Fréttablaðið - 23.10.2004, Side 40

Fréttablaðið - 23.10.2004, Side 40
Þann 18. október voru liðin 100 ár frá fæðingu Hákonar Guðmunds- sonar, fyrrverandi yfirborgar- dómara og hæstaréttarritara, en hann varð fyrsti formaður Land- verndar við stofnun samtakanna árið 1969. Hákon fæddist að Hvoli í Mýr- dal árið 1904 og var mikill áhuga- maður um skógrækt og land- græðslu og starfaði með Land- vernd af lífi og sál. „Hákon hafði allt það til brunns að bera sem starfið krafð- ist,“ segir Ólöf Guðný Valdimars- dóttir, formaður Landverndar. „Hann naut almennrar virðingar og trausts og var mikill áhuga- maður um ræktunar- og umhverf- ismál. Hann var réttsýnn og góð- ur stjórnandi sem tengdi vel sam- an hina ólíku aðila sem sátu með honum í stjórnum Landverndar.“ Ólöf segir Hákon hafa verið mikinn mannasætti enda hafi aldrei þurft að útkljá mál með at- kvæðagreiðslum í formannstíð Hákonar þar sem hann hafi náð sátt um öll mál. „Þegar Hákon lét af for- mennsku eftir tíu ára starf höfðu samtökin fest rætur sem síðan hafa haldið áfram að vaxa,“ segir Ólöf og telur óhætt að fullyrða að Landvernd eigi tilvist sína fyrst og fremst Hákoni að þakka. Stofnfundur samtakanna var haldinn 25. október 1969 þannig að samtökin fagna 35 ára afmæli sínu á mánudag. „Þeir sem stóðu að stofnun Landverndar gerðu sér grein fyrir því að það getur reynst þrautin þyngri að halda áhugasamtökum lifandi, þótt mál- staðurinn sé góður og njóti fylgis. Aðkoma Hákonar að starfsemi Landverndar á fyrstu starfsárun- um skipti sköpum fyrir framtíð- ina en þá var lagður grunnur að því starfi sem samtökin standa fyrir í dag.“ Ólöf segir að þegar litið sé til baka sé stærsti árangurinn af starfi Landverndar undir stjórn Hákonar þjóðargjöfin 1974. „Þetta var öflugt átak í land- græðslu sem Alþingi ákvað að hefja en hugmyndin að átakinu kviknaði hjá Landvernd árið 1970 og það féll í hlut Hákonar að fylg- ja henni eftir.“ Hákon og eiginkona hans, Ólöf Dagmar Árnadóttir, eignuðust Bjarkahlíð árið 1939 og þar bjuggu þau í liðlega 30 ár. „Þetta var óræktað holt í útjaðri borgar- innar sem þau hjónin breyttu í fallegan skógarreit sem nú er í eigu Reykjavíkurborgar. Land- vernd hefur lengi haft áhuga á að opna miðstöð fræðslu um náttúru og umhverfi fyrir börn og ung- linga og það væri viðeigandi minnisvarði um þau hjónin að gera Bjarkahlíð að slíkri miðstöð, segir Ólöf að lokum. Dætur Hákonar og Ólafar, Skógræktarfélag Íslands og Landvernd bjóða til samkomu í Bjarkahlíð við Bústaðaveg á sunnudaginn klukkan 14 til að minnast aldarafmælis fyrsta for- manns Landverndar. ■ 28 23. október 2004 LAUGARDAGUR JOHNNY CARSON Bandaríski spaugarinn og spjallþáttastjórnand- inn fæddist á þessum degi árið 1925. 100 ÁR ERU LIÐIN FRÁ FÆÐINGU FYRSTA FORMANNS LANDVERNDAR „Lýðræði þýðir að hver sem fullorðnast get- ur orðið forseti og þeir sem fullorðnast ekki geta orðið varaforseti.“ - Johnny Carson er með pólitíkina á hreinu. timamot@frettabladid.is ANDLÁT Benedikt Ingólfsson, Ölduslóð 30, Hafnarfirði, lést 14. október. Ísak Sigurgeirsson lést 16. október. Dr. George Washington Simons III, Bandaríkjunum, lést 18. október. Gunnar Mogensen, Markarvegi 3, Reykjavík, lést 19. október. Guðni Jón Guðbjartsson, fyrrv. stöðvar- stjóri Ljósafossi, lést 20. október. Helga Ásgeirsdóttir, Bergstaðastræti 45, lést 20. október. Ingibjörg Salóme Danivalsdóttir, Borg- arvegi 2, Njarðvík, lést 21. október. Ólafur Kristján Ragnarsson, elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, lést 21. októ- ber. JARÐARFARIR 10.30 Bjarni Pálsson, Ólafshúsi, Blöndu- ósi, verður jarðsunginn frá Blönduóskirkju. 11.00 Ísak Sigurgeirsson verður jarð- sunginn frá Húsavíkurkirkju. 14.00 Oddur Jakob Bjarnason, Engjavegi 20, Ísafirði, verður jarðsunginn frá Ísafjarðarkirkju. 