Tíminn - 07.10.1973, Side 31
Sunnudagur 7. október 1973.
TÍMINN
31
komið getur fyrir einn karlmann.
segir hann — Manni finnst
maður vera ungur og hraustur á
allt annan hátt en eftir læknis-
meðferð. Sumir vina minna likja
mér við Charlie Chaplin, sem
eignaðist sitt siðasta barn, þegar
hann var sjötugur. Það er
samliking, sem ég kann að meta.
En jafnvel þótt hann tútni út af
stolti, hefur Ponti hefðbundnar
skoðanir á föðurhlutverkinu. —
Það er bara hlægilegt þegar full-
orðinn karlmaður skiptir á barni
og heldur á pela. Ekki til að tala
um. Þangað til að barnið er.það
stórt, að hægt er að tala við það,
er það hlutverk móðurinnar að
sjá um það.
—Vegna þessa viðhorfs átti sér
stað fyrst fyrir einu ári reglulegt
samband milli Cipis og föður
hans, — þegar snáðinn byrjaði að
tala, segir Sophia. Nú tala þeir
mikið saman um Tarsan og likar
söguhetjur á þrem málum —
itölsku, þýzku og ensku.
Hún fékk höll
i morgungjöf
Það eru engar ýkjur, þegar
Sophia segist hafa þurft að
berjast áfram i þessum heimi.
Sophia Scicolone fæddist fyrir 38
árum i Napoli, og ólst upp i
fátækrahverfi. Fjórtán ára fékk
hún smáhlutverk i kvikmynd, og
vann eftir það fyrir sér sam
statisti eða ljósmyndafyrirsæta.
Þangað til árið 1962, að hún vann
verðlaun fyrir leik sinn i „Tvær
konur”, framleidd af Carlo Ponti.
Eftir að hún hafði lengibúiðmeð
hinum tuttugu ára eldri Ponti,
giftist hún honum, þegar hann
hafði fengið skilnað frá fyrri konu
sinni, i Mexikó. En italskir
dómstólar neituðu að viðurkenna
skilnaðinn. Tiu árum siðar urðu
Sophia og Ponti franskir rikis-
borgarar og gátu loksins verið
löglega gift. Bæði börnin hafa
franskan rikisborgararétt.
Morgungjöf Pontis til Sophiu
var Villa Ponti, höll frá sextándu
öld, sem liggur rétt fyrir utan
Róm. Skammt þar frá hefur
páfinn sinn sumarhvildarstað.
Þegar fyrri sonur Pontis
fæddist, sagði hann — þangað til
núna hefur þetta fallega hús
staðið til einskis gagns. Bara
tómir salir. Nú er það fullt af lifi.
Það beið bara eftir að verða
heimili fyrir barn.
Sophia var send til dr.
Wattevilla sem er sérfræðingur i
erfiðum fæðingum, af vinkonu
sinni, sem hafði tvivegis misst
fóstur. Þegar hún var viss um.að
hún væri með barni, fór Sophia
algjörlega eftir ráðum læknisins,
„lokaði” sig inni i ibúð á Hótel
Intercontinental i Genf.
29. desember 1968 rættist
draumur frú Pontis loksins. Hún
fæddi heilbrigðan son: Carlo
Hubert Leone Ponti junior. Dr. de
Watteville var fenginn til að vera
guðfaðir. I þakklætisskyni lofaði
Ponti að gefa borginni Genf stofu
fyrir erfiðar fæðingar að verð-
mæti 30 milljónir. Af þessu varð
þó ekki vegna ganrýni samstarfs-
fólks.de Watteville, sem fannst
hann hafa notfært sér aðstæður til
auglýsinga, sem hann hafði ekki
unniðtil. Aðlokum varð Ponti svo
leiður á þessari gagnrýni og þeim
hindrunum,sem urðu á vegi hans,
að hann dró tilboð sitt til baka.
