Tíminn - 02.09.1973, Blaðsíða 6

Tíminn - 02.09.1973, Blaðsíða 6
6 TÍMINN Sunnudagur 2. september 1973 FlUGFflfcG ÍSLANpS r ■ 1 í 'i^i 1 í » — <9 Kátur flokkur. Starfsmenn Karnabæjar i ofsastuði. © KARNABÆR ☆ KARNABÆR ☆ BJÖRN PÉTURSSON & CO. ☆ BÍLALEIGAN GEYSIR ER STORFYRIRTÆKI SEAA VELTIR MILLJÓNATUGUM Næst á eftir skuttogurum liafa menn mesta trú á búðum fyrir unglinga, ef á að raka saman fé. Einn af öðrum sigla skutararnir heim frá Japan, Spáni og Frakk- landi og ein eftir aðra opna tizku- verzlanirnar fyrir ungiingana og poppið flæðir yfir gangstéttirnar og strætið frá voldugum hljóm- tækjum — og æskumaðurinn og konan koma háfætt eins og ungir guðir eftir götunni, svo mjó um lifið að sætir undrun. Karnabær frægasta búö hinna ungu. Yfir búðum hinna ungu er sér- stakur hávaðasamur still, rökkrið er djúpt og voldugir orgeltónar fylla loftið, eins og i miðalda- kirkju, og dauf brosin i andlitun- um og augunum ljóma til þin úr myrkrinu, og þú finnur, að þau eru full af meðaukmkun með gamla fólkinu, sem hugsar i tvö- földu gleri og gengisfellingum. Karnabær er stærsta og fræg- asta búð þeirra ungu. Karnabær selur ekki aðeins mest, heldur hefur haft hvað drýgst áhrif á stil hinna háfættu, og ef til vill litum við orðið á hann sem eins konar félagsmálastofnun fremur en tizkuvörubúð. Allar hinar búöirn- ar, sem komu á eftir, minna á hálfkirkjur og hjáleigur hjá popp- risanum mikla. Þær eru færðar i sama snið. Karnabær stórfyrir- tæki i iðnaði En Karnabær er samt margt fleira. Hann er ekki aðeins vel rekið stórfyrirtæki, eða stórverzl- un. Hann er einnig umfangsmikið iðnfyrirtæki i fatagerð og öllu, sem þvi fylgir, tizkuhönnun, hraðgengum iðnaðarvélum, pressum, verkfræðingum og tæknifræðingum. Sérfræðingar hafa fyrir lifandislöngu leyst saumakonurnar af hólmi i öllu frumkvæði, og flikurnar streyma úr einni vélinni i aðra — með miklum hraða og gný, og að lok- um gleypa pressurnar allt og éta hver úr annarri, unz fullunnin tizkuvara er hengd á slá og send i búð, þar sem hún verður að mun- aði hinna háfættu guða. Karnabær er sniðinn að er- lendri fyrirmynd. Eða öllu heldur að alþjóðlegri fyrirmvnd. Ungt fólk um allan heim bókstaflega neitar að ganga i fötum eins og skólastjórar, eða prófastar not- uðu fram á siðustu ár. Það vill vera ungt og fallegt og þægilega klætt, en fyrst og fremst vill það vera „töff”, og það er naumast neinn sýnilegur munur á klæðnaði karls og konu, og á meðan það svifur yfir strætunum dregst gamla fólkið áfram i sólinni i dapurlegum 20 únsu sifjottsfötum og svitnar i handarkrikanum. Timinn kynnir að þessu sinni Karnabæ og fyrirtæki hans i við- tali við framkvæmdastjórana tvo, þá Björn Pétursson og Guðlaug Bergmann, en þeir stofnuðu þessa makalausu stórverzlun æskunnar. Viðtal við Björn Pétursson framkvæmdastjóra Fyrst hittum við að máli Björn Pétursson framkvæmdastjóra i skrifstofu hans að Laugavegi 66, og sagðist honum frá sem hér greinir um reksturinn og þau fyrirtæki, er mynda Karnabæ hf: Karnabær stofnaður 1966 — Eins og fram hefur komið, varð Karnábær til fyrir samstarf okkar Guðlaugs Bergmanns. Þetta samstarf er þó nokkuð eldra en Karnabær, þvi við höfð- um áður rekið fyrirtækið G.Berg- mann hf., sem var innflutnings- verzlun. Um þetta leyti vann ég við lögfræðiskrifstofu og fast- eignasölu hér i borg, en Guð- laugur rak fyrirtækið. Árið 1966 i mai stofnuðum við svo tvö fyrir- tæki, Karnabæ hf. og heildverzlun Björns Péturssonar hf., en til- #_____________________ Hafa skipulagt nýtízku fatagerð í 700 fermetra húsnæði. Byrjuðu með klæðskera og fimm stúlkur. •___________________________________ Rætt við Björn Pétursson framkvæmda stjóra í Karnabæ um stórfyrirtæki, sem byggzt hefur ó örfdum órum. Björn Pétursson, framkvæmdastjóri i Karnabæ. Þegar fyrsti Karna- bærinn var opnaður, töldu vinir Björns það óðs manns æði að leggja fé I svona fyrirtæki.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.