Fréttablaðið - 16.10.2004, Page 56
44 16. október 2004 LAUGARDAGUR
Frá Danmörku eru komnar til
landsins tvær splunkunýjar og sjóð-
heitar rokksveitir, PowerSolo og
Epo-555, sem hafa vakið tölverða
athygli í dönsku rokksenunni í ár.
Báðar eru sveitirnar á snærum
dönsku plötuútgáfunnar Crunchy
Frog, sem er stærsta neðanjarðar-
útgáfan í Danmörku og gefur meðal
annars út hljómsveitir á borð við
The Raveonettes og Junior Senior,
sem báðar hafa náð að skapa sér
nafn á alþjóðavettvangi.
„Þetta útgáfufyrirtæki hefur
fengið mikið af jákvæðri umfjöll-
un meðan lítið hefur verið að ger-
ast hjá öðrum í Danmörku. Þeir
hafa verið með fá bönd en náð
góðum árangri með þau, þannig
að það er orðið voða spennandi að
vera hjá þeim.“
Aðalsprautan í Crunchy Frog er
Jesper Reginal, jafnan kallaður
Yebo, sem stofnaði útgáfuna fyrir
tíu árum ásamt félögum sínum í
hljómsveitinni Thau.
„Hann er allt í öllu hjá þeim,
hefur trommað með Junior Senior
og hefur komið meira og minna ná-
lægt öllum þessum böndum,“ segir
Þórhallur Rafn Jónsson hjá Skíf-
unni, sem kynntist Yebo úti í Dan-
mörku fyrir mörgum árum. Þeir
hafa haldið vinskap síðan og rætt
það hvað eftir annað að Yebo sendi
einhverjar af hljómsveitunum sín-
um til þess að spila hér á landi.
PowerSolo sendi frá sér sína
fyrstu plötu í mars og heitir hún
„It’s a Raceday“ Hún hefur fengið
glimrandi dóma og þykir gott
dæmi um kraftinn í dönsku rokki
þessa dagana.
Fyrsta platan frá EPO-555 heit-
ir Dexter Fox og hefur ekki síður
vakið hrifningu fyrir melódískan
kraft sem sækir áhrif úr furðuleg-
ustu áttum.
Þeir sem vilja kynna sér það
heitasta í dönsku rokki þessa dag-
ana ættu endilega að skella sér á
Grand Rokk. ■
Leikfélag Fljótsdalshéraðs frum-
sýnir söngleikinn vinsæla Bugsy
Malone í Valaskjálf á Egilsstöðum í
kvöld. Leikstjóri er Guðjón Sig-
valdason, sem jafnframt þýddi
verkið, og tónlistarstjóri er Freyja
Kristjánsdóttir.
Í þessari uppfærslu Leikfélags
Fljótsdalshéraðs er það yngri kyn-
slóðin sem fær að njóta sín en leik-
arar, sem eru 70 talsins eru allir á
aldrinum 11-16 ára.
Bugsy Malone gerist á tímum
bannáranna í Ameríku í kringum
1930 og fjallar um stríð milli glæpa-
gengja í New York. Alan Parker er
höfundur Bugsy Malone en kvik-
mynd hans, sem frumsýnd var árið
1976, sló rækilega í gegn og hefur
tónlistin úr kvikmyndinni verið vin-
sæl æ síðan.
Guðjón Sigvaldason leikstýrir
nú hjá Leikfélagi Fljótsdalshéraðs
í fimmta sinn en hefur auk þess
stýrt einni sýningu hjá Leikfélagi
Menntaskólans á Egilsstöðum.
Hann er því öllum hnútum kunn-
ugur hjá félaginu og þekkir vel til
yngri deildarinnar því hann leik-
stýrði meðal annars Kardi-
mommubænum fyrir rúmum 10
árum síðan þar sem fjöldi barna
tók þátt eins og nú.