Fjórum árum seinna fæddi
Sophia annan soninn i sama her-
bergi og á sama sjúkrahúsi,
umkringd sama hjúkrunarfólki
undir stjórn dr. de Watteville. —
Eftir að ■ Cipi fæddist fékk ég
hundruð bréfa frá konum, sem
óskuðu mér til hamingju og báðu
um ráð segir Sophia — og ég upp-
götvaði, að margar konur áttu við
sömu erfiðleika að striða og ég
hafði haft. Þess vegna glöddust
þær með mér, þegar ég fékk ósk
mina uppfyllta. Þær skrifuðu til
min, eins og ég væri þeirra vitra,
stóra systir. Mér fannst það
skylda min að svara hverju
einasta bréfi.
Eins og með flestar mæður
finnst Sophiu hún hafa gert margt
rangt i uppeldi sins fyrsta barns
og vill ekki að það endurtaki sig
með næsta barn. — Að minnsta
kosti vona ég að ég hafi vanið mig
af þvi að vera afbrýðisöm móðir,
segir hún — Ég hélt Cipi frá öðru
fólki, eins og hann væri min
einkaeign.Og alltaf var ég hrædd
um.að honum yrði rænt, eða hann
yrði veikur. Nú hefur mér lærzt
það að börn þurfa að sjá annað
fólk. Annars munu þau liða fyrir
Fæðing Cipis var eins vel undirbúin og Apollo geimskot, segir Sophia hlæjandi. — Ég var alveg eins
varkár með mig i þetta skipti, en núna vissi ég líka hvað ég átti eftir aö ganga i gegnum.
þaö seinna. Cipi er svo vanur að
vera umkringdur af fullorðnu
fólki, að hann á i erfiðleikum með
að aðlagast á barnaheimilinu. Ég
var svo upptekin af honum, að ég
hugsaði ekki um annað.Talaði ég
við annað fólk var það aðeins um
Cipi. Ég reyni að angra annað
fólk ekki eins mikið með Edoardo
og ég gerði með Cipi.
Ég leita ráða i læknisbók, þegar
um er að ræða kvef eða eitthvað
slikt. Annars vil ég helzt gera það
sem mér finnst réttast. Móður
minni likar ekki minar uppeldis-
aðferðir, — það gera nú lika
fæstar ömmur. Þegar Cipi var
minni, grét hann mikiö.og erfitt
var að fá hann til að borða.
Mamma var vön að segja, að
uppeldið á börnum yngri systur
minnar væri miklu betra. Börnin
hennar hefðu alltaf sofið á
næturnar og borðað á
máltiðum..Og ástæðan var
auðvitað sú, að mamma sá u:'’
þau. En ég man það, að fyrsta
barn systur minnar borðaði varla
nokkuð. Og næsta barn hélt vöku
fyrir allri fjölskyldunni á hverri
nóttu. En mamma er varla sú
eina, sem ekki man það, sem hún
vill helzt gleyma.
En jafnvel þó þær mægður
séu ekki ásáttur um barna-
uppeldi ber Sophia mikla
virðingu fyrir móður sinni. — Ég
væri litið hrædd við ellina ef ég
væri örugg með að lita eins vel út
og hún getr. Hún hefur skýran
glampa i augunum.fallegan vöxt,
— grönn og spengileg. Og fyrst og
fremst, hún er „lifandi” Ef ég
gæti litið eins vel út og hún á
sama aldri væri ég ánægð með
lifið....
Draumurinn um
hið ókunna
En er Sophia ekki ánægð núna
— með tvo heilbrigða og laglega
syni, samhentan eiginmann og
frábæra hæfileika sem leikkona?
(á næstunni á hún að leika titil-
hlutverkið i myndinni Anna
Karenina) Finnst henni ekki, að
hún hafi náð sinu takmarki i lfinu
nú þegar? — Jú ég hef náð þvi,
sem ég hef alltaf óskað mér — að
vera — kona, sem hefur fætt þeim
manni, sem hún elskar, heilbrigð
börn. Mér finnst ég miklu
heilbrigðari og öruggari en ég
var. 1 dag hef ég fengið allt, sem
ég get óskað mér: er leikkona, er
gift Carlo, hef fætt honum börn og
lifi rikmannlega.
