Tíminn - 01.12.1974, Blaðsíða 12
12
TÍMINN
Sunnudagur X. desember 1974.
Umsjón: Hjálmar W. Hannesson
Jón Sigurðsson
Breytingar eru tímabærar
á kjördæmaskipaninni
Fáir halda þvi fram að núver-
andi kosningakerfi og kiördæma-
skipan á lslandi hafi ekki ýmsa
kosti lýöræðislegs stjórnkerfis.
Það hefur hins vegar smám
saman komið i ljós, allt frá þvi er
þessari skipan var komið á 1959,
að kerfiö er að mörgu leyti stór-
gallað og er um það af mörgu að
taka.
1 fyrsta iagier kosningastarf og
framboö mjög kostnaðarsamt við
rikjandi kerfi, og veröur ekki
komizt hjá þrautskipulögöu og
fjársterku flokksbákni ef starfaö
skal til frambúðar um land allt.
Kerfiö gerir i öðru lagi ekki ráö
fyrir beinni, milliliðalausri og
persónulegri ábyrgð þingmanna,
en um leiö valda hin stóru kjör-
dæmi þvi aðsamband þingmanns
og kjósenda veröur torveldara en
ella væri. Þingmenn eru ekki
kjörnir sem einstaklingar, sjálfir
ábyrgir gerða sinna hver og einn,
kjörnir vegna eigin skoðana eöa
mannkosta. A sama hátt er kjós-
endum skotið undan þeirri ábyrgð
að velja fulltrúa sina hvern og
einn. 1 reynd er mikill meirihluti
þingmanna skipaður af fámenn-
um nefndum — hin svonefndu
„öruggu sæti” — en þjóöin kýs
aðeins um litinn hluta þingheims.
Til að skorða þetta enn frekar
hafa áhrif útstrikana verið rýrð
að mun.
t þriðja lagi er núverandi skip-
an ósveigjanleg og tekur ekki til-
lit til þeirra búferla sem orðið
hafa I landinu á siðustu árum. Nú
búa t.d. ibúar Kjalarnesþings
utan Reykjavikur við mjög skert-
an hlut. A hinn bóginn vill brenna
við að fámennar byggðir á
jöörum kjördæma verði út undan,
jafnframt þvi sem alið er á hér-
aðarig þar eö heilbrigöur
metnaður og sjálfstæðiskennd
byggðanna rekst á viö kerfið. Þar
sem svo hagar hafa byggðarlög,
sem að einhverju leyti hafa sér-
stöðu, t.d. landfræðilega, mjög
takmarkaöa aðstöðu til að láta
réttilega aö sér kveða.
Samkv_. núverandi skipan er
hún i fjórða lagi ekki einu sinni
jafnað rétt innihlutans, en það er
þó talinn meginkostur hlutfalls-
kosninga. Þannig kemur 12.
minnihluti manni að I fjölmenni
Reykjavikur, en aðeins 5. minni-
hluti utan við borgina, og væri þvi
t.d. réttlátara að skipta Reykja-
vik i tvö sexmenniskjördæmi. Að
vlsu hefur uppbótakerfið gegnt
mikilvægu hlutverki, en þó er það
furðulegur samsetningur. Það
jafnar ekki milli kjördæma eða
frambjóðenda heldur fyrst og
fremst milli flokka, og kjósendur
vita nánast ekkert hvern þeir
kunna aö senda á þing. 1
einstökum atvikum hefur þetta
gjarnan leitt til fáránlegustu úr-
slita. Þá býður það heim eilifum
hrossakaupum og elur á áróðrin-
um um „umframatkvæðin”.
frægu, en sá áróður er ekkert
annað en siðlaus verzlun með at-
kvæði.
Loks, I fimmta lagi, hefur
reynslan sýnt að stór fleirmennis-
kjördæmi með hlutfallskjöri gera
ýmsum skyndilegum upphlaups-
öflum óeðlilega létt um vik og
geta aukiö á sundrung eða jafnvel
valdið stjórnleysi, eins og erlend
dæmi eru um.
Nokkur grundvallarat-
riði
1 ljósi reynslunnar er samt sem
áður ástæðulaust að fordæma
kosningakerfið frá 1959 meö öllu,
en þau atriði sem hér hafa verið
nefnd eru þó fyllilega næg rök
fyrir þvi að það er timabært aö
vinna að breytingum á þvi. 1 þvi
sambandi er rétt aö hafa i huga
að landshlutasamtökin, sem vax-
iö hafa upp I samræmi við kerfið,
geta fullvel staðizt og dafnað þótt
þvi verði breytt.
