Tíminn - 07.10.1973, Page 18
18
TÍMINN
Sunnudagur 7. október 1973.
Menn 09 m
Hinar miklu verð-
hækkanir erlendis
1960-1970
Þaö gefur glögga mynd af þeim
gifurlegu veröhækkunum, sem
hafa orðið undanfariö, ef athuguð
er þróun verðlagsmála á árunum
1960 - 70, að báðum árunum með-
töldum. Efnahags- og framfara-
stofnun Evrópu, OECD, hefur ný-
lega birt itarlega skýrslu um
verölagsþróun i þátttökurikjum
hennar á umræddum tima. Hér
fer á eftir yfirlit OECD um árlega
meðalhækkun verðlags neyzlu-
vara i þátttökurikjunum á árun-
um 1960-’70 bæði árin meðtalin:
Austurriki............3,6%
Astralia..............2,5%
Fyrir ári var stærra borðiö falt fyrir sama verö og þaö litla kost-
ar I dag.
Bandarikin...............2,8%
Belgia....................3,0%
Bretland .................4,1%
Danmörk...................5,9%
Finnland..................5,0%
Frakkland.................4,1%
Grikkland.................2,1%
SYKURINN 66%
2kg
TATE
Við könnuðum, hvaö strásykur
hefur hækkað mikiö siöastliðið ár.
I smásölu er algengast, aö sykur
sé seldur i 2 kilógramma pokum.
Algeng tegund af strásykri, sem
kostaði 66 krónur 2 kg poki i
september i fyrra. kostar i dag
109 krónur.
Hlutfallslega hefur strásykur
þvi hækkaö um 66%. Miklar
sveiflur hafa verið á sykurverði
siöastliðið ár, en þó stöðug hækk-
un. — OG
1 dag fáum við aðeins sex
tiundu þess magns af sykri,
sem hægt var að fá fyrir
sömu peningaupphæð i
september i fyrra. Sykur-
poki, 2kg, kostaði 66 krónur i
fyrra. Núna fást aðeins 1200
grömm fyrir sömu upphæð.
Visir 22. sept.
Holland .................4,2%
Japan....................5,7%
Irland...................4,8%
tsland.............^.... 11,8%
Italia...................3,9%
Kanada ..................2,7%
Luxemburg ...............2,6%
Noregur...,............. 4,5%
Portúgal.................4,5%
Spánn....................6,0%
Sviss....................3,3%
Sviþjóð..................4,0%
Tyrkland.................5,9%
V.-Þýzkaland.............2,7%
Samkvæmt þessu hefur árleg
meðalhækkun verölags neyzlu-
vara verið 3,4% á umræddum
tima i þátttökurikjum OECD.
Sést bezt á þvi, hve verð-
hækkanirnar hafa yfirleitt verið
miklu minni á þessum tima en nú.
tsland er undantekning. Þar hafa
verðhækkanir á umræddum tima
orðið rúmlega þrisvar sinnum
meiri en meðaltalið i rikjum
OECD. Þaö er athyglisverður
vitnisburður um efnahagsstefnu
„viðreisnarstjórnarinnar”.
Erfið staða
iðnaðarins
Eins og áður segir, hefur verð-
lagsþróunin verið óhagstæð
iðnaðinum. t ræðu, sem Gunnar
J. Friðriksson, formaöur Félags '
tsl. iðnrekenda, flutti við opnun
Verðhækkanir
erlendis
A undanförnum 12 mánuðum
hafa orðið meiri verðhækkanir
erlendis en dæmi eru um siöan
siöari heimsstyrjöldinni lauk.
Fyrir tslendinga er þetta hag-
stætt að þvi leyti, að útflutnings-
vörur sjávarútvegsins hafa flest-
ar hækkað mikið i verði. Aftur á
móti hafa útflutningsvörur
iðnaðarins hækkað miklu minna,
og er þvi að skapast alvarlegt
ástand hjá útflutningsiðnaðinum.