- em
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
13 14 15 16 17 18 19
Laugardagur
OKTÓBER
■ LEIKLIST
Leikfélag Reykjavíkur • Listabraut 3, 103 Reykjavík
Miðasala á net inu:
www.borgar le ikhus. is
Miðasala, sími 568 8000
ALLIR Í LEIKHÚSIÐ - ENGINN HEIMA
HÉRI HÉRASON - BELGÍSKA KONGÓ - GEITIN
börn 12 ára og yngri frá frítt í fylgd með fullorðnum
LAUGARDAGUR 16/10
CHICAGO
eftir Kender, Ebb og Fosse
Kl 20:00 Örfáar sýningar eftir
SUNNUDAGUR 17/10
LÍNA LANGSOKKUR
eftir Astrid Lindgren
kl 14:00
BELGÍSKA KONGO
eftir Braga Ólafsson
kl 20:00 - UPPSELT
FIMMTUDAGUR 21/10
BELGÍSKA KONGO
eftir Braga Ólafsson
kl 20:00
FÖSTUDAGUR 22/10
SCREENSAVER
eftir Rami Be’er
íslenski dansflokkurinn
kl 20:00 - UPPSELT
Sun. 17. okt. kl. 20 • sun. 24. okt. kl. 20
lau. 30. okt. kl. 20 • fös. 12. nóv. kl. 20
ATH. Fáar sýningar. Atriði í sýningunni eru ekki við hæfi barna.
Litla stúlkan með eldspýturnar
Frumsýning lau. 23. okt. kl. 14 • sun. 24. okt. kl. 14
lau. 30. okt. kl. 14 • sun. 31. okt. kl. 14
Rakarinn morðóði
Miðasalan er opin kl. 14-18 virka daga, kl. 13-18 lau. og sun. og fram að sýningu sýningardaga. Símasala kl. 10-18 virka daga.
Miðasala á Netinu: www.opera.is
Hefur þú
fengið þér
sextíu
sjö í dag&
Akranes
Súgfirðingar - Súgfirðingar.
Okkar árlega kirkjukaffi verður að lokinni
messu í Bústaðakirkju sunnudaginn.
17. október kl 14.
Miðasala í
síma 562 9700
www.idno.is
Fös. 22. okt. kl. 20:00 örfá sæti
Mið. 27. okt. kl. 20:00
AUKASÝNING örfá sæti
Lau. 30. okt.kl. 20:00 örfá sæti
Fös. 5. nóv. kl. 20:00 laus sæti
Bugsy Malone í Valaskjálf
BUGSY OG FÉLAGAR Leikendurnir í Bugsy Malone sem Leikfélag Fljótsdalshéraðs sýnir
eru á aldrinum ellefu til sextán ára.
■ ■ TÓNLEIKAR
12.00 Kári Þormar, organisti Ás-
kirkju, flytur og kynnir aðgengi-
lega orgeltónlist frá Frakklandi á
hádegistónleikum í Hallgríms-
kirkju.
13.20 Benedikt Ómarsson, Arna
Valsdóttir, The Sexual Disaster
Quartet og The Mad Coffee
Machine eru meðal þeirra sem
koma fram á tónlistarhátíðinni
Músika, sem stendur fram á nótt í
Ketilhúsinu á Akureyri.
21.00 Álftagerðisbræður syngja á
Tónahátíðinni í Þjórsárveri.
21.00 Hörður Torfason verður
með tónleika í grunnskólanum á
Kópaskeri.
22.00 Dönsku rokksveitirnar Power
Solo og EPO-555 spila á Grand
Rokk ásamt Diktu og Byltunni.
■ ■ LISTOPNANIR
15.00 Sýning á málverkum Mar-
grétar Sigfúsdóttur verður opnuð
í Hafnarborg, menningar- og lista-
stofnun Hafnarfjarðar.
15.00 Sýning á málverkum frönsku
listakonunnar Valerie Boyce verð-
ur opnuð í Hafnarborg, menning-
ar- og listastofnun Hafnarfjarðar.
15.00 Guðjón Ketilsson og Kol-
brún S. Kjarval opna sýningar í
Listasafni ASÍ, Ásmundarsal. Á
sýningu Guðjóns, sem ber yfir-
skriftina Verkfæri, gefur að líta
myndverk sem hafa yfirbragð
verkfæra. Sýning Kolbrúnar nefn-
ist Hljómur skálanna.
16.00 Sýningar Ragnheiðar Ing-
unnar og Þórdísar Erlu, Helgir
staðir og Minningarbrot, verða
opnaðir í Grafíksafni Íslands, sal
Íslenskrar Grafíkur í Hafnarhúsinu
við Tryggvagötu.
■ TÓNLEIKAR
POWERSOLO Tvær af ferskustu hljóm-
sveitum Danaveldis spila á Grand Rokk í
kvöld.
Nýjar danskar á útopnu