Fréttablaðið - 12.11.2004, Síða 18
LÖGREGLUMÁL Meira en tuttugu
karlmenn hafa verið yfirheyrðir
af lögreglunni í Reykjavík vegna
rannsóknar á starfsemi nuddstofu
sem auglýsti erótískt nudd. Grun-
ur er um að á nuddstofunni hafi
farið fram vændi af einhverju
tagi. Mennirnir eru taldir hafa
keypt kynlífsþjónustu á nuddstof-
unni. Rannsókn málsins er rétt að
ljúka.
Rannsóknin hófst í apríl þegar
húsleit var gerð á þremur nudd-
stofum. Ein þerra
var rannsökuð
frekar. Tvær
konur störfuðu
á nuddstofunni. Önnur þeirra er
talin hafa rekið stofuna og er hún
grunuð um brot á almennum
hegningarlögum. Ekki er grunur
um að viðskiptamenn stofunnar
hafi getað keypt eiginlegar sam-
farir. Þjónustan var seld nokkuð
háu verði, samkvæmt heimildum
blaðsins. Jafnhliða rannsókn á
hugsanlegri vændisstarfsemi
beinist rannsóknin að bókhalds-
brotum og skattsvikum.
Mál sem þessi eru fátíð í ís-
lensku réttarkerfi. Fyrir um ári
síðan var kona í Hafnarfirði
dæmd í þriggja mánaða fangelsi
skilorðsbundið til tveggja ára,
fyrir vændi. Eiginmaður hennar
var dæmdur í sex mánaða fang-
elsi fyrir að hafa aðstoðað hana.
Þeim var einnig gert að greiða
hálfa milljón króna í ríkissjóð.
Þjónustuna ráku hjónin frá byrj-
un júní 2002 til loka febrúar 2003
og er talið að þau hafi hagnast um
rúmlega níu milljónir. Konan
þjónustaði fjölda karlmanna á
heimili sínu, á gistihúsi og í bíl-
skúr. Þjónustuna auglýsti hún á
vefsíðu sinni sem erótískt nudd,
samfarir og munnmök. Þóttu gögn
sem lögð voru fram í málinu
benda sterklega til þess að eigin-
maður konunnar hafi í öllu falli
átt þátt í að konan hóf að stunda
vændi og átt þátt í að halda þjón-
ustunni gangandi.
hrs@frettabladid.is
18 12. nóvember 2004 FÖSTUDAGUR
BRÚIN TVÖFÖLDUÐ
Unnið er við það hörðum höndum nú að
tvöfalda brúna yfir Hörgá á Ólafsfjarðar-
vegi. Nokkuð hefur verið um árekstra á og
við brúna.
Neytendasamtökin:
Minnstur verðmunur á tveggja lítra mjólk
VERÐKÖNNUN Minnstur verðmunur
var á mjólk í tveggja lítra umbúð-
um í verðkönnun sem Neytenda-
samtökin gerðu á Akureyri í byrj-
un nóvember í samvinnu við
verkalýðsfélögin á staðnum. Mun-
aði 7,5 prósentum á Bónus sem
var með lægsta verðið og 10-11
sem var með hæsta verðið. Ef
verslað var í Bónus eða Nettó var
ódýrara að kaupa tvær eins lítra
mjólkurfernur en tveggja lítra
fernu. Í Bónus munaði 13 krónum.
Mestur verðmunur var á Ora
baunum í dós eða um 87%. Baun-
irnar voru ódýrastar í Bónus en
dýrastar í 10-11. Verðmunur var
meiri en 60% á tveimur öðrum
vörutegundum, Brazza og þurr-
geri í poka.
Í könnuninni var Bónus alltaf
með lægsta verðið en 10-11 var
oftast með hæsta verðið. Ef sett
var saman karfa úr þeim 16 vör-
um sem fengust í öllum verslun-
unum var munurinn á hæstu og
lægstu 26%.