Það er svo ekki siður alvarlegt,
að margar helztu nauðsynjavör-
ur, sem við kaupum frá útlönd-
um, hafa stórhækkað i verði og
horfur taldar á, að margar þeirra
eigi enn eftir að hækka mikið i
verði, t.d. olian. Fyrir Islendinga
er þetta sérstaklega tilfinnanlegt
vegna þess, að íslendingar flytja
tiltölulega meira inn af nauð-
synjavörum en nokkur önnur
þjóð.
Blaöið Visir hefur að undan-
förnu birt stuttar fréttagreinar,
þar sem greint hefur verið frá
verðhækkunum á ýmsum vörum
siðustu 12 mánuðina. Þrjár af
þessum fréttagreinum eru birtar
hér á siðunni. Hækkanirnar, sem
hafa orðið á umræddum vörum
starfa af hækkunum á innkaups-
verðinu Umræddar vörur eru
teknar af handahófi, en fjölmörg
hliðstæö dæmi er hægt að nefna.
Þau sýna ljóslega hið mikla flóð
verðhækkana, sem nú fer um flest
lönd veraldar.
Þessar miklu erlendu verð-
hækkanir eru meginorsök þeirra
verðhækkana, sem hér hafa orðið
undanfarið, og leitt hafa til veru-
legra kauphækkana. Þær hafa að
vonum alveg sett úr skorðum þær
áætlanir um þróun verðlags- og
kaupgjaldsmála, sem voru t.d.
gerðar I sambandi við siðustu
kaupsamninga. Þær sýna jafn-
framt greinilega, hve fjarstæðu-
kenndur sá áróður stjórnarand-
stöðublaðanna er, að ætla að
skrifa þær verðhækkanir, sem
hér hafa orðið 12 siöustu mánuð-
ina, fyrst og fremst á reikning
rikisstjórnarinnar.
Verðlagsþróunin
Vísir 4. okt.
Verðhœkkanirnar:
Helmings-
hœkkun
á timbri
Hækkunar á vöruverði
gætir ekki sizt á bygg-
ingávörum. Við könnuð-
um verðbreytingar á al-
gengustu tegund móta-
timburs og kom i Ijós, að
smásöluverð með sölu-
skatti hefur hækkað um
helming á siðustu 12 mán-
uðum. Hver meter af
25mm x 150 mm kostaði
33,60 í október i fyrra,
kostar nú 67,20.
Samkvæmt upplýsing-
um kunnugra hefur timb-
ur hækkað mun meira á
heimsmarkaði en ofan-
greind hækkun gefur til
kynna. Mikið magn af
timbri var flutt til lands-
inssnemma á þessu ári og
þá varhækkana ekki farið
að gæta eins og nú Ekki er
talið ólíklegt, að verð á
timbri verði i byrjun
næsta árs orðið -200%
hærra en í október 1972.
—ÓG
67.20 kr. 100% hækkun á 12 mán.
é
33.60 kr. Október Október
1972 1973
kaupstefnunnar Islenzkur fatnað-
ur, vakti hann athygli á þvf, að á
árinu 1972 hækkuðu landbúnaðar-
vörur um meira en 18%, fiskur og
fiskafuröir um nærri 18%, hús-
næði og þjónusta um 14%, inn-
fluttar neyzluvörur um 12,4%,
en innlendar neyzluvörur, þ.e. al-
mennar iðnaöarvörur, um aöeins
10,4%. Á þessum tima varð
iðnaðurinn að taka á sig yfir 25%
kauphækkanir og miklar hráefna
hækkanir. Gunnari fórust enn-
fremur orö á þessa leið:
„Þróunin 1973 hefur orðið hraö-
ari, og má sem dæmi nefna, að
fyrir 2 árum var verð á áli og
frystum fiskblokkum það sama,
eða 21 centfyrirhvertenskt pund,
en i dag hefur verð á áli mjakazt
upp i 27 cent á sama tima og verð
á fiskblokk er komið i 72 cent.
