Fréttablaðið - 12.11.2004, Síða 32
4
12. nóvember 2004 FÖSTUDAGUR
Ljúffeng máltíð með lágmarks fyrirhöfn
Balti • Korma • Sweet & Sour • Tikka Masala
Tilbrigði við kakó
Grunnuppskrift
4 msk. sykur 2 msk. kakó
örlítið vatn mjólk
örlítið salt
smjörklípa í lokin (ekki nauðsynlegt)
Aðferð
Bræðið sykur og
kakó í potti
með örlitlu af
vatni og salti.
Bætið mjólkinni
út í og smjörinu
og látið sjóða.
Farið þó gæti-
lega því mjólkin
getur verið fljót
að sjóða upp úr.
Tilbrigði
Gott er að nota púðursykur að hálfu
í staðinn fyrir hvítan sykur.
Hægt er að setja örlítið myntute í
kakóið sem gefur því extra kikk.
Kakó með vanillusykri er sérlega gott.
Þeir sem eiga erfitt með að láta kakó
koma í staðinn fyrir kaffi geta sett
kaffi að einum þriðja út í kakóið.
Sykurpúðar eru hrikalega góðir í
kakó.
Þeir sem vilja konunglegt kakó bæta
að sjálfsögðu út í það appelsínu-
líkjör eða koníaki.
Að lokum má ekki gleyma þeytta
rjómanum, en hann er algjörlega
ómissandi í kakóið.
Kakó, kúrerí og kertaljós
Nú er komið haust og því heldur en ekki tími til að fá sér heitt og gott kakó.
Ef einhvern tíma er kakótími þá
er það núna. Kakó er ekki bara
gott heldur líka róandi og nýlega
voru birtar rannsóknir sem
leiddu í ljós að kakóbolli fyrir
svefninn er meinhollur fyrir
hjartað og fullur af vítamínum
og andoxunarefnum. Þá kom líka
í ljós að í kakóinu eru efni sem
hægja á öldrun og geta komið í
veg fyrir alls kyns sjúkdóma.
Það eru margar aðferðir við að
búa til kakó en grunnuppskriftin
er einföld og síðan er endalaust
hægt að breyta til. Það er til
dæmis gott að bæta örlitlum app-
elsínusafa út í grunnuppskrift-
ina. Þá geta krydd eins og til
dæmis kanill, mynta og pipar
verið spennandi viðbót, að ekki
sé talað um skvettu af líkjör eða
öðru áfengi sem gerir kakóið að
hreinum unaði.
Kakó, kertaljós, kúr og köku-
maul er dagskipanin fram að jól-
um og hér á eftir fylgja nokkrar
tillögur um kakódrykki. ■
Staðreyndir um kakó
Kólumbus kom fyrst með kakóið til Evrópu
Kristófer Kólumbus kom með fyrstu kakóbaunirnar til Evrópu árið 1502, Cortés
flutti líka með sér kakóbaunir þegar hann sigldi aftur til Spánar árið 1526 og
tæpum fjörutíu árum síðar var fyrsti skipsfarmurinn af kakóbaunum fluttur
austur um haf. En kakóið var reyndar spænskt leyndarmál í hartnær heila öld;
það barst ekki til Ítalíu fyrr en árið 1606 og varð ekki vinsælt í Frakklandi fyrr
en eftir að spænska prinsessan María Theresa giftist Loðvíki fjórtánda árið
1660. En þar með var skriðan líka komin af stað og þá spruttu upp kakóhús
víða um Evrópu.
Komið var fram á 18. öld þegar mönnum hugkvæmdist að nota mjólk í stað
vatns í kakó. Heiðurinn af þessari uppgötvun átti lávarðurinn Hans Sloane, sem
var einkalæknir Önnu drottningar og stofnandi British Museum. Þessi nýja
kakóuppskrift fór leynt í fyrstu en var svo seld apótekara í London og komst
síðar í hendur Cadbury-bræðra.
Nú er tíminn til að kúra undir teppi með kakóbolla.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
Kakó og heitt
súkkulaði
Gjörólíkir drykkir
Það er reginmunur á kakói og
heitu súkkulaði. Hugtökin eru
notuð jöfnum höndum, en kakó og
heitt súkkulaði eiga álíka margt
sameiginlegt og suðusúkkulaði
og hvítt sætt súkkulaði.
Í kakó er notað
kakóduft meðan
heitt súkkulaði
er bráðið
hreint súkku-
laði. Kakó er
alveg nógu
gott hversdags
en um jól og
aðrar stór-
hátíðar er full
ástæða til að
hafa meira
við og bjóða upp á rjúkandi heitt
súkkulaði með rjóma. Athugið að
nú fæst súkkulaði með allt að 70%
kakóinnihaldi og því að tilvalið að
prófa sig áfram með svoleiðis
góðgæti í súkkulaðigerð hátíð-
anna. ■
Þó að kakóbaunin sé
grunnurinn að bæði
kakódrykk og heitu
súkkulaði er um tvo
ólíka drykki að ræða.
32-33 (04-05) matur ofl 11.11.2004 15:55 Page 2