Allir munu á einu máli um að
stjórnkerfið á að vera einfalt,
réttlátt og lýðræðislegt. Þá á i
senn að endurspegla straumana I
þjóölifinu og móta þau meginöfl
sem veitt geta þjóðinni einbeitta
og samstæða forystu. Viö islenzk-
ar aðstæður er hægt að gera sér
grein fyrir nokkrum grundvallar-
atriðum sem taka ber tillit til.
Kosningakerfið verður að vera
sveigjanlegt og fylgja búferlum i
landinu um leið og það tryggir
hverjum landshluta ákveðna
lágmarkstölu fulltrúa — Sér-
hver þingmaður verður að vera
kjörinn persónubundinni
kosningu, vera bundinn beinum
og milliliðalausum tengslum og
ábyrgð við kjósendur, en þeir um
leið aö hafa raunverulegt
valfrelsi um menn. — Kerfið
verður við skiptingu þingsæta að
jafna þá óliku og ójöfnu aðstöðu
sem þegnarnir búa við, þar sem
helztu stjórnar-, mennta-, heil-
brigðis-, þjónustu- og fjármála-
stofnanir þyrpast i höfuðborginni
og þeir sem búa úti um land eiga
að mörgu leyti óhægt um vik að
reka réttar sins. — Skipanin
verður að taka nægilegt tillit til
landfræðilegrar og annarrar sér-
stöðu einstakra byggða, en um
það verður að dæma i hverju til-
viki. — Tryggja veröur a.m.k.
sambærilegan rétt minnihlutans
hvar sem er, en þetta merkir að
kjördæmi hafi mjög svipaöa
fulltrúatölu hvert ööru.
Valkostirnir
Lágmarksbreytingar á núver-
andi kerfi til að fullnægja þessum
sjónarmiðum eru þessar:
1. Allar kosningar tilþingis
verði persónubundnar, hvort sem
hlutfallskjör helzt eða meiri-
hlutakjör I einhverri mynd er tek-
ið upp.
2. Kjördæmin hafi svipaðan
þingmannafjölda hvert öðru, og
kerfið verði sveigjanlegt að
einhverju leyti eftir ibúafjölda I
hverjum landshluta.
3. Þessi atriði hvila beinlinis á
þeirri forsendu að kjördæmin
verði eitthvað fleiri en nú er.
Vitanlega er ekki til nein alls-
herjarlausn I þessum efnum og sá
kostur mun seint fundinn sem
uppfyllir allar óskir. Hins vegar
er verulegra umbóta þörf, og þar
er um nokkra valkosti að ræða.
Mesta gerbreytingin væri fólgin
i þvi að taka upp algert
einmenniskjördæmakerfi, en Is-
lendingar hafa enga reynslu af
þvi i ómengaðri mynd siöan á
siðustu öld. Slikt kerfi getur verið
með ýmsum mismunandi hætti,
en það verður að vera sveigjan-
legt, annaðhvort með einfaldri
lagasetningu eða dómi hverju
sinni. 1 öðru lagi koma til greina
tiltölulega litil fleirmenniskjör-
dæmi, t.d. þrimenniskjördæmi,
með hlutfallskjöri þar sem kjós-
endur velja um einstaka fram-
bjóðendur, jafnvel af fleiri en
einum lista eftir vild með þvi að
merkja með tölustöfum. Þetta
kerfi verður einnig að vera
sveigjanlegt að einhverju leyti.
Loks er um mismunandi blönduð
kerfi aö velja. Slikt kosningakerfi
gæti t.d. verið með þessum hætti:
— a Landinu öllu er skipt i
einmenniskjördæmi og þar er
kjörinn helmingur eða meirihluti
Alþingis — b. Landinu er einnig
skipt I fá og stór kjördæmi, t.d.
fimm: Reykjavik og fjórðungana,
og þar er kosið allt aö helmingi
þingsins. Þessi kjördæmi hafa
hvert um sig breytilega full-
trúatölu, sem úthlutað er eftir
ibúafjölda, en þingsætum skipt til
jöfnunar milli flokka, eftir að
úrslit eru kunn i einmennins-
kjördæmunum. Flokkarnir bjóða
einnig fram lista I stórkjördæm-
unum og kjósendur geta gert
breytingar á þeim, en frambjóð-
andi sem kjörinn er I einmennis-
kjördæmi fellur brott af listanum,
hafi hann einnig verið borinn
fram þar.
