Fréttablaðið - 23.10.2004, Blaðsíða 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
Viltu miða á 99 kr.?
Sendu SMS skeytið JA APF á
númerið 1900 og Þú gætir unnið.
99 kr/skeytið
IK
E
26
21
8
1
0.
20
04
©
In
te
r
IK
EA
S
ys
te
m
s
B.
V.
2
00
4
Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 18:30 | www.ikea.is
Jólin þín byrja í IKEA
350,-
KÖLD englavasi 22 sm
350,-
KÖLD skrautenglar úr viði 2 stk. 190 kr.
490,-
KÖLD kertastjaki
390,-
KÖLD jólasokkur 42 sm j l
KÖLD kertadiskur 16x16 sm 190 kr.
KÖLD serívettur
33x33 sm 50 stk. 190 kr.
KÖLD sprittkertastjakar 95 kr.
KÖLD 12 jólakort og umslög 490 kr.
KÖLD jólakarfa 25x19x9 sm
KÖLD gjafapokar 10x20 sm
4 stk. 190 kr.
KÖLD jólapappír
2x0,7 m 250 kr.
GLÄNSA ljósajólatré
83 perur, H60 sm 2.390 kr.
KÖLD stáldósir 2 stk. 590 kr.
KÖLD jólakúlur fiður
KÖLD pottaleppar
23x23 sm 2 stk. 390 kr.
GLÄNSA ljósakróna
Ø60 sm 2.890 kr.
Sigga Heimis
er íslenskur hönnuður hjá IKEA
í Svíþjóð. Hún tók þátt í hönnun
jólalínunnar í ár undir heitinu
NORDIC LIGHTS.
Innblásturinn er sóttur
til Íslands þar sem
allir skreyta fyrir
hátíðirnar og njóta
þess að lýsa upp
skammdegið.
390,-
Allt í strand
Mér finnst eins og það hljómidaglega í eyrunum á mér um
þessar mundir að viðræðum kenn-
ara og sveitarfélaga hafi siglt í
strand. Ég veit ekki hvort mig er að
dreyma eða hvort að þetta eru ein-
hverjar raddir í höfðinu á mér, en
þetta sækir á mig jafnvel bara þeg-
ar ég geng eftir Ægisíðunni eða eitt-
hvað. Það er einsog maður sé farinn
að heyra óma úr nágrenninu hvar-
vetna, kannski bara úr grásleppu-
skúrunum í fjörunni, einhverja
óræða rödd sem segir sífellt að
„viðræðum kennara og sveitarfé-
laga hafi siglt í strand“.
HVERNIG ætli það sé að sigla
alltaf viðræðum í strand? „Úpps,
þarna sigldum við viðræðunum í
strand. Fjandakorn.“ Ég hef verið
að spá dálítið í þetta á milli þess
sem raddirnar úr útvörpunum og
sjónvörpunum og – kannski – úr
grásleppuskúrunum, segja mér
þetta með að viðræðum kennara og
sveitarfélaga hafi siglt í strand. Er
þetta kannski þannig að menn setja
allt í einu upp einhverja svipi og
fara að verða ómálefnalegir? Fara
að benda. „En þú?“ „Nei, þú sagðir.“
Gretta sig. „Já, er það.“ Herma svo
eftir hvor öðrum og ulla. Og þá
segir Ásmundur kannski: „Hey,
boys. Þetta er bara rugl. Fariði
heim að sofa.“
EÐA ER þetta þannig að menn
þegja bara allt í einu. Sitja við sinn
hvorn borðsendann og horfa hvor á
annan, með krosslagða handleggi og
ásökunarsvip? Svo stendur annar
hópurinn upp og gengur út með
þjósti og einn segir kannski: „Okey
þá, ef þið viljið hafa þetta svona, þá
erum við sko bara farnir.“ Og
Ásmundur ber þá höfðinu í borð-
plötuna og segir: „ó my god, men.
Dísess.“
ÞAÐ má ímynda sér margar leiðir.
Eins gott að þjóðfélagið er ekki allt
svona, í stóru og smáu. Endalaust að
sigla í strand. Það væri erfitt.
SEGJA MÁ almennt að manneskj-
ur skiptist í tvo flokka: Þær sem
búa til vandamál og þær sem leysa
vandamál. Og þannig virkar síðan
hagkerfið. Endalaus samskipti þess-
ara tveggja hópa. Einn býr til
vandamál. Annar leysir þau. Báðir
hóparnir eru jafnmikilvægir, en það
er nauðsynlegt að hafa hlutföllinn á
milli þeirra svona nokkurn veginn
til helminga.
OG NÚ ætla ég að halda fram
kenningu: Kannski er það þannig að
í Karphúsinu er of mikið af fyrr-
nefnda hópnum, af þeim sem búa til
vandamál, en of lítið af hinum, þeim
sem leysa þau. Kannski kunna þess-
ar samninganefndir ekkert annað en
að sigla í strand, sem þær gera ein-
mitt með eftirtektarverðum ár-
angri. Það er hálf vonlaus staða.
Hópur af fólki í tómu niðurrifi.
Vantar jákvæðnina. Og þá er ég
með eina hugmynd: Má ekki ein-
faldlega skipta nýju fólki inná? Fá
ferskt blóð í leikinn? ■
BAKÞANKAR
GUÐMUNDAR
STEINGRÍMSSONAR
64 bak 22.10.2004 19:13 Page 2