Fréttablaðið - 12.11.2004, Page 70
■ VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á bls. 6
1
3
2
Erpur Eyvindarson.
Norska landsliðinu.
Unnur Stefánsdóttir.
54 12. nóvember 2004 FÖSTUDAGUR
L ýði Árnasyni, héraðslækni áFlateyri, er margt til listalagt. Hann hefur til dæmis
gert bíómynd í fullri lengd og nú
hefur hann gefið út plötu með
hljómsveit sinni Göglum.
„Orðið gögl er dregið af orðun-
um garg og fugl og er fornt orð
yfir gaggandi fiðurfé og á helst
við svani, gæsir og endur. Þetta er
smart orð,“ segir Lýður, sem vill
meina að Gögl sé miðaldahljóm-
sveit. Þessi fyrsta plata sveitar-
innar heitir Frá Valhöll til
himnaríkis og hefur verið býsna
lengi í vinnslu. „Það er langt að
ganga frá Valhöll til himnaríkis og
þetta hefur tekið sjö ár. Nafnið
skírskotar til efnistaka á plötunni
en hún fer frá upphafi Íslands-
byggðar fram á okkar dag. Öll lög-
in eru frumsamin, sem er góð
tilbreyting miðað við margt af því
sem er í gangi um þessar mundir.“
Lýður segir að ákveðið drauga-
þema gangi í gegnum plötuna.
„Við tökum á því besta hérna og
hinum megin við hliðið og lítum
aðeins aftur í aldirnar til forfeðra
okkar við ýmsar kringumstæður.
Þetta er þjóðleg tónlist, eilítið
Þursaskotin en heldur myrkari.“
Lýður segist vera með topp-
mannskap á plötunni og segir Jón
Rósmann Mýrdal vera þar
fremstan meðal jafningja. „Hann
er aðalgaglið.“
Gögl halda glæsilega útgáfu-
tónleika á Draugabarnum á
Stokkseyri og það er óhætt að
segja að upphitunaratriðin séu
óvenjuleg og að Lýði hafi tekist að
smala saman misjöfnum sauðum
en þannig hlýtur það að teljast til
tíðinda að þeir Reynir Traustason
blaðamaður og Árni Johnsen,
fyrrverandi alþingismaður, ætli
að sjá saman um stigavörslu í
poppgátu.
„Ólafur Helgi Kjartansson,
sýslumaður þeirra Sunnlendinga
og aðdáandi Rolling Stones númer
eitt, ætlar að etja kappi við popp-
séní Bylgjunnar, Þorgeir Ást-
valdsson. Það er víst að hvorugur
þolir að tapa og ég hef áreiðanleg-
ar heimildir fyrir því að sýslu-
maðurinn sitji sveittur á
bókasafninu á Selfossi. Ég verð
spyrill en þeir Reynir og Árni
verða stigaverðir og það verður
að teljast til tíðinda.“
Það er líklega flestum í fersku
minni að það voru fréttir Reynis
Traustasonar í DV af Árna John-
sen sem hrundu af stað þeirri at-
burðarás sem kostaði Árna þing-
sætið á sínum tíma. Það mætti því
ætla að það hefði verið erfitt að
leiða þá saman?
„Það var ekki mikið mál. Árni
hefur áreiðanlega lesið Biblíuna
og hefur fyrirgefninguna að leið-
arljósi og Reynir þarf náttúrlega
að sýna iðrun. Það veitir ekki af,
ekki bara út af þessu heldur svo
mörgu öðru.
Guðni Ágústsson ætlar svo að
reyna að særa upp framliðna
framsóknarmenn og í ljósi síðustu
skoðanakönnunar á fylgi flokk-
anna veitir honum víst ekkert af
því kallinum. Þá mun Illugi Gunn-
arsson, aðstoðarmaður Davíðs
Oddssonar, taka flygilinn til bæna
og innleiða sjálfa reimleikana,“
segir Lýður læknir, sem hefur
sett saman magnaða laugardags-
skemmtun í tilefni af útkomu nýju
plötunnar.
thorarinn@frettabladid.is
Fókus fylgir DV
í
dag
Nr. 261
12. nóvember
2004
01 11.11.2004
14:37 Page
3
Sætasta
ljóðskáld
á Íslandi
Frítt í bíó
Hátt í átta þúsund manns hafa
tekið þátt í netkosningu vegna
Edduverðlaunanna á Vísi.is.
Kosningunni lýkur klukkan 14.00
laugardaginn 13. nóvember.
Hægt er að skoða allar tilnefn-
ingar á sérstökum Edduvef á
Vísi.is. Þar má einnig finna kynn-
ingarþætti um tilnefningar í ein-
stökum flokkum sem og ýmsan
fróðleik um Edduverðlaunin,
verðlaunahafa frá upphafi og svo
framvegis.
