Fréttablaðið - 09.09.2004, Page 16
16 9. september 2004 FIMMTUDAGUR
REKUR STJÓRNINA OG SEGIR AF SÉR
Alexander Dzasokhov, forseti Norður-
Ossetíu, kom fram á svalir skrifstofu sinnar
í gær og sagðist myndu reka stjórn hér-
aðsins og segja síðan sjálfur af sér vegna
gíslatökunnar í skóla í Beslan. Hann sagði
að yfirmenn öryggismála yrðu látnir axla
sína ábyrgð.
Metaðsókn að sundlaugum í sumar:
Hitabylgjunni að þakka
TÓMSTUNDIR „Það ber að taka þess-
um tölum með fyrirvara þar sem
fjórar sundlaugar voru lokaðar
hluta ágústmánaðar,“ segir
Erlingur Þ. Jóhannesson, íþrótta-
fulltrúi hjá Íþrótta- og tómstunda-
ráði Reykjavíkur sem rekur sund-
laugar borgarinnar. Talsverðar
framkvæmdir fóru fram við
fjórar sundlaugar í ágúst, Vestur-
bæjarlaug, Sundhöllina, Breið-
holtslaug og Árbæjarlaug og segir
Erlingur að tímasetningin hafi
verið afar óheppileg með tilliti til
hitabylgjunnar sem gekk yfir
fyrrihluta mánaðarins.
„Það var þó lítið við því að gera
þar sem slíkt er ákveðið með
marga mánaða fyrirvara en þetta
hafði talsverð áhrif á þann fjölda
sem kom í sund í þeim mánuði.
Þrátt fyrir það er heildarfjöldi
sundlaugargesta á árinu rúmlega
1,3 milljónir og aðeins 40 þúsund
færri í ár en á síðasta ári þrátt
fyrir lokanir í ágúst.
Gísli Kristinn Lórenzson, for-
stöðumaður sundlaugarinnar á
Akureyri, segir aðsóknina hafa
verið framar öllum vonum á ár-
inu. „Miðað við árið í fyrra sem
var í daprari kantinum hefur gest-
um fjölgað um 43 þúsund það sem
af er árinu. Alls hafa 270 þúsund
komið hingað og ég er að gæla við
að ná 300 þúsundasta gestinum
inn fyrir áramót. Það er því um
mikla aukningu að ræða og það
skýrist fyrst og fremst af frá-
bæru sumri.“ ■
Rúmlega 130 börn
bíða greiningar
Áætlaður biðtími eftir greiningu á Greiningar - og ráðgjafarstöð ríkisins getur numið allt að
tveimur árum. Á annað hundrað börn eru nú á biðlistum. Vonir standa til að fleiri stöðugildi
fáist í nýtt viðbótarhúsnæði sem tekið var í notkun í gær.
HEILBRIGÐISMÁL Um 80 börn á
þroskahömlunarsviði og 50 - 60
börn á einhverfusviði bíða eftir
greiningu á Greiningar- og ráð-
gjafarstöð ríkisins.
„Hluti þeirra er búinn að fá út-
hlutað plássi á næstu sex mánuð-
um en það bætir alltaf í,“ sagði
Stefán J. Hreiðarsson, forstöðu-
maður stöðvarinnar. „Við höfum
því kosið að nálgast þetta frekar
út frá biðtímanum. Þannig að ef
grunnskólabarn er grunað um
þroskahömlun, þá erum við að
tala um biðtíma allt upp í tvö ár.“
Nýtt húsnæði í Greiningar- og
ráðgjafarstöð ríkisins, sem er 100
fermetrar að stærð og var tekið í
notkun í gær, breytir mjög miklu
fyrir starfsemina, að sögn Stefáns.
Þar verður fagsvið þroskahamlana
starfrækt, svokölluð snemmtæk
íhlutun, sem felst í vinnu með ung,
fötluð börn og foreldra þeirra. Það
rými sem losnaði verður nýtt til
bættrar aðstöðu fyrir einhverf
börn. Þá rýmkast einnig um iðju-
þjálfun, sem búið hefur við mjög
þröngan kost.
„Við fáum í vaxandi mæli börn
með einhverfu sem eru í mjög
markvissri þjálfun,“ sagði Stefán.
„Þjálfarar, foreldrar, aðstandend-
ur og aðrir sem koma að máli
barnsins horfa þá á okkar þjálfara
og læra.“
Spurður hvað ylli fjölgun
barna sem þyrfti á aðstoð Grein-
ingar- og ráðgjafarstöðvarinnar
að halda sagði Stefán að hvað
varðaði einhverfu væri fjölgun á
alþjóðamælikvarða viðurkennd.
Menn veltu vöngum yfir hvort
það væru einhverjir þættir í um-
hverfinu sem ættu þar hlut að
máli. Að hluta til kæmi til meiri
skilningur og betri greiningarað-
ferðir, sem væri forsenda þess að
hægt væri að beita sérhæfðum að-
ferðum snemma, til þess að koma
í veg fyrir eða minnka vandamál
einstaklinganna seinna meir.
