Tíminn - 02.09.1973, Page 4
4
TIMINN
Sunnudagur 2. september 1973
IMiiiii
iiimi
i
iiBBI
Reynsluferð
„Atlant-2"
Þaö voru höfrungarnir i Svarta
hafinu, sem fyrstir fengu aö sjá
rannsóknarkafbátinn,,Atlant-2”,
en úrhonum munu veröa geröar
rannsóknir á fiski og trollum.
Höfrungatorfan sveimaði kring-
um bátinn og skoðaði hann I
krók og kring. Forvitnasti
höfrungurinn kom að kýraug-
anu og horfði fast og lengi á
Viktor Korotkov. Af tilteku dýpi
kom eftirfarandi skipun:
„Setjiö á mesta hraða.”
Rannsóknarskipið „Zund”, sem
„Atland-2” tilheyrði beiö
skipunarinnar. Hraöinn jókst og
vatnið freyddi skutinn.
Korotkov tilkynnti, aö báturinn
hlýddi stýrinu fullkomlega,
hann hefði þegar reynt alla
ganghraða. t næsta skipti voru
tveir um borö. Gennadi
Zdraikovskij, verkfræðingur á
teiknistofu sjávariönaðarins i
Kaliningrad hafði bætzt við
áhöfnina. Eftir mánaðar-
tilraunir fór tilraunaleiðangur-
inn til Miðjarðarhafsins. Þar
voru gerðar tilraunir með
„Atlant-2” i sambandi við
veiðarfæri, geröar rannsóknir
og teknar kvikmyndir. Enn einn
meölimur bættist við áhöfnina,
en þaö var Alexandra
Kuzjmina. Hún hannaði nýja
gerö af trolli. Hún hafði tekið
eftir þvf, aö hluti af trollinu
dróst eftir botninum rifnaði og
fiskurinn slapp út. Hönnuð var
ný gerð og tókst vel. 1 desember
var „Atlant-2” i norö-austur-
Atlantshafi. Þegar visindarann-
sóknum lýkur, fer hann til
Kanarieyja. Myndin er af
Atlant 1 fyrirrennara Atlant
2.
Siðlaus sundlaug
Sundlaug ein, sem flýtur á
Signu og er bundin við bakkann
hefur vakið mikla gremju
meðal franskra stjórnmála-
manna. Hún er nefnilega aðeins
steinsar frá þinghúsinu og þeir
þjóðarinnar útvöldu virðast alls
ekki þola að sjá ungar stúlkur
baöa sig í neðri helmingnum
einum af bikini-baðfötunum.
Hvað skyldu mennirnir þá
annars vera að hanga úti i
gluggum, ætli þeir hafi ekkert
annaö aö gera? Fulltrúi
Gaullista á þinginu hefur nú
sent fyrirspurn til innanrikis-
ráðuneytisins og farið fram á
það i leiðinni, að lauginni verði
lokað, ef ekki er hægt að fá
stúlkurnar til að klæðast sið-
samlegri baðfötum. Segir
fulltrúinn að slikt siðleysi sé
móðgun við virðingu þingsins og
eyðileggi þaðxorð sem fer af
frönskum konum, en þær eru
sagðar allra kvenna kvenleg-
astar. Er kannske ekki kvenlegt
aö láta kvenleikann sjást?
,,Og þú trúir mér ekki þegar ég
segi aö þú reykir of mikið?”
L
„Er ekki eitthvað skemmtilegra
að horfa á í sjónvarpinu?”
DENNI
DÆMALAUSI
Hann er alveg eins og maðurinn
i auglýsingunni i sjónvarpinu,
sem þarf að fá einhverja
hressingu.