Sjálf Edduverðlaunahátíðin fer
fram á Hótel Nordica á sunnudag-
inn kemur. Kristján Kristjánsson
úr Kastljósinu og Helga Braga
Jónsdóttir leikkona verða kynnar
á hátíðinni.
Átta þúsund hafa kosið
VÍSIR.IS Hægt er að kjósa á Vísi.is
fram til klukkan tvö á morgun.
LÝÐUR ÁRNASON Hefur gefið út plötu með hljómsveitinni Göglum. Hann blæs til útgáfuveislu á laugardaginn og sú samkoma er líkleg
til að komast á spjöld sögunnar. Gleðin byrjar klukkan 21 á Draugabarnum á Stokkseyri en lagt verður af stað með rútum frá Hátúni 12
klukkan 20.
LÝÐUR ÁRNASON: GEFUR ÚT PLÖTU OG VEKUR FORTÍÐARDRAUGA
Gaggandi fiðurfé á draugabar
1
5 6
87
9
12
15
10
13
16 17
11
14
18
2 3 4
...fær Þórólfur Árnason, starfs-
maður NTC, sem var tilbúinn að
taka við af nafna sínum sem
borgarstjóri.
HRÓSIÐ
Það er alltaf gaman að krydda klæðnað sinn að-eins með áberandi fallegum skóm og þá er alveg
málið að hafa þá gyllta, silfurlitaða eða glitrandi. Því
meiri glamúr, því betra. Hins vegar er allt gott í hófi
og nauðsynlegt að forðast að ofhlaða glamúrhlutun-
um á sig eins og 50 cent og félagar eiga til að gera.
Þykkar og litríkar sokkabuxur, helst munstraðar, eru nú aðskjóta upp kollinum í tískuheiminum. Þær mega vera
mjög þykkar og fínt ef þær eru úr ull. Bara nógu hlýjar! Nælon
er ekki málið, ekki einu sinni 100% nælon! Það er um að gera
að notfæra sér þessa tísku því annars er ekki hægt að hætta
sér út í pilsi við fallegu stígvélin sín án þess að fá blöðrubólgu.
Gamaldags húsgögn. Það er algjöróþarfi fyrir ungt fólk að splæsa í ný-
tísku húsgögn þegar það getur tekið við
gömlum og flottum tekkhúsgögnum og
sætum sófum frá ættingjum eða vinum.
Einnig er upplagt að kíkja í Góða hirðinn
eða Fríðu frænku!
Blacklight er sjaldan fyrirgefanlegt og það ákannski aðallega heima á einhverjum
plebbalegum skemmtistað eða í leiktækjasal
hjá þythokkíinu. En það er fátt hræðilegra en
blacklight-ljós á heimilum fólks og vonandi eru
fá heimili sem skarta því nema kannski heimili
smekkmannanna í hljómsveitinni Scooter.
Strákar með risastórar silfurlitaðar keðjur umhálsinn eða úlnliðinn, mjög oft með væminni
áletrun frá kærustunni, eru ekki að gera góða hluti.
Þetta er alveg glatað. Auk þess er heldur ekki flott
að vera með risastóra blingblinghnullunga í eyrna-
sneplunum ef þú hefur ekki þá afsökun að vera
rappari að reyna að meika það.
Tribal tattú slógu í gegn hérna um árið og þá flykktustmargir á húðflúrarastofuna og léttu brennimerkja sig
ævilangt. Þeir sjá sennilega eftir því núna því þetta er
ekkert annað en hryllingur. Kannski verður hægt að taka
þetta auðveldlega af eftir nokkur ár, vonandi fyrir grey
fólkið.
INNI ÚTI
Lárétt: 1 sóp, 5 að utan, 6 tímabil, 7
skyldir stafir, 8 sjáðu til, 9 ætla, 10 ein-
kennisstafir, 12 stafur, 13 líkamshluta, 15
fimmtíu og einn, 16 hvetja, 18 öræfi.
Lóðrétt: 1 refsing, 2 fugl, 3 ónefndur, 4
kuldann í líkamanum, 6 bæn, 8 gerast,
11 málmur, 14 fræðslusamtök, 17 tví-
hljóði.
Lausn.
Lárétt: 1vönd, 5inn, 6ár, 7ðd, 8sko, 9
skal, 10re, 12ell, 13lim, 15li, 16örfa,
18auðn.
Lóðrétt: 1viðurlög, 2önd, 3nn, 4hroll-
inn, 6ákall, 8ske, 11eir, 14mfa, 17au.
» BETRI
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
Á FÖSTUDÖGUM
70-71 (54-55) fólk 11.11.2004 21:28 Page 2