjörnunnar og ÍBV í 1. deild kvenna í handbolta.  15.30 Handboltakvöld á RÚV.  16.00 Íslenski handboltinn á RÚV. Bein útsending frá leik Gróttu/KR og ÍR í 1. deild karla í handbolta.  16.10 Enski boltinn á Skjá einum. Bein útsending frá leik Manchester City og Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.  16.20 Mótorsport 2004 á Sýn. Sýnt frá torfærukeppni í Noregi.  16.50 Meistaradeildin í handbol- ta á Sýn. Bein útsending frá leik Creteil og Hauka í meistaradeild Evrópu í handbolta.  18.20 Ítalski boltinn á Sýn. Bein útsending frá leik Juventus og Messina í ítölsku A-deildinni í fót- bolta.  20.25 Spænski boltinn á Sýn. Útsending frá leik Español og Barcelona í spænsku úrvals- deildinni í fótbolta.  22.05 K-1 á Sýn. Alex Ferguson, knattspyrnustjóriManchester United, hefur ákveð- ið að hvíla Wayne Rooney í leiknum í dag gegn B i r m i n g h a m . Ástæðan er álagið sem hefur verið á Rooney sökum landsleikja Eng- lendinga í und- ankeppni HM. Ferguson vill hafa Rooney í topp- formi gegn Sparta Prag í Meistaradeild Evrópu á þriðju- daginn. Þá er Louis Saha stiginn upp úr hnémeiðslum sínum og verður í fullu fjöri gegn Birmingham. Eru það gleðitíðindi fyrir United-aðdáendur. Tölverð meiðsli eru í herbúðumBarcelona um þessar mundir. Ludovic Giuly, Gerard Lopez og Sil- vinho eru allir meiddir og er það áhyggjuefni fyrir Frank Rijkaard, þjálfara liðsins. Barcelona er í efsta sæti spænsku deildarinnar og hefur unnið fimm af sex leikjum tímabilsins. Einhverjar vangaveltur eru um aðbreyta þriggja stiga reglunni í NBA-körfuboltanum í Bandaríkjun- um. Stu Jackson, varaforseti NBA, segir að reglunum verði ekki breytt eins og hendi sé veifað en fullyrðir að forráðamenn deildarinnar séu ávallt tilbúnir að gera breytingar, séu þær íþróttinni til góðs. „Þriggja stiga körfur eru orðnar stór hluti af sóknaraðgerðum liða í dag og við viljum skoða hvaða áhrif það hefði á leikinn í heild ef þriggja stiga karfan yrði afnumin,“ sagði Jackson. Að sögn Davids O’Leary, knatt-spyrnustjóra Aston Villa, er hann í þann mund að gera nýjan fjögurra ára samning við félagið. Vonast menn þar á bæ til að málið verði frá- gengið í næstu viku. Sjálfur er O’Leary spenntur fyrir að framlengja dvöl sína. „Mig langar að vera maðurinn sem kemur félaginu á þann stað þar sem það á heima,“ sagði O’Leary. Rússar geta verið sáttir við tennis-konuna Elena Bovina en hún sló Venus Williams út úr keppni á Kreml-bik- armótinu í M o s k v u . Bovina er komin í undanúrslit á mótinu en Willi- ams situr eftir með sárt ennið. „Uppgjafir mínar voru mér ekki að skapi í dag,“ sagði Willi- ams, sem keppti síðast á Opna bandaríska meistaramótinu. Bovina sagðist alltaf hafa ætlað að halda stjórninni á viðureigninni við Willi- ams. „Það var ekki auðvelt en það tókst. Hún komst aldrei inn í leikinn,“ sagði Bovina. Niðurstöðu er að vænta í dag umhvaða lið í Formúlu 1 kappakstr- inum hreppir Jenson Button. Button hóf ferilinn hjá liði Williams fyrir fjórum árum síð- an en skipti yfir í BAR árið 2002. Það kom mörg- um á óvart í haust þegar Button tilkynnti að hann væri á förum frá félag- inu en honum hefur gengið ágætlega og er í þriðja sæti öku- manna á tímabilinu. Svo virðist sem slagurinn um kappann verði milli Williams og BAR og er útlit fyrir lang- an fund milli forráðamanna liðanna og lögfræðinga Buttons. ÚR ÍÞRÓTTAHEIMINUM Hildur Sigurðardóttir er hjá sænska liðinu Jämtland Basket: Fyrsti deildarleikurinn er í dag KÖRFUBOLTI Hildur Sigurðardóttir er eina íslenska körfuboltakonan sem spilar í atvinnumennsku í vetur en hún samdi við sænska liðið Jämtland Basket fyrir þetta tímabil. Hildur og félagar hennar spila sinn fyrsta deildarleik í dag en hafa unn- ið tvo góða sigra á Sundsvall í síð- ustu æfingaleikjum fyrir mótið. Hildur skoraði 21 stig í fyrsta leik sínum í höllinni Östersund og hefur fengið mjög góða dóma fyrir byrjun sína hjá liðinu. Hildur skoraði 12 stig í seinni leiknum þrátt fyrir að leika meidd á læri en auk þess hefur hún verið dugleg að skapa færi fyrir félaga sína í liðinu. Þjálfarinn Hasse Widell hrósar Hildi á heima- síðu félagsins. „Hún spilaði í 30 mínútur og gerði það vel. Bara ef aðrir gerðu sér grein fyrir því hversu góð hún er því þá gætum við orðið sterkt lið,“ sagði Widell. Hild- ur er önnur af tveimur erlendum leikmönnum liðsins, hin er banda- ríski miðherjinn Dionne Brown. Jämtland Basket spilar tvo fyrstu leiki sína á heimavelli, þann fyrri gegn nýliðum Växjö Queens á morgun en svo gegn Visby Ladies um næstu helgi, það lið komst í úr- slitakeppnina í fyrra. Jämtland Basket endaði í 9. sæti sænsku deildarinnar í fyrra og var einu sæti frá því að komast í úrslitakeppnina þangað sem stefnan hefur verið sett í ár. Hildur hefur verið valin besti leikmaður íslensku kvennadeildar- innar síðustu tvö tímabil og það verður spennandi að fylgjast með því hvernig henni gengur að fóta sig í sterkri sænskri deild. ■ EM U19 kvenna: Tilvalið á afmælisári sambandsins FÓTBOLTI Knattspyrnusamband Ís- lands hefur lagt inn umsókn til UEFA um að halda lokakeppni Evrópumóts U19-landsliða kven- na árið 2007 en KSÍ á einmitt 60 ára afmæli sama ár. Að mörgu er að hyggja varðandi umsókn um lokakeppni af þessu tagi og liggur mikil vinna á bak við umsókn KSÍ. Síðar í mánuðinum er von á full- trúum UEFA hingað til að lands til að líta á aðstæður, skoða hótel, knattspyrnuvelli og fleira. Ákvörðun UEFA um staðsetningu lokakeppninnar liggur væntan- lega fyrir í byrjun næsta árs en úrslitakeppnin 2005 fer fram í Ungverjalandi. Úrslitakeppnin er skipuð átta liðum sem verður skipt í tvo riðla. ■ HILDUR BYRJAR VEL Hildur Sigurðar- dóttir hefur staðið sig vel í æfingaleikjum með Jämtland Basket. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P AL LI ANDRI STEFAN Átti stórleik í Frakklandi í gær og skoraði níu mörk í öllum regn- bogans litum.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.