Samt finnst mér mig vanta eitt-
hvað. — Eitthvað sem ég get ekki
útskýrt. Einhver litill afkimi i lifi
minu er ekki alveg fylltur, eins og
hann ætti að vera. Það er
draumurinn um hið ókunna,
eitthvað, sem ekki verður náð
eitthvað, sem fær okkur til að
fara á fætur á morgnana og
vakna til nýs dags. Á hverjum
degi vakna ég með sömu
tilfinninguna, að nú muni ég
upplifa eitthvað nýtt, eitthvað
gleðilegt og fallegt.
(Kris lauslega þýtt og endursagt)
Námskeið á vegum
Iðnþróunarstofnunar
ísland
Áætlað er að halda á næstunni nokkur
námskeið um rekstrartækni, rekstrarhag-
fræði og vöruþróun.
Námskeið þessi eru einkum ætluð stjórn-
endum iðnfyrirtækja og þeim, er starfa
við framleiðslustjórn og — skipulagningu,
svo og kennurum og ráðunautum á þess-
um sviðum.
Námskeiðin eru þessi:
Nýjar framleiðsluhugmyndir 11. okt. kl. 13:00-17:00.
Hönnun og framleiðslutækni 5.-9. nóv.
Fjárhagseftirlit 12.-15 nóv.
Vöruþróun og -hönnun 12.-15. nóv.
Verðmætisgreining (6x1/2 d.) 14.-16. og 21.-24. nóv.
Framleiðsluskipulagning og -eftirlit 26.-29. nóv.
Gæðaskipulagning og -eftirlit 3.-6. des.
Þátttaka tilkynnist til Iðnþróunarstofnun-
ar íslands, Skipholti 37 simi 81533, i
siðasta lagi 15. október.
Frestur til að tilkynna þátttöku i fyrsta
námskeiðinu er þó til 8. október.
Nánari upplýsingar er að fá i bæklingi,
sem Iðnþróunarstofnunin hefur gefið út,
og i stofnuninni i sima 81533.
(Geymið auglýsinguna)
K.F.U.K. — VINDÁSHLÍÐ
HLÍÐARKAFFI
verður selt i húsi K.F.U.M. og K.
Amtmannsstig 2B i dag, sunnudaginn 7.
október, til ágóða fyrir starfið i Vindás-
hlið. Kaffisalan hefst kl. 3. e.h. Einnig
verður kaffi á boðstólum eftir samkomuna
um kvöldið. Komið og drekkið siðdegis- og
kvöldkaffið hjá okkur.
Stjórnin
Stór-hlutavelta
Kvennadeilar Slysavarnafélags íslands i
Reykjavik verður i dag kl. 2. e.h. i Iðnskól-
anum — gengið inn frá Vitastig og Berg-
þórugötu
Aðeins góðir munir — enginn núll —
ekkert happdrætti
Fjölmennið á hlutaveltuna og styrkið
kvennadeildina i starfi
Kvennadeild SVFÍ i Reykjavik.
Tímínn er peningar
Tilboð óskast
i eftirtaldar bifreiðar, sem skemmst hafa i umferðar-
óhöppum:
Volvo 144, árgerð 1972
Volvo 544, árgerð 1963
Opel Kekord, árgerð 1966
Skoda 110 L, árgerð 1972
Saah 96, árgerð 1966
Ford Cortina, árgerð 1964.
Bifreiðarnar verða til sýnis að Smiðshöfða 17, Reykjavik,
á morgun (mánudag) frá kl. 15 til 18.
Tilboðum sé skilað til Samvinnutrygginga, Tjónadeild,
fyrir hádegi á þriðjudag 9. október 1973.