Fréttablaðið - 09.09.2004, Blaðsíða 45
FIMMTUDAGUR 9. september 2004
Í dag kl.17 er heilsuþátturinn vinsæli á dagskrá útvarps Sögu 99,4
Þátturinn í dag er í umsjá Einars Karls Haraldssonar sem ræðir m.a. við
Sigurð Björnsson, yfirlækni og Hákon Hákonarsson, framkvæmdastjóra hjá
Íslenskri erfðagreiningu, um ný krabbameinslyf, nýja von fyrir sjúklinga og
ný vandamál fyrir heilbrigðiskerfið.
Hlustendum er velkomið að senda spurningar og ábendingar til þáttarins
með rafpósti á heil@internet.is
Misstu ekki af íslenska heilsuþættinum
á Útvarpi Sögu 99,4!
D a n s f l o k k u r i n n
Pilobolus mun stíga á
stokk í Laugardalshöll-
inni þann 10. mars á
næsta ári. Í yfir
þrjá áratugi hefur
flokkurinn ferðast
um allan heim, brot-
ið allar reglur og
blómstrað með því að
blanda saman lygilegu
hugmyndaflugi, krafti
og húmor.
Flokkurinn er nánast
bókaður út árið 2006 en
smá glufa myndaðist svo
hann kemst til Íslands í
fyrsta sinn.
Pilobolus býður
áhorfendum upp á nýja
tegund af danssýning-
um þar sem dans, leik-
fimi, list og vísindum er
blandað saman í einn
h r æ r i g r a u t
þannig að út-
koman er
engu lík. Eitt
helsta einkenni
flokksins er að tengja saman lík-
ama meðlimanna og nota þannig
lögmál eðlisfræðinnar til að fram-
kvæma eitthvað sem
fólki finnst að eigi að
vera algjörlega ómögu-
legt. Meðal annars
gengur einn með-
limur flokksins
með fjóra félaga
sína á bakinu um
sviðið.
S ý n i n g a r
Pilobolus hafa fengið
einróma lof virtustu
gagnrýnenda heims síð-
ustu áratugi og nýverið
varði fréttaskýringaþáttur-
inn 60 Minutes einum
þriðja hluta þáttarins í að
fjalla um flokkinn. Var þar
um mikinn lofsöng að
ræða.
Aðeins 2000 númeruð
sæti verða í boði
í Höllinni þegar
kemur að miða-
sölu svo að
tryggt verði að
allir áhorfendur
sjái það sem
fram fer. ■
„Öðru hverju vilja Hollendingar
kynna sína menningu út fyrir
landsteinana, eins og aðrir,“ segir
Bjarni Finnsson, aðalræðismaður
Hollands á Íslandi, en í dag
hefjast Hollenskir dagar í
Reykjavík.“ Hér var síðast haldin
svipuð hátíð árið 1992 og er
markmiðið að leyfa Íslendingum
að njóta hollenskrar listsköp-
unar. Þar í landi er gróskumikið
listalíf, meðal annars í kvik-
myndagerð, bókmenntum, tónlist
og dansi. Og ekki má gleyma víd-
eólistinni. Hollendingar byrjuðu
mjög snemma á þeirri listgrein
og eru framarlega á því sviði.
Það er því forvitnilegt að sjá
hvað þeir þar hafa fram að færa.
Hollendingar leggja mikið upp úr
listum og listnámi, gera það mjög
aðgengilegt fyrir alla og taka vel
á móti útlendingum, meðal
annars Íslendingum, í slíkt nám.
Nemendur á ýmsum sviðum geta
ýmislegt af þeim lært, hvort
heldur er í myndlist, tónlist eða
danslist.“
Meðan á hátíðinni stendur
kemur út skáldsagan Ástaraldin
eftir Karel Glastra van Loon hjá
Vöku/Helgafelli. Kvikmynd, gerð
eftir sögunni, verður meðal þeirra
mynda sem sýndar verða á
hollenskri kvikmyndahátíð í
Regnboganum sem stendur frá
10. til 16. september.
Í Listasafni Reykjavíkur
verður sýning á sögu hollenskrar
vídeólistar, þar sem tvinnast sam-
an 30 ára saga vídeólistar í
Hollandi og ferill 30 leiðandi lista-
manna í greininni. Hollenska
sveiflusveitin Van Alles Wat leik-
ur víða í miðborginni og á sunnu-
daginn opnar Pieter Holstein sýn-
ingu á pappírsverkum frá 8. ára-
tugnum til dagsins í dag í sýning-
arsalnum SAFN við Laugaveg 27.
Sama dag verða CAPUT-tónleikar
fyrir alla fjölskylduna í Ráðhúsi
Reykjavíkur klukkan 15.00. Þar
verða leikin þrjú verk eftir Theo
Loevendie. Næturgalinn, Ein-
mana kúabjallan og Doppleriana
fyrir þrjár kúabjöllur. Um kvöld-
ið, klukkan 20.00, heldur síðan
orgelleikarinn Peter Ouwerkerk
tónleika í Hallgrímskirkju og er
aðgangur ókeypis. ■
■ HOLLENSKIR DAGAR
Hollendingar leggja
mikið upp úr listum
■ DANSSÝNING
PILOBOLUS Pilobous-flokkurinn fram-
kvæmir hinar ýmsu kúnstir á sýningum
sínum.
Pilobolus til Íslands
TÓNLIST ÚR ÖLLUM ÁTTUM Hljómsveitin Van alles Wat leikur í miðbæ Reykjavíkur.
VERÐLAUNAHÖFUNDUR Skáldsagan
Ástaraldin eftir Karel Glastra van Loon
kemur út hjá Vöku/Helgafelli.
HOLLENSKA KÝRIN Einkenni hátíðar-
innar kemur frá aðalatvinnuveginum, land-
búnaði.
44-45 (32-33) skrípó 8.9.2004 19:11 Page 3