Tíminn - 02.09.1973, Qupperneq 12
12
TÍMINN
Sunnudagur 2. september 1973
Saenskir
íþróttamenn
læknaðir
með
Gull- efta silfurnálar á stærð við venjulega saumnál eru reknar 2-6 millimetra inn í hoidið á
ákveðnum stöðum.
kínversku nólastunguaðferðinni
AKU.PUNKTUR eða
nálastungur hafa kínversk-
ir læknar notað í fimm
þúsund ár eins og frægt er
orðið á Vesturlöndum. Nú-
hefur þessi kinverska
læknisaðferð líka komið
vesturlenzkum íþrótta-
mönnum til góða. Á Sví-
þjóðarmóti í frjálsum
íþróttum, sem nýlega fór
fram í Vesturási í Sviþjóð
kepptu margir menn, sem
hefðu verið ófærir um það,
ef ekki hefðu verið reknar
i þá fáeinar nálará réttum
stöðum. Sömu sögu er að
segja frá Evrópubikar-
mótinu, sem haldið var
fyrir tveim vikum. Þar
kepptu tveir sænskir
iþróttamenn, sem voru svo
illa meiddir, þegar þeir
komu til mótsins, að menn
héldu, að þeir væru ekki
keppnisfærir, en eftir að
nálastunguaðferðinni hafði
verið beitt á þá, voru þeir
svo sprækir, að þeir unnu í
sínum greinum.
viitu oreyia r
Þarftu að bæta?
Allar málnmgarvörur
einnig Tóna- og Óska-litir
6002 litir
UTAVER
Aðferðin er sú, að gull- eða
silfurnálar á stærð við venjulega
saumnál eru reknar 2-6 milli-
metra inn i holdið á ákveðnum
stöðum. Þessi læknisaðferð hefur
tiðkazt i Kina i fimm þúsund ár,
en var svo til óþekkt á Vestur-
löndum, þangað til sýndar voru
myndir af þessu i sjónvarpi á
Vesturlöndum fyrir einu ári eða
svo.
Það er sjúkraþjálfari og nudd-
ari sænska landsliðsins i frjálsum
iþróttum, sem meðhöndlar
iþróttamennina á þennan hátt.
Hann hefur lært nálastungur i
. Frakklandi, undanfarin þrjú ár.
— Auk hans er aðeins einn maður,
sem kann þetta i Sviþjóð, en þar
að auki kunna nokkrir læknar að
beita nálum við svæfingar fyrir
uppskurði.
Yfirleitt er nálastunguaðferðin
notuð ásamt öðrum aðgerðum en
ekki ein sér nema mikið liggi
við.
Þess eru sögð dæmi, að menn
sem meiðzt hafi i hnjálið, hafi
ekki kennt sér meins, eftir að
nálar höfðu verið reknar i fótinn.
Enginn skyldi þó ætla, að ekki sé
lengur þörf fyrir lækna handa
iþróttamönnunum, þvi að nála-
stungurnar eru aðeins notaðar
sem hjálpartæki ásamt öðru eins
og fyrr segir.
Það getur verið dálitið undar-
legt að sjá fjöldann allan af
nálum reknar i skrokkinn á
mönnum, og manni gæti jafnvel
dottið i hug, að þetta gæti verið
hættulegt. Sjúkraþjálfari lands-
liðsins sænska segir þó, að svo sé
ekki og það versta, sem geti gerzt
sé það, að ná-lastungur hafi alls
engin áhrif á menn, en þær geti
aldrei valdið tjóni nema einhver
afglapi sé að verki.
Flestir þeir, sem kunna til
verka við nálastungur halda þvi
fram, að áhrif nálanna séu minni
en ella, þegar tungl er fullt eða
stormur geisar, þannig að ekki er
alveg laust við að nokkurrar
hjátrúar gæti i þessu sambandi,
þótt ef til vill sé ekki alveg óhugs-
andi, að veðurfar hafi einhver
áhrif.
Sjúkraþjálfarinn segir, að nála-
stungum sé ekki aðeins hægt að
beita til þess að lækna meiðsli
heldur sé lika hægt að nota
nálarnar til þess að létta á þeirri
taugaspennu, sem margir
iþróttamenn finna til rétt fyrir
keppni og oft veldur þvi að þeir
standa sig ekki eins vel og þeir
gætu. 1 slikum tilvikum væri
betra að meðhöndla menn með
nálastungu en að eiga á hættu að
þeir taki róandi lyf.
Hver veit nema svo fari, að
nálastungur verði notaðar i
islenzka landsliðinu, ef þetta
reynist eins vel erlendis og það
sem hér hefur verið sagt frá,
bendir til.
Endursagt HHJ