Fréttablaðið - 12.11.2004, Blaðsíða 2
2 12. nóvember 2004 FÖSTUDAGUR
Borgarráð:
Þórólfur sakar Vilhjálm um róg
STJÓRNMÁL Þórólfur Árnason, frá-
farandi borgarstjóri, sakaði Vil-
hjálm Þ. Vilhjálmsson, oddvita
sjálfstæðismanna, um „róg“ í bók-
un á borgarráðsfundi í gær. Á
fundinum baðst Þórólfur form-
lega lausnar sem borgarstjóri.
Í bókun sinni gerir Þórólfur
ummæli Vilhjálms í DV að um-
ræðuefni en þar fullyrti Vilhjálm-
ur að borgarstjóri fengi 20 millj-
ónir króna fyrir að vera á launum
út kjörtímabilið og miðaði þar við
laun forsætisráðherra.
Þórólfur segir að Vilhjálmur
hafi verið viðstaddur þegar ráðn-
ingarsamningur hans hafi verið
lagður fram í borgarráði og
Vilhjálmi væri því kunnugt um að
hann nyti ekki biðlauna. Þórólfur
segist njóta sömu kjara og þeir
fjórir menn sem verið hafi borg-
arstjórar frá því að Vilhjálmur
settist í borgarstjórn. „Því er ljóst
að ... ummæli Vilhjálms Þ. Vil-
hjálmssonar falla gegn betri vit-
und. Þau eru vísvitandi rógur,“
segir í bókun Þórólfs Árnasonar,
hans síðustu í borgarráði.
Ekki náðist í Vilhjálm Þ. Vil-
hjálmsson í gær. - ás
Ólafur Örn ráðinn
án auglýsingar
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra gekk meðan hann var enn utan-
ríkisráðherra frá ráðningu Ólafs Arnar Haraldssonar í starf forstjóra
Ratsjárstofnunar, án þess að staðan væri nokkru sinni auglýst.
RATSJÁRSTOFNUN Gunnar Snorri
Gunnarsson, ráðuneytisstjóri í
utanríkisráðuneytinu, segir að
kannað hafi verið hvernig standa
beri að ráðningu í starf forstjóra
Ratsjárstofnunar og það álit feng-
ist að ekki væri skylt að auglýsa
starfið. Aðrir komu ekki til greina í
stöðuna enda segir Gunnar Snorri
að það hafi verið komin „af stað
ákveðin umræða um það hver
myndi taka við af Jóni Böðvars-
syni“, sem verður sjötugur eftir
tvö ár og hættir þá vegna aldurs.
„Aðstæður breyttist þannig að
kapall myndaðist,“ segir Gunnar
Snorri. Kapallinn fólst í því að
Björn Ingi Knútsson, flugvallar-
stjóri á Keflavíkurflugvelli, fer
fljótlega í ársleyfi frá störfum og
mun starfa í eitt og hálft ár fyrir al-
þjóðleg samtök í Montreal í
Kanada, Civil Aviation Organ-
ization. Það var því ákveðið að Jón
Böðvarsson, fráfarandi forstjóri,
myndi leysa hann af á Keflavíkur-
flugvelli og fara svo á eftirlaun.
Ólafur Örn, sem var fyrst var ráð-
inn inn í stofnunina sem aðstoðar-
maður Jóns og hafði starfað í stofn-
uninni í nokkra mánuði, var ráðinn
forstjóri. Hann tekur við starfinu
um áramótin.
„Það var að hluta til lykilatriði
að þetta væri maður sem Banda-
ríkjamenn myndu sætta sig við því
að það er fjárhagsleg ábyrgð gagn-
vart þeim,“ segir Gunnar Snorri.
„Hugmyndin kom upp talsvert fyrr
á árinu og var kynnt fyrir Banda-
ríkjamönnum. Ólafur Örn kom til
greina og sá kostur var kynntur
fyrir þeim. Þeir tóku því vel. Það
má segja að þeim hafi gefist kostur
á að kynnast honum dálítið,“ segir
hann og telur einkum að víðtæk
reynsla Ólafs Arnar á ýmiss konar
vettvangi hafi þarna gert hann
hæfastan í starfið.