14.00 Unnur Stefánsdóttir, frá Reyðará, Siglunesi, verður jarðsungin frá Siglufjarðarkirkju. HÁKON GUÐMUNDSSON Var einn stofnenda Landverndar og fyrsti formaður samtak- anna en í stjórnartíð hans festu kjörorðin „hreint land – fagurt land“ sig í sessi. Á þessum degi árið 42 fyrir Krists burð stytti Markús Júníus Brútus sér aldur eftir að hafa gertapað orrustu við Oktavían- us og Markús Antóníus i Grikk- landi. Brútus var náinn vinur Júlíusar Sesars en snerist gegn honum og var, ásamt Kassíusi, einn forsprakkanna í morðsamsær- inu gegn einvaldinum. Þeir fé- lagar töldu Sesar standa í vegi fyrir endurreisn rómverska lýð- veldisins. Morðið á Sesari skil- aði þó ekki því sem Kassíus og Brútus vonuðust til og Róma- veldi logaði í illdeilum og átök- um eftir að Sesar féll frá. Kassíus og Brútus tókust á um völdin við Oktavíanus og Mark- ús Antóníus. Kassíus varð að lúta í lægra haldi fyrir Antóní- usi í bardaga í Grikklandi fyrr í mánuðinum og stytti sér aldur eftir það. Þegar Brútus tapaði svo öðru sinni, á sama stað, fyrir Oktavíanusi og Antóníusi framdi hann einnig sjálfsmorð. Oktavíanus og Markús Antóní- us lentu síðan upp á kant og Oktavíanus varð fyrsti keisari Rómaveldis árið 27 fyrir Krist og kallaði sig Ágústus upp frá því. 23. OKTÓBER 42 F. KR. Markús Júníus Brútus framdi sjálfs- morð eftir tap í orrustu í Grikklandi. ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR 1915 Um 25.000 konur fara í mótmælagöngu um götur New York og krefjast þess að fá kosningarétt. 1929 Dow Jones-hlutabréfavísi- talan byrjar að hrapa og í kjölfarið fylgir hrun á hluta- bréfamörkuðum sem markar upphaf kreppunnar miklu. 1946 Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna fundar í fyrsta sinn í New York. 1958 Rússneska skáldið Boris Pasternak hlýtur bók- menntaverðlaun Nóbels fyr- ir Dr. Zhivago. Yfirvöld í Sov- étríkjunum þrýsta á hann að afþakka verðlaunin. 1989 Ungverjaland fær sjálfstæði eftir að hafa verið undir stjórn Sovétríkjanna í 33 ár. 1992 Akihito verður fyrsti Jap- anskeisarinn til að stíga fæti á kínverska grund. Brútus styttir sér aldur                                       !"#   $ !  #%& ' #!      !  "  !    " # #   !    $ " # #   !    % " # # ) "  ! !  #   %% !  ' # $     !     "  %*      !         $  !'  !   '$  % +!  "       '         ,         &  '( )&!!*(    Okkar ástkæri eiginmaður og faðir, Dr. George Washington Simons III prófessor í barnabæklunarlækningum, Medical College of Wisconsin, lést mánudaginn 18. október á Landspítala, Fossvogi. Útför hans fer fram frá Mosfellsdal þriðjudaginn 26. október kl. 13.00. Sigrún Magnúsdóttir Simons, Christina Herborg Simons, Anna Maya Simons. Maðurinn minn Ólafur Nikulásson fyrrum bóndi í Holti á Síðu lést á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi fimmtudaginn 21. október. Jarðarförin auglýst síðar. Sigurlaug Björnsdóttir. „Vikan er búin að fara í vinnu að mestu leyti og vinnan mest verið að snúast um undirbúning en nú fer holskeflan að bresta á með jólabókunum,“ segir Kristján B. Jónasson, útgáfustjóri Eddu. „Ég fór reyndar í mæðraskoðun í gær- morgun með konu minni,“ segir Kristján, sem jafnframt á von á sínu fyrsta barni í næsta mánuði. „Strákurinn dafnar vel og allt lít- ur vel út þannig að maður bíður bara spenntur,“ segir Kristján, sem hefur meðal annars verið að undirbúa útgáfu á bókinni Ís- lenski hesturinn sem kemur út næsta fimmtudag. „Bókina prýðir fjöldi ljósmynda og er hún í stóru broti eins og Perlubækurnar sem flestir þekkja,“ segir Kristján, sem einnig hefur staðið í undir- búningi á stórri útgáfuhátið í tengslum við bókina sem haldin verður í Reiðhöllinni. „Maður hef- ur svo verið að kíkja á stóru skáldsögurnar sem eru að koma og var ég síðast að lesa bók eftir Þórarin Eldjárn sem heitir Barón- inn og er söguleg skáldsaga eins og þær gerast bestar.“ ■ Undirbýr bækur og barn KRISTJÁN B. JÓNASSON Hefur staðið í undirbúningi í vikunni vegna jólabókaútgáfu Eddu. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P JE TU R Hreint land – fagurt land 40-41 (28-29) tímamót 22.10.2004 15:22 Page 2

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.