Fréttablaðið - 16.10.2004, Side 53

Fréttablaðið - 16.10.2004, Side 53
41LAUGARDAGUR 16. október 2004 Kringlunni Kringlukast í Skífunni 25% afsláttur Quara shi FYLGI R MEÐ !* Quarashi plötunni Guerilla Disco *gildir á meðan birgðir endast af nýju Áritun kl. 15 í Skífunni Kringlunni FRÉTTIR AF FÓLKI Frábær gangur í Affallinu Veiðiskapurinn hefur gengið vel núna undir lok veiðitímans. Sjó- birtingsveiðin hefur gefið vel og mikið hefur verið að veiðast af laxi. „Þetta var frábær endir á sumrinu, við fengum 39 laxa í Miðfjarðará, á þremur dögum, alla á fluguna,“ sagði Guðmundur Á. Pétursson, en hann endaði sum- arið í Miðfjarðará með Birni Leifssyni á stöng. Fleiri veiðimenn hafa þessa sögu að segja af veiðinni núna und- ir lokin, sumar laxveiðiár voru full- ar af fiski. Í klakveiðinni í Hrúta- fjarðará, veiddust yfir 20 laxar og veiðimaður sem var við veiðar vestar í Hrútafirði fékk á stuttum tíma 20 laxa, flesta á fluguna. Það hafa veiðst um 45 þúsund laxar í sumar en lokatölur strey- ma úr veiðiánum þessa dagana. Rangárnar fara vel yfir 6.000 laxa og veiðimenn hafa verið að gera góða túra þangað. „Ég og veiðifélaginn veiddum 13 laxa í Ytri-Rangá og þetta var meiriháttar, það er mikið af fiski þarna,“ sagði veiðimaður sem var á veiðislóðum, fyrir fáum dögum. „Veiðin hefur verið mjög góð í Affallinu í sumar, það hafa veiðst um 400 laxar og hellingur af sjó- birtingi og bleikju,“ sagði Guð- mundur Örn Ingólfsson, en hann var við veiðar þar fyrir fáum dög- um, á milli austur- og vestur-Land- eyja. „Það er mikið af fiski þarna í Affallinu, bæði af laxi og silungi, veiðistaðirnir eru skemmtilegir og fjölbreyttir,“ sagði Guðmundur í lokin. Stærsti sjóbirtingurinn var 13 pund og stærsti laxinn var 14 pund, en veitt er í Affallinu fram á miðvikudag. Það er Atlantslax sem leigir veiðisvæðið og veitt er á þrjár stangir. ■ VEIÐI: GUNNAR BENDER SKRIFAR UM VEIÐI VIÐ VEIÐIHÚSIÐ Í AFFALLINU Góð veiði hefur verið í Affallinu í sumar og hafa meðal annars veiðst yfir 400 laxar. M YN D /G U Ð M U N D U R H AU KU R Leikkonan Sandra Bullock hefurunnið dómsmál sem hún höfðaði gegn verktaka sem sá um að byggja glæsihýsi fyrir hana í Texas. Fær hún í sinn hlut um 500 millj- ónir króna í skaðabæt- ur. Verktakinn var sak- aður um að hafa gert hvert glappaskotið á fætur öðru við byggingu hússins. Fyrir vikið hefur Bullock aldrei séð sér fært að búa þar. Beiðni konu sem hefur setið umleikkonuna Catherine Zeta- Jones um að tryggingargjald hennar í fangelsi verði lækk- að hefur verið hafnað. Gjaldið er um 70 milljónir króna. Konan var handtekin þann 3. júní eftir að hafa áreitt Jones í tvö ár. Konan þarf því að dúsa áfram í fangelsi á meðan dómsmálið stendur yfir. Fjölskylda fórnarlambs nasista úrsíðari heimsstyrjöldinni hefur höfðað mál gegn goðsögninni Eliza- beth Taylor. Hún er sökuð um að hafa keypt málverk eftir Van Gogh sem hafði verið stolið í stríðinu frá fórnar- lambinu, sem var gyðingur. Nú vill fjölskyldan fá mál- verkið aftur enda telur hún að um þýfi sé að ræða. Verkið kostaði Taylor rúmar 17 milljónir króna árið 1963. Leikararnir Paul Newman, RobertDe Niro, Michael Douglas og Matt Damon eru á meðal þeirra Hollywood-stjarna sem hafa ausið pen- ingum í kosninga- sjóð Johns Kerry, for- setaframbjóðanda Demókrataflokksins. De Niro hefur til dæmis gefið Kerry um tvær milljónir króna og Douglas hefur gefið um eina milljón. Kosningarnar fara fram þann 2. nóvember. Óvíst er hvort leikarinnJames Caviezel, sem fór með aðal- hlutverkið í The Passion of the Christ, verði ráðinn í hlutverk Súperman í nýrri kvikmynd um skikkjuklædda ofur- mennið. Caviezel hef- ur mikinn áhuga á hlutverkinu en leik- stjórinn Bryan Singer vill helst ráða óþekktan leikara. Tónlistarmaðurinn EricClapton hefur misst ökuleyfi sitt í Frakklandi eftir að hann var tekinn fyrir að aka á 216 km hraða á hraðbraut þar í landi. C l a p t o n , sem er 59 ára, ók hátt yfir hámarks- hraða. Þrátt fyrir að hafa verið gómaður var hann ekkert að æsa sig. Eftir að hafa borgað sekt upp á tæpar 70 þúsund krónur stillti hann sér upp í mynda- töku með laganna vörð- um, sem sáu varla sólina fyrir stórstjörnunni.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.