Engar reglur gilda um ráðningu
í starf forstjóra Ratsjárstofnunar.
Ólafur Örn er hvorki æviráðinn né
ráðinn til fimm ára. Um ráðning-
una gilda þó hefðbundin ákvæði
um uppsagnarfrest. Staðan hefur
aldrei verið auglýst og ekki er gert
ráð fyrir að hún verði auglýst eftir
fimm ár.
ghs@frettabladid.is
Heilbrigðisstofnun
Suðurlands:
Skóflu-
stunga tekin
HEILBRIGÐISMÁL Í nýrri viðbygg-
ingu Heilbrigðisstofnunar Suð-
urlands á Selfossi verður hjúkr-
unarheimili með 26 rýmum, hús-
næði heilsugæslunnar á staðnum
og aðstaða fyrir iðju- og sjúkra-
þjálfun.
Framkvæmdir við hina nýju
viðbyggingu hófust í gær með
því að tekin var fyrsta skóflu-
stunga að húsinu. Í kjölfar þess
var svo undirritaður verksamn-
ingur vegna byggingarinnar við
JÁ Verktaka á Selfossi, sem áttu
lægsta tilboð í verkið, tæplega
589 milljónir króna. Sjö gild til-
boð bárust í verkið, þau voru á
bilinu tæplega 589 til tæplega
692 milljónir króna. - jss
„Ástarvikan viðheldur að minnsta kosti
von okkar um að fá að búa fyrir vestan.“
Soffía Vagnsdóttir, forseti bæjarstjórnar Bolungar-
víkur, stóð fyrir ástarviku í ágúst þar sem Bolvík-
ingar voru hvattir til að fjölga sér. Ef kenning
tveggja bandarískra landfræðinga er heimfærð á
Vestfirði eru framtíðarhorfur margra sveitarfélaga
þar slæmar. Bolungarvík var á meðal þeirra.
SPURNING DAGSINS
Soffía, bjargar ástarvikan framtíð
Bolungarvíkur?
Ögmundur Jónasson:
Störf ber
að auglýsa
RATSJÁRSTOFNUN „Þetta mál hef ég
ekki skoðað sérstaklega. Hitt veit
ég að stjórnvöld og ríkið eru í
auknum mæli farin að virða að
vettugi skyldur sínar til að auglýsa
störf embættismanna laus til um-
sóknar. Staðreyndin er sú að hin al-
menna regla kveður á um að það
beri að auglýsa störf þótt annað sé
heimilt í undantekningartilvikum.
Þegar undantekningin er orðin að
almennri reglu þá er illa komið,“
segir Ögmundur Jónasson, þing-
maður Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs. - ghs
ÓLAFUR ÖRN HARALDSSON
Ólafur Örn tekur við starfi forstjóra Ratsjárstofnunar um áramótin. Hrókeringar eiga sér
stað. Fráfarandi forstjóri leysir af á Keflavíkurflugvelli.
Hæstiréttur:
Sýknaður
af innbroti
DÓMSMÁL Hæstiréttur sýknaði
síbrotamann af innbroti í verslun
í Mjódd þar sem þrjú þúsund
krónum var stolið úr peninga-
kassa verslunarinnar.
Héraðsdómur Reykjavíkur
hafði áður sakfellt manninn og
dæmt hann til sex mánaða fang-
elsisvistar. Skófar mannsins
fannst í versluninni og leiddi
rannsókn í ljós að það gat ekki
verið eftir annan skó en hans.
Dómurum Hæstaréttar þótti þó
ekki sannað að skófarið væri frá
því að brotist var inn í verslunina.