„Sama máli gegnir um þroska-
hömlun. Hjá fullorðnum þroska-
heftum, og einkum þeim sem
standa býsna vel innan þroska-
hefta hópsins, er há tíðni af geð-
rænum erfiðleikum á fullorðins-
árum. Menn leggja því upp með
að gera þessa vönduðu greiningu,
leita þá ekki bara að nafni á fötl-
uninni heldur getu barnsins í um-
hverfinu og finna geðræn ein-
kenni snemma, séu þau til staðar.
Það er aukin áhersla, með aukinni
þekkingu, á að við séum raun-
verulega að reyna að vinna for-
varnarstarf til framtíðar.“
Reikna má með að um 80 börn í
hverjum árgangi standi það
höllum fæti í almennri greind, að
hætta sé á þroskahömlun, að því
er Stefán sagði. Hvað varðar
aðrar þroskaraskanir má gera ráð
fyrir öðrum eins hóp að minnsta
kosti í hverjum árgangi. Um 20 -
25 börn í hverjum árgangi grein-
ast með einhverfu eða einhverfu-
einkenni.
Niðurstaða nefndar á vegum
félagsmálaráðuneytisins, sem lá
fyrir í fyrra gerði ráð fyrir að
fjölga þyrfti sérfræðingum
Greiningar- og ráðgjafarstöðvar-
innar um 8 stöðugildi á næstu
fjórum árum til að anna þörfinni.
Síðan hefur stöðin fengið eitt og
hálft stöðugildi.
jss@frettabladid.is
ÁÆTLAÐUR BIÐTÍMI
Í SEPTEMBER 2004
(óbreyttar aðstæður)
Barn yngra en 3 ára Forgangur
Barn 3-6 ára 6-20 mánuðir*
Barn 6-8 ára 12-13 mánuðir*
Barn 8-18 ára 24-28 mánuðir*
Gíslatakan í Beslan:
Vill opinbera
rannsókn
HAMBORG, AP „Almenningur vænt-
ir þess að þetta atvik verði rann-
sakað vel og ítarlega,“ sagði
Mikhail Gorbatsjov, síðasti leið-
togi Sovétríkjanna, þegar hann
hvatti rússnesk stjórnvöld til að
láta fara fram opinbera rann-
sókn á harmleiknum í íþrótta-
húsi skólabyggingar í Beslan þar
sem á fjórða hundrað manns létu
lífið.
Vladimir Pútín Rússlands-
forseti hefur sagt að atburðirnir
verði rannsakaðir innanhúss og
hefur hafnað opinberri rannsókn.
Gorbatsjov sagði hins vegar að
það væri við hæfi að rannsóknin
færi fram „með þátttöku þingsins
og almennings“. ■
Niðurskurður:
Útiloka ekki
endurskoðun
BERLÍN, AP Þýsk stjórnvöld munu
breyta stefnu sinni í uppstokkun á
velferðarkerfinu ef breytingarnar
verða ekki til þess að hleypa aukn-
um krafti í þýskt velferðarlíf, sagði
Gerhard Schröder, kanslari Þýska-
lands, í gær. Hann þvertók hins
vegar fyrir að gera nokkrar breyt-
ingar fyrr en
í ljós kæmi
hvort upp-
s t o k k u n i n
myndi skila
árangri.
Í byrjun
næsta árs
s k e r ð a
s t j ó r n v ö l d
stuðning við
þá sem hafa
verið at-
vinnulausir
um langt skeið. Þetta hefur fallið í
mjög grýttan jarðveg í Þýska-
landi, sérstaklega í gamla Austur-
Þýskalandi þar sem atvinnuleysi
er mjög mikið. ■
Námuslys:
17 létust í
eldsvoða
TYRKLAND, AP Sautján námamenn
létust þegar eldur braust út í
koparnámu í Kastamonuhéraði í
norðurhluta Tyrklands. Níu náma-
mönnum sem lokuðust inni í
námunni þegar eldurinn braust út
var bjargað úr henni eftir að
björgunarmönnum tókst að
slökkva eldana. Allir voru þeir
meira eða minna slasaðir. Ein-
hverra var þó enn saknað síðla í
gær og unnið að því að bjarga
þeim.
„Ég var fastur neðanjarðar í
þrjá tíma og var mjög hræddur,“
sagði Ali Cinar, einn þeirra sem
sluppu lifandi úr eldsvoðanum.
„Ég get ekki lýst því hve ham-
ingjusamur ég er,“ sagði hann um
björgun sína. ■
AÐSÓKN MEÐ MESTA MÓTI
Aldrei hafa fleiri sótt Sundlaug Akureyrar en í ár og miðað við að fjórar sundlaugar í
Reykjavík voru lokaðar megnið af ágústmánuði eru aðsóknartölur með mesta móti.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
ÁHYGGJUFULLIR
RÁÐHERRAR
Joscha Fischer utanríkis-
ráðherra og Gerhard
Schröder kanslari
fylgjast með umræðum
á þinginu.
FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA
Fagnaði nýju húsnæði Grein-
ingar - og ráðgjafarstöðvarinn-
ar, ásamt fleiri gestum.
FORSTÖÐUMAÐUR
Fleiri stöðugildi vantar á greiningar- og ráðgjafarstöðina til þess að hægt sé að vinna á
biðlistum og anna þörfinni.
260
1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 ?
95 97 88
115 108 99
176
215
228
210 203
217
277FJÖLDI TILVÍSANA EFTIR ÁRUM
16-17 8.9.2004 20:36 Page 2