Tíminn - 02.09.1973, Side 7
Sunnudagur 2. september 1973
TÍMINN
7
hinna eldri, og i raun og veru held
ég, að fáir hafi haft trú á þessu
fyrirtæki, þvi þeir voru öfáir vinir
minir, sem spurðu mig hvers
vegna í ósköpunum ég væri að
hætta fjármunum i svona ,,ævin-
týri”.
Karnabær fyrstur með
poppbúðir og tónlist
Karnabær var verzlun með nýj-
um stil. Þarna vann ungt fólk og
glæsileg og voldug hljómtæki sáu
fyrir rokktónlist allan daginn, en
það var nýmæli, og þeir, sem
kvarta undan hávaða i verzlunum
okkar i dag, ættu bara að hafa
komið til okkar þá. Þessi tónlist-
arflutningur setur sérstakan blæ
á verzlanirnar og umhverfið og
æskunni fellur það vel og reyndar
hinum eldri lika.
Mánaöarlega til
útlanda i vörukaup
og vöruskoðun
Af þvf fólki, sem starfaði hjá
okkur á fyrsta ári, starfar tvennt
ennþá. Sævar Baldursson, sem nú
er fulltrúi i fyrirtækinu, og Erla
ólafsdóttir, sem nú er verzlunar-
stjóri á Laugavegi 20 a. Verka-
skipting okkar Guðlaugs var sú
sama frá upphafi. Ég einbeitti
mér að fjármálastjórn og rekstri
búðanna og iðnaðarins, en Guð-
laugur hefur með innkaup að
gera, vöruval og auglýsingar.
Hann fer mánaðarlega til útlanda
i vöruskoðun og vöruinnkaup, þvi
að það veröur ekki fylgzt með
tizkunni, með þvi að sitja heima.
Þannig hefur Karnabær mjög ná-
ið samband við tizkuheiminn, og
segja má, að Guðlaugur lifi og
hrærist i poppinu. hann gjör-
þekkir æskuna, skemmtanalifið,
stefnur i músik og allt er unga
fólkið varðar, enda er hann ungur
maður sjálfur og hrærist i þessu
umhverfi. Eg hins vegar verð að
láta mér nægja gamaldags sam-
bönd við banka og önnur yfirvöld i
viðskiptalifinu.
Þekkja þarfir
æskunnar
Ég vil þó vekja athýgli á þvi, að
samband okkar við æskuna, eða
samband Karnabæjar, er nauð
synlegt, og það er ekki i neinu frá-
brugðið sambandi annarra fyrir-
tækja við sina viðskiptavini. Þú
veröur að þekkja þarfir og óskir
kaupandans og ganga til móts við
þær eftir beztu getu. Okkar við-
skiptavinir eru frábærir. Það er
oft þröngt á þingi i Karnabæ, búð-
irnar troðfullar af fólki, en aldrei
veröum við fyrir neinu tjóni.
Framkoma ungmennanna er til
fyrirmyndar, og það er aldrei
neiit skemmt i búðunum af fólk-
inu, en það er meira en margir
kaupmenn geta sagt.
Auðvitað hafa komið upp smá-
vægileg vandamál, eins og geng-
ur, en mér hef'ur persónulega
gengið ákaflega vel að léysa þau,
og það hefur verið mjög
skemmtilegur þáttur i starfi minu
og lifi að fá tækifæri til að um-
gangast ungt fóik i daglegu starfi.
Karnabær færir
út kviarnar
Fljótlega eftir að Karnabær
opnaði að Týsgötu 1. varð hús-
næðið of litið. Búðin var þó stækk-
uð fljótlega eftir þvi sem húsrým-
ið leyfði og um skeið höföum við
snyrtivörudeild á Klapparstign-
um, aðeins steinsnar frá búðinni,
en þar var fyrsta saumastofa
okkar til húsa. Við fórum þvi
fljótlega að hugsa fyrir framtið-
arhúsnæði við fjölfarna götu.
Arið 1970 gafst okkur kostur á
húsnæði i nýreistu húsi að Lauga-
vegi 66, og sama haust opnuðum
við þar verzlun og fluttum skrif-
stofur okkar þangað á sama stað.
Þarna var tizkuverzlun fyrir kon-
ur og karla, en auk þess sérverzl-
un með PIONEER hljómtæki,
sem við höfum einkasölu fyrir.
Þetta var nýmæli i rekstri Karna-
bæjar, en hins vegar ekki langsótt
hugmynd, þvi að popptónlistin og
fatatizkan fylgjast að og eru með
einhverjum hætti samofin i lff
æskufólksins. Við seldum þarna
Bobby Fischer, heimsmcistari i skák notaði tækifænð og fékk sér
þrenn föt i Karnabæ. Tvenn munu hafa verið úr islenzkum fataefnum.
Timaritið LIFE tók þessa mynd af meistaranum og birti i heinistima-
riti sinu. Colin Porter klæðskeri hjá Karnabæ er mcð á myndinni, en
hann saumaði fötin.
gangur Karnabæjar var smásala
á fatnaði og tizkufatnaði og fram-
leiðsla á sömu vörum. Björn Pét-
ursson hf. var hins vegar heild-
sögufyrirtæki og var markmiðið
innflutningur og dreifing á er-
lendum fatnaði og snyrtivörum.
Karnabær opnaði fyrstu verzl-
un sina að Týsgötu 1 þann 16.
mai árið 1966, og hafði búðin þá
einvörðungu erlendar vörur á boð-
stólnum. Þessi verzlun var með
nýju sniði og vakti þegar óskipta
athygli, bæði ungmenna og eins
Pétur Björnsson, viöskiptafræðingur, en skrifstofa hans annast bók-
hald og stadistic fyrir Karnabæ.
('olin Porter og Jan G Davidson. (’olin Porter er Knglendingur. en er
kvæiilur islenzkri konu og lalar ágæla islenzku. Ilann liefur hafl afgcr-
andi álirif á fatasnið hér á landi. Með honum á niyndinni er læknimað-
urinn Jan G Davidson.sem er sænskurllann vinnur nú að endurskipu-
lagningu á fataiðnaði Karnabæjar, en verið er að laka i nolkun 350 fer-
melra viðhótarpláss i Kjörgarði. Jan er kvæntur islenz.kri konu.
Séð yfir hluta af saumastofu Karnabæjar. Þarna vinna stúlkurnar viö
saum á buxum.
Bilaleigan Geysir er sameign Karnabæjar og 15 starfsmanna Karna-
hæjar. A myndinni er Guðmundur forstöðumaður bilaleigunnar að af-
henda bifreið. Allir bilar GEYSIS eru með Pioneer-stereohljóm-
tækjum.