Þetta dæmi sýnir mjög glögglega,
þó ef til vill nokkuð ýkt, mismun-
inn á verðlagsþróun iðnaðarvara
og fiskafuröa. Þegar svo innlent
verðlag eltir verðlag fiskafurða,
má ljóst vera i hvern vanda
iönaðurinn er kominn.
Af gamalli reynslu eigum viö að
geta ráðið, að ekki sé á það
treystandi, að mjög hátt verðlag
á matvælum haldist til frambúð-
ar, þar eð hátt verðlag hvetur til
aukinnar framleiðslu, sem siðar
veldur verðlækkun vegna aukins
framboðs. Það væri þvi miður, ef
hið mikla góðæri i fiskveiðum og
fiskiðnaði, yrði til þess að áform
um eflingu iðnaðar og aukningu á
útflutningi iðnaðarvara yrðu lögð
á hilluna.
Það er þvi knýjandi nauðsyn,
að stjórnvöld auðveldi iðnaðinum
að bregðast við núverandi að-
stæðum, svo að hann geti gegnt
þvi hlutverki að hleypa fleiri
stoðum undir islenzkt efnahagslif
og gera það þannig óháðara verð-
og aflasveiflum”.
Þessi ummæli Gunnars sýna
glöggt, hve alvarleg staða
iðnaðarins er vegna verðhækkan-
anna.
Hallormsstaðar-
fundurinn
Það orkar ekki tvimælis, að
áfangi sá, sem náðst hefur i land-
helgisdeilunni með brottkvaðn-
ingu brezku herskipanna og
dráttarbátanna, er fyrst og
fremst árangur þeirrar djarflegu
ákvörðunar rikisstjórnarinnar að
tilkynna brezku stjórninni, að
stjórnmálasambandið yrði rofið,
ef brezku herskipin færu ekki út
fyrir 50 milna mörkin.
Sú stefna, að setja Bretum slik
skilyrði, var fyrst mörkuð á fundi
þingmanna og framkvæmda-
stjórnar Framsóknarflokksins,
sem haldinn var að Hallormsstað
ibyrjun september. Þar var sam-
þykkt að ráði' forsætisráðherra,
að Bretum yrði tiikynnt, að
stjórnmálasambandið yrði rofið,
ef þeir hættu ekki ásiglingum á is-
lenzk varðskip. Jafnframt var
lýst yfir þvi, að áframhaldandi
ofbeldi Breta gæti breytt afstöð-
unni til Nato. Þessi ályktun hafði
mikil áhrif á vettvangi Nato.
Framkvæmdastjóri þess kom til
fslands og hóf siðan kappsamlega
að vinna að brottkvaðningu her-
skipanna. Bretar létu sér hins
vegar ekki segjast og héldu
áfram ásiglingum.
Ákvörðun, sem
bar órangur
Þegar hér var komið sögu,
stóðu rikisstjórn og utanrikis-
málanefnd frammi fyrir þeirri
ákvörðun, hvort tilkynna ætti
stjórnmálaslit eða ekki. 1 utan-
rikismálanefnd voru fulltrúar
stjórnarflokkanna og Alþýðu-
Framhald á bls. 39.
Verðhœkkanir
HVEITIÐ
36%
Verðhækkanir dynja yfir. Við
könnuðum hvað hveiti hefur
hækkað mikið siðastliðið ár. Al-
gengasta smásöiupakkningin er 5
punda pokar. Algeng tegund af
hveiti, sem kostaði 65 krónur I
september f fyrra kostar þessa
dagana 87 krónur. Hefur hveiti
þvi hækkað um 36%.
Litiö mun vera um hveiti I
verzlunum um þessar mundir en
næsta sending, sem kemur, verð-
ur mun dýrari.
— ÓG.
3G%
Vísir 21. sept.