Maðurinn sagðist hafa verið
ásamt vinkonu sinni í versluninni
daginn áður og hefði þá getað
skilið eftir skófarið. Vinkona
mannsins bar ekki vitni
Maðurinn hefur verið dæmdur
sextán sinnum fyrir hegningar-
lagabrot, oftast fyrir þjófnað og
skjalafals. - hrs
Kostnaður:
Bandaríkja-
menn borga
RATSJÁRSTOFNUN Ratsjárstofnun
hefur mjög sjálfstæða stöðu í ís-
lensku stjórnkerfi. Hún heyrir
beint undir varnarmálaskrifstofu
utanríkisráðuneytisins og hefur
enga stjórn. Bandaríkjamenn
fjármagna starfsemi stofnunar-
innar og nemur kostnaður við
reksturinn tæpum 1.400 milljón-
um króna samkvæmt fjárlögum
árið 2005. Stofnunin er með fjórar
ratsjárstöðvar; á Gunnólfsvíkur-
fjalli, við Keflavíkurflugvöll, í
Bolungarvík og á Höfn í Horna-
firði. Höfuðstöðvarnar eru í
Reykjavík. Starfsmenn eru um 80
talsins. - ghs
Borgarráð samþykkti að breyta gjaldskrá Leikskóla Reykjavíkur:
Mikil hækkun um áramót
fyrir námsmenn í sambúð
BORGARMÁL Leikskólagjöld hækka
um allt að 42 prósent um áramótin
hjá fólki í sambúð þar sem annað
foreldrið er í námi.
Borgaryfirvöld samþykktu í
gær að breyta gjaldskrá Leikskóla
Reykjavíkur. Rökin fyrir breyting-
unni eru meðal annars þau að
tekjutenging námslána hafi verið
afnumin og því hafi hagur náms-
manna vænkast. Jarþrúður Ás-
mundsdóttir, formaður Stúdenta-
ráðs, hefur gagnrýnt þessa rök-
semdafærslu harðlega og sagt að
árangur stúdenta í að fá afnám
tekjutengingarinnar samþykkt eigi
ekki að bitna á þeim með þessum
hætti.
Þorlákur Björnsson, formaður
leikskólaráðs, segir að þegar tekju-
tengingin var við lýði hafi verið bú-
inn til sérstakur gjaldflokkur fyrir
foreldra í sambúð þar sem annað
var í námi. Nú sé búið að afnema
tekjutenginguna og því rökrétt að
fella niður þennan sérstaka gjald-
flokk. Hann undrast að fólk skuli
ekki fallast á þessi rök.
Samkvæmt núgildandi gjald-
skrá greiða foreldrar þar sem ann-
að er í námi 22.200 krónur á mán-
uði fyrir níu klukkustunda vistun.
Um áramótin mun gjaldið hækka í
31.330 krónur fyrir þetta fólk.
Gjald fyrir foreldra þar sem annað
er öryrki mun hins vegar lækka úr
22.200 krónum á mánuði í 16.120
krónur. - th
FORMAÐUR LEIKSKÓLARÁÐS
Þorlákur Björnsson segir að leikskólagjöld
standi aðeins undir 28 prósentum af
rekstrarkostnaði leikskóla borgarinnar.
ÞÓRÓLFUR ÁRNASON
Kvaddi borgina með harð-
orðri bókun í garð oddvita
sjálfstæðismanna.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
FARIÐ INN Í ÓLÆST HÚS Farið var
inn í ólæst hús á Vopnafirði og
þaðan stolið geislaspilara, á annan
tug geisladiska og nokkrum þús-
undum í peningum. Talið er að far-
ið hafi verið inn um síðustu helgi
en það uppgötvaðist ekki fyrr en í
fyrrakvöld. Málið er í rannsókn
lögreglunnar á Vopnafirði.
Héraðsdómur Reykjaness:
Fangelsi fyrir
fjársvik
DÓMSMÁL Rúmlega þrítug kona
var í Héraðsdómi Reykjaness
dæmd í fimm mánaða fangelsi
fyrir fjársvik. Konan sveik út vör-
ur og þjónustu fyrir tæpar 260
þúsund krónur með því að gefa
símleiðis upp númer á greiðslu-
korti sem hún átti ekki.
Konan játaði öll brotin sem hún
var ákærð fyrir en þau voru sam-
tals 27. Hún hefur átta sinnum
brotið gegn almennum hegningar-
lögum, sjö sinnum fyrir auðgun-
arbrot og einu sinni fyrir skjala-
fals. Vegna ítrekaðra skilorðsrofa
þótti ekki koma til greina að skil-
orðsbinda refsinguna. ■
02-03 11.11.2004 20:49 Page 2