Fréttablaðið - 09.09.2004, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 09.09.2004, Blaðsíða 54
■ VEISTU SVARIÐ? Svör við spurningum á bls. 6 1 3 2 Viktoría. Þúsund. 2.5 milljarða. Frægir geimkappar upplifa lífið um borð Tvö dönsk varðskip voru í Reykja- víkurhöfn um helgina. Af því til- efni var skipulagt fótboltamót þar sem lið Landhelgisgæslunnar atti kappi við lið varðskipanna Tritons og Vædderen. Mótið fékk heitið Nordic Saga Cup 2004 og var haldið á Leiknis- vellinum í Breiðholti. Fyrst kepptu lið Tritons og Vædderen og sigraði lið Tritons 3-1. Næst keppti lið Landhelgisgæslunnar við lið Tritons og sigraði Landhelgis- gæslan 4-0. Ekki gekk eins vel gegn Vædderen en þar tapaði Landhelgisgæslan 3-2. Dómarinn, úr liði Tritons, dæmdi víti á Land- helgisgæsluna á síðustu mínútunni og var í herbúðum Landhelgisgæsl- unnar talað um dómarahneyksli, en allt þó í góðlátlegu gríni. Er fótboltamótið var yfirstaðið var farið í reiptog og stóð lið Tritons uppi sem sigurvegari. Að keppni lokinni bauð áhöfn Tritons hinum liðunum og áhangendum þeirra um borð í Triton þar sem boðið var upp á léttar veitingar. Þar fór fram verðlaunaaf- hending þar sem gestgjafarnir fengu glæsilegan farandbikar fyrir góða frammistöðu í reip- toginu en lið Vædderen fékk verðlaunaskjöld til eignar fyrir sigur á mótinu. Lið Landhelgis- gæslunnar varð að láta sér nægja að gleðjast yfir góðri frammistöðu á fótboltamótinu en það skoraði flest mörk þótt stiga- talan gæfi það ekki til kynna. ■ Danir sigruðu Landhelgisgæsluna 42 9. september 2004 FIMMTUDAGUR Tunglið, Mars og Ísland. Þrír áfangastaðir sem skarta keimlíku landslagi og það vita sérfræðing- arnir hjá Volvo. Þessi gamalkunni klassabíll úr sænska eðalstálinu hefur jafnan verið kallaður „bíll leiðinlega mannsins“, en hvort sú sé raunin mun áþreifanlega koma í ljós þegar ný auglýsingamynd um fólksbílinn S40 kemur fyrir augu almennings. Það eru snill- ingarnir í SagaFilm sem höfðu veg og vanda af gerð auglýsingar- innar sem tekin var víða í ís- lenskri náttúru á dögunum. „Konseptið hjá Volvo er „Lífið um borð“ en þetta var þriðja myndin í seríu þar sem tveir ein- staklingar hittast óvænt um borð í Volvo og leggjast í ferðalag,“ segir Finnur Jóhannsson hjá SagaFilm. Að þessu sinni hittust þeir George Hull, sem bjó til umhverfi Matrix- og Star Wars-kvikmynd- anna, og vísindamaðurinn Pascal Lee sem er einn af stjórnendum bandarísku Mars-stofnunarinnar. Hvorugur vissi af öðrum fyrr en augnaráð þeirra mættist í bílnum á íslenskri grundu. „Ekkert handrit er að myndinni heldur hittust þessir tveir menn í bílnum, kynntu sig og spjölluðu saman á leiðinni. Þannig er öll ferð- in raunveruleg. Báðir hafa sama áhugamálið, en Pascal kemur úr jarðbundnu umhverfi og er með vísindalegar staðreyndir á hreinu, meðan George kemur úr óraun- veruleikaheimi bíómyndanna. Þeir vildu auðvitað kynnast þessu landslagi sem minnir á Mars og voru eltir af myndatökumönnunum í hvert sinn sem þeir yfirgáfu bíl- inn til að fá sér að borða eða vildu skoða áhugavert landslag.“ Að sögn Finns var Volvóinn búinn tíu myndavélum sem tóku myndir af þeim George og Pascal frá öllum hugsanlegum sjónarhornum. „Þetta var mjög óhefðbundin auglýsingavinna þar sem mynda- vélarnar gengu endalaust meðan á ferðalaginu stóð og mynduðu líf þeirra Georges og Pascals um borð. Ég efast um að Íslendingar eigi von á afrakstrinum í íslensku sjónvarpi. Þetta er fyrst og fremst heimildarmynd fyrir Volvo-verk- smiðjurnar,“ segir Finnur að lok- um en gefur lesendum stillimynd til að átta sig á aðstæðunum um borð í hinum nýja Volvo S40. ■ TÖKUR AUGLÝSING FYRIR VOLVO S40 ■ tekin á Íslandi