Fréttablaðið - 23.10.2004, Blaðsíða 51

Fréttablaðið - 23.10.2004, Blaðsíða 51
LAUGARDAGUR 23. október 2004 39 Furðulegt háttalag hunds um nótt, margverðlaunuð metsölubók Marks Haddon, er komin út í ís- lenskri þýðingu Kristínar R. Thorlacius. Söguhetjan er 15 ára einhverfur drengur sem er stærð- fræðiséní. Í bókinni er að finna hinar ýmsu stærðfræðiformúlur og þrautir og því ekki létt verk fyrir leikmann að koma þeim öll- um til skila. Kristín segir að synir og frændur hafi lagt henni lið en þeir eru sérfræðingar á ýmsum sviðum. Örnólfur er stjörnufræð- ingur. Ólafur er veðurfræðingur og Finnnbogi er jarðfræðingur. Lárus Thorlacius, bróðursonur Kristínar, er eðlisfræðingur, og lagði einnig sitt af mörkum. „Ég leitaði einnig til fleiri sér- fræðinga, talaði við lækna vegna ýmissa lýsinga í bókinni,“ segir Kristín. „Ég hef aldrei þurft að tala við jafn marga út af þýðingu á bók.“ Hún segist hafa haft afar mikla ánægju af því að þýða bók- ina enda hafi hún hrifist af henni við fyrsta lestur. Finnbogi Rögn- valdsson, sonur Kristínar, segist hafa þýtt nokkrar stærðfræð- isannanir og nokkur fræðiheiti og fagorð. „Hlutur minn var afskap- lega lítill og Kristín á heiðurinn af þýðingunni. Bókin finnst mér frá- bær og á allt öðru plani en annað sem maður hefur áður lesið,“ seg- ir Finnbogi. ■ Ný skáldsaga eftir Marquez Aðdáendur Nóbelsverðlaunahöf- undarins Gabriel Garcia Marquez hafa beðið í áratug eftir nýrri skáldsögu frá honum. Nú er bókin komin út. Hún heitir í lauslegri þýðingu Minningar um þunglyndu hórurnar mínar og gerist á sjötta áratugnum. Aðalpersónan er ní- ræður karlmaður sem í tilefni af- mælis sína ákveður að eyða nótt með hreinni mey. Bókin er ein- ungis 115 blaðsíður og áætlað er að hún verði prentuð í um milljón eintökum í spænsku útgáfunni. Útkomu bókarinnar var flýtt vegna þess að óprúttnir náungar voru byrjaðir að selja sjóræn- ingjaeintök af verkinu á götum Kolumbíu. Þar í landi er gríðarleg sala á ólöglegum DVD-diskum, bókum og geisladiskum sem eru þá iðulega á hálfvirði. Marquez fékk Nóbelsverðlaun- in í bókmenntum árið 1982. Fyrir tveimur árum gaf hann út fyrsta bindi endurminninga sinna sem fékk gríðarlega góða dóma. ■ FURÐULEGT HÁTTALAG HUNDS UM NÓTT Kristín R. Thorlacius þýddi þessa frábæru bók og sérfræðingar réttu henni hjálparhönd við þýðinguna. Sérfræðingar rýna í verðlaunahund GABRIEL GARCIA MARQUEZ Ný skáld- saga er komin út eftir hann. Fyrirmyndir í Atómstöðinni Hannes Hólmsteinn Gissurarson hélt í gær fyrirlestur í Háskóla Ís- lands um skáldsöguna Atómstöðina eftir Halldór Laxness. Hannes telur að Atómstöðin eigi sér sterka fyrirmynd í bókinni Anna öreigastúlka (Anna prolet- arka) eftir tékkneska kommúnist- ann Ivan Olbracht, sem gerist í Prag 1919-1920, en Einar Olgeirsson hafði einmitt í ritdómi 1932 bent Kiljan á þessa bók sem réttar og sannar öreigabókmenntir. Hannes Hólmsteinn sagði að ein fyrirmynd Uglu sé Arnheiður Sig- urðardóttir og séu vísbendingar um það í sögunni, auk þess sem Kiljan hafi látið að því liggja við Arnheiði sjálfa. Organistinn sé settur saman úr tveimur mönnum, Erlendi í Unu- húsi og Þórði Sigtryggssyni. Fyrir- myndir Búa Árlands séu aðallega Guðmundur Vilhjálmsson, forstjóri Eimskipafélagsins, og Pálmi Hann- esson rektor. Forsætisráðherrann sé auðvitað Ólafur Thors. Aukapersónur sögunnar eigi sér líka fyrirmyndir. Landaljómi sé til dæmis Thor Vilhjálmsson, sonur Guðmundar Vilhjálmssonar, guðinn briljantín, sé Ragnar Frímann Kristjánsson, sem alræmdur var um 1945, og Kleópatra eigi sér fyrirmynd í Guðmundu Sigurðar- dóttur. Bítar eða Tvö hundruð þús- und naglbítar sé settur saman úr Sigurjóni Péturssyni í Álafossi og Jóhanni Þ. Jósefssyni, en blýgrái, sorglegi maðurinn sé vitaskuld Jónas frá Hriflu. ■ Kaktusblómið og nóttin Um ævi og skáldskap Jóhanns Sigurjónssonar. Höfundur Jón Viðar Jónsson. Afar athyglisverð bók sem varpar nýju ljósi á líf og skáldskap Jóhanns. Jón Viðar rýnir á gagn- rýninn hátt í leikrit og ljóð um leið og hann tekst á við goðsögnina um skáldið og þar kemur ýmislegt nýtt og forvitnilegt í ljós. Mjög góð ævisaga. [ BÓK VIKUNNAR ] HANNES HÓLMSTEINN Er með kenn- ingu um fyrirmyndir í Atómstöð Halldórs Laxness. 50-51(38-39) bókaopna 22.10.2004 18:02 Page 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.