Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.09.2004, Qupperneq 56

Fréttablaðið - 09.09.2004, Qupperneq 56
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000 Allir í bandi Nú er enginn maður með mönn-um nema hann sé í bandi. Væri hér um erlenda slettu að ræða gæti maður haldið að allir væru í hljóm- sveitum. EINHVER sagði að orð væru til alls fyrst, en þar sem við búum í samfé- lagi er það líklega samtalið sem er til alls fyrst. Spurningin er bara hvort samtalið sem slíkt sé í útrým- ingarhættu? ÞEGAR tungumál verður fyrir flat- neskju-árás eða þynnir sjálft sig, þá er það ekkert endilega vegna þess að erlendar slettur eru að spýta eitri yfir málið, heldur bara einhver til- hneiging sem kemur upp af og til svona til þess að stytta sér leið. Þeir sem gengu úr og í skóla á sínum tíma án þess að hafa áhyggjur af því að kennarar færu í verkfall voru iðulega samfó. Það var verið að masa ýmislegt á leiðinni og var þá oft um svo kallað leyndó að ræða. NÚ eru allir í bandi. Fólk endar sín símtöl úti á götu á því að segjast ætla að vera í bandi. Á barnaheimil- um áður fyrr þegar farið var í göngutúra var allur krakkaskarinn saman í bandi. Börnin þræddu litlu vettlingaklæddu höndunum sínum inn um einhverja lykkju og svo þegar hinn fimm ára Viddi valti sem hékk framarlega á lykkjubandinu, datt um koll hrundi öll runan. Bílar keyrðu framhjá og tvær örmagna fóstrur önnur fremst og hin aftast sátu uppi með, eða stóðu uppi með heilan klasa af grenjandi krökkum liggjandi á harðri gangstétt á leið- inni í hljómskálagarðinn. Það vildi nú líka brenna við að aftasta fóstran húrraði niður og dróst kannski ör- lítið með í fallinu. Þessi börn voru svo sannarlega í bandi. Það er kannski allt of erfitt að segjast ætla að hafa samband eða vera hugsan- lega í sambandi. Kannski fer það þannig að forskeytið sam- hverfur af öðrum algengum orðum. Þetta er ungt par í sambúð. Nei, þetta er ungt par í búð. Má bjóða þér í samkvæmi? Nei, má ég bjóða þér í kvæmi. NÚ ætla ég að vera í bandi í allt kvöld. Ég sting mér oní prjónatösk- una og treð mér inn í lopann. ER það hugsanlegt að tungumálið sé bara kækur? Að halda uppi samræð- um gæti verið tómt rugl, kannski er alveg nóg að við hristum hausinn meðan við tyggjum. ELÍSABETAR BREKKAN BAKÞANKAR 56 Bak 8.9.2004 20:58 Page 2

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.