BÚNINGUR FYRIR VOLVO? Geimbúningar voru notaðir í ferðalag þessara tveggja ólíku geimkappa um borð í nýja Volvóinum. Hér eru starfsmenn SagaFilm að athuga hvort bún- ingurinn sé ekki í alvöru ástandi. ■ FÓTBOLTAMÓT 1 5 6 87 9 12 15 10 13 16 17 11 14 18 2 3 4 í dag Einar Oddur Kristjánsson Adrei stóð til að greiða öryrkjum hálfa milljarðinn Breytingar Strætó Börnin þurfa að ganga kílómetra Menntaskólanemi Lenti í Nissan-þjófi í Borgarnesi Í KRÖPPUM DANSI Óskar Á. Skúlason, háseti, sést hér í kröppum dansi að hreinsa frá markinu. Hann skoraði eitt af sex mörkum sinna manna á mótinu. FRÉTTIR AF FÓLKI Lárétt: 1nóta, 5art, 6ka, 7ua, 8urr, 9 snið, 10læ, 12ský, 13eva, 15að, 16 gikk, 18táli. Lóðrétt: 1naumlega, 2óra, 3tt, 4harð- ýðgi, 6krika, 8uns, 11ævi, 14akt, 17 ka. Lárétt: 1 reikningur, 5 gott eðli, 6 íþróttafélag, 7 tveir sérhljóðar, 8 reiði- hljóð, 9 lögun, 10 svik, 12 á himni, 13 fyrsta konan, 15 til, 16 oflátung, 18 blekkingu. Lóðrétt: 1 tæplega, 2 gruna, 3 tveir eins, 4 mis- kunnarleysi, 6 skot, 8 þar til, 11 tíma- skeið, 14 virðing, 17 stafur. Lausn: Nú er að koma í ljós hvaða tveirblaðamenn verða í Sunnudags- þættinum sem hefst á Skjá einum í næsta mánuði. Þátturinn verður í umsjón vinstri- konunnar Katrínar Jakobsdóttur og hægri- mannsins Illuga Gunnarssonar . Þegar er búið að lýsa þeirri stefnu þáttarans að hann eigi ekki að stjórnast af „hlut- leysi“ og því er spurningin hvort það sama muni gilda um blaðamennina. Að öllum líkindum verður Ólafur Teitur Guðnason, blaðamaður á Viðskiptablaðinu, annar þeirra sem mun fara yfir fréttir liðinnar viku. Hver hinn blaðamaðurinn verður er enn óráðið og ræðst líklega ekki fyrr en í næstu viku. Nafn Kristjáns Guy Burgess á DV hefur verið nefnt í því samhengi en af þeirri ráðningu mun líklega ekki verða. Leitin að skelegg- um blaðamanni sem á roð í Óla Teit heldur því áfram. Einn er sá listi sem kynna ætti áhverju hausti og það er hvaða bækur voru væntanlegar en koma ekki út. Heyrst hefur að Illugi Jakobsson, ritstjóri DV, hafi verið að skrásetja ævisögu Gunnars Eyjólfssonar. Sú bók mun þó ekki koma út fyrir þessi jól sökum anna hjá Illuga. Hvort bókin kemur út að ári ræðst þá væntalega af því hvort jafnmikið verður að gera hjá Illuga á DV. ■ AÐ MÍNU SKAPI BRYNDÍS JAKOBSDÓTTIR, NEMI Í MH OG LEIKKONA Í DÍS Bátaleiga á Reykjavíkurtjörn TÓNLISTIN Nýjasta platan hans Prince, MUSICOLOGY, er mikið í geislaspilaran- um þessa dagana enda frábærlega heppnuð blanda af fönki og mjúkum ballöðum. Þessi plata markar glæsilega endurkomu eins af mestu snillingum poppsins. BÓKIN SKINNY DIP er geðveik saga af geðveikum vísindamanni. Höfundurinn Carl Hiaasen er bersýnilega með húmorinn í lagi, og skrifar í sérlega háðskum og skemmtilegum stíl. BÍÓMYNDIN Kvikmyndin CROUCHING TIGER, HIDDEN DRAGON er ein af mín- um uppáhaldsmyndum, enda mjög list- ræn og metnaðarfull í alla staði. Meira að segja meistari Tarantino hefur aug- ljóslega orðið fyrir áhrifum frá þessari mynd við gerð KILL BILL. Aksjón og rómantík fara þarna vel saman. BORGIN Það er erfitt að gera upp á milli næturlífsborgarinnar LONDON, útilífs- borgarinnar LOS ANGELES og menningar- borgarinnar REYKJAVÍKUR. Mér þykir þó örugglega vænst um þá síðastnefndu. BÚÐIN Skóverslunin KRON á Laugaveg- inum er svona öðruvísi búð og með frekar lágstemmdan prófíl. Hún er ein- faldlega „dead cool“. VERKEFNIÐ Ef mér tækist að fá tilskilin leyfi þá væri það alls ekki galin hugmynd ad gera út bátaleigu á Reykjavíkurtjörn yfir sumartímann. Best að slá á þráðinn til Bastíans bæjarfógeta....hm. 54-55 (42-43) Fólk 8.9.2004 21:31 Page 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.