Framsóknarmenn eiga
að taka frumkvæði
Framsóknarmenn bera ekki
stjórnarfarsábyrgð á þvi kosn-
ingakerfi sem hér hefur rikt siðan
1959 enda var þaö sett þeim til
höfuðs I einhverjum tortryggileg-
ustu hrossakaupum Islenzkrar
stjórnm álasögu. Andstaöa
Framsóknarmanna gegn
breytingunum 1959 helgaöist af
hag hinna dreifðu byggða, og
raunar hafa ibúar þeirra löngum
treyst Framsóknarmönnum bezt.
En það er hlutverk og skylda
Framsóknarflokksins I þessum
efnum sem öðrum að hrinda
málum I réttlætis- og framfara-
átt. Eins og nú standa sakir ber
Framsóknarmönnum að taka
frumkvæöiö um nauðsynlegar
umbætur á kosningalögum
landsins.
JS
UMRÆÐUHÓPARNIR
ÁHUGAVERÐIR
Sp.: Nú sazt þú flokksþing
Framsóknarflokksins i fyrsta
sinn. Hefur þú starfaö mikið
að stjórnmálum fram að
þessu?
Sv.: Nei. Þaö fer nú litið
fyrir þvi. Að visu hef ég alla
tiö veriö þrælpólitiskur, en ég
hef ekki veriö félagi I stjórn-
málaflokki fyrr en ég gekk I
Framsóknarflokkinn fyrir
rúmu ári.
Sp.: Þú varst kjörinn á
flokksþingið af FUF I Reykja-
vik. Hvert er þitt áiit á núver-
andi skiptingu innan Fram-
sóknarflokksins I ungfélög (aö
35 ára aldri) og eldri félög?
Sv.: Ég tel aldursskipting-
una óeðlilega og tel æskilegt
að lækka mörkin. Maður kom-
inn yfir þritugt hefur án efa
náð fullum pólitiskum þroska
og á frekar samleið með
fertugum manni en öörum
undir tvitugu.
Sp.: Kom þessi skipting
nokkuð fram á flokksþinginu?
Sv.: Nei, að minnsta kosti
ekki málefnalega.
Sp.: Hefur ungt fólk nægjan-
leg áhrif við núverandi að-
stæður?
Sv.: Ef litið er á hlutfall
milli eldri og yngri manna I
ábyrgöarstöðum innan flokks-
ins, kemur I ljós að eldri-
mennirnir eru mun fleiri.
Þetta er eðlilegt aö vissu
marki, en ég held, aö hlutfalliö
ætti að vera ungum mönn-
um mun hagstæðara en nú er.
Sp.: Hvert á hlutverk
flokksþinga að vera, og hvern-
ig náði þetta flokksþing til-
gangi sinum?
Sv.: Hlutverk flokksþinga á
að vera aö efla samstööu
flokksmanna, fræða þá um
flokksstarfiö, setja flokknum
lög, og siðast en ekki sizt að
ákveða stefnu flokksins.
Þetta flokksþing var vel
heppnaö. A þvi voru sam-
þykktar margar góðar álykt-
anir. Flokksmenn skiptust á
skoðunum og kynntust
innbyröis, en svona þingi eru
vissar skorður settar. A þvi
koma saman u.þ.b. 500 manns
vlösvegar af landinu og eiga
að semja ályktanir, sem
jafngilda stefnuskrá flokksins
næstu fjögur árin. Þaö gefur
auga leið, að þessi fjöldi getur
ekki allur veriö virkur i starfi
þingsins. Auk þess veröa
ályktanir samdar I slikum
flýti ekki eins markvissar og
ákveðnar og þær, sem samdar
voru á löngum tima. Ég teldi
þvi æskilegt aö stofnaðir yrðu
umræðuhópar eða nefndir,
sem störfuöu á milli
flokksþinga, og gæfu siðan
nefndunum á þinginu skýrslur
um hin ýmsu mál.
Sp.:Hvaða málaflokki hafðir
þú einkum áhuga á?
Sv.: Ég sat i menntamála-
nefnd á þessu þingi og fylgdist
þvi bezt með ályktunum
hennar. Annars haföi ég eig-
inlega jafnmikinn