Neytendasamtökin gerðu verð-
könnun á matvælum í nóvember
2002 en þá kostaði mjólkurlítrinn
lægst 75 krónur, en í dag er
lægsta verðið 73 krónur. - ghs
Tuttugu karlar
voru yfirheyrðir
Meira en tuttugu karlmenn hafa verið yfirheyrðir þar sem þeir eru tald-
ir hafa keypt kynlífsþjónustu á nuddstofu. Tvær konur störfuðu á stof-
unni. Rannsóknin beinist einnig að bókhaldsbrotum og skattsvikum.
SKEMMTUN Rokksýningin í Egils-
búð í ár ber yfirskriftina Glímt
við þjóðveginn. Sýnt hefur verið
þrisvar sinnum fyrir troðfullu
húsi og mikinn fögnuð gesta.
Þessar uppákomur BRJÁN og
Egilsbúðar eru löngu orðnar
landsþekktar, enda sýnt um miðj-
an janúar ár hvert á Broadway,
jafnan fyrir fullu húsi. Starfs-
mannafélög af Austurlandi og víð-
ar nota gjarnan tækifærið og
sækja sýninguna.
Það gerði starfsfólk Loðnu-
vinnslunnar hf. á Fáskrúðsfirði
fyrir skömmu, 90 manns, sem hélt
svo áfram glímunni við þjóðveginn
á heimleiðinni, því bílstjórar rút-
anna tveggja gerðu sér lítið fyrir
og keyrðu gegnum göngin milli
Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar
við mikinn fögnuð farþeganna.
Ekki er farið að hleypa um-
ferð formlega í gegnum göngin
en þó er vitað til þess að bílar
skjótast þar í gegn við og við.
Áætlað er að taka göngin í notk-
un næsta haust. ■
■ BANDARÍKIN
Samfylkingin Suðurkjördæmi
Aðalfundur kjördæmisráðs Samfylkingarinnar í
Suðurkjördæmi verður haldinn í Árhúsum á
Hellu föstudaginn 19. nóvember kl. 18.00
Dagskrá:
• Aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins.
• Lagabreytingar.
• Málstofa um málefni sveitarstjórna.
Stjórnin
Sýning í Egilsbúð:
Glímt við þjóðveginn
GUÐMUNDUR GÍSLASON
Vertinn í Egilsbúð og SúEllen maður var í banastuði enda vanur glímunni við þjóðveginn.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/T
EI
TU
R
NUDDSTOFUR TIL RANNSÓKNAR
Tvær konur störfuðu á nuddstofu þar sem ýmiss kon-
ar kynlífsþjónusta var seld. Ekki er grunur um að
samfarir hafi staðið viðskiptavinum til boða.
M
YN
D
/G
U
N
N
IA
R
ER
N
IR
B
IR
G
IS
SO
N
VERÐKÖNNUN
Minnstur verðmunur var á mjólk í tveggja
lítra umbúðum í verðkönnun Neytenda-
samtakanna á Akureyri.
Seinheppinn Norðmaður:
Glæddi eld
með seðlum
NOREGUR, AP Seinheppinn Norðmað-
ur varð 160 þúsund íslenskum
krónum fátækari þegar hann kom
þreyttur og drukkinn heim úr gleð-
skap og glæddi eld í arni sínum.
Þegar maðurinn kom heim í
kalda og dimma íbúð sína á Lofot-
en sá hann að enn var glóð í arnin-
um. Hann þreifaði því eftir papp-
ír til að glæða eldinn. Fljótlega
fann hann pappírsbunka sem
hann bar á glæðurnar. Þegar eld-
urinn tók við sér og tók að lýsa
upp herbergið sá maðurinn sér til
skelfingar að hann hafði gripið
seðla sem hann fékk sem greiðslu
fyrir sölu listaverks fyrr um dag-
inn. Þeir fuðruðu upp án þess að
hann fengi nokkuð að gert. ■
VERST VIÐ HEIMILISLAUSA Borg-
aryfirvöld í Little Rock í Ark-
ansas koma verst allra borgar-
yfirvalda fram við heimilislausa.
Þetta segja samtökin Þjóðar-
hreyfing fyrir heimilislausa. Aðr-
ar borgir sem ganga fram af
hvað mestri hörku gegn heimilis-
lausum eru Atlanta, Cincinnati og
Las Vegas.
18-19 11.11.2004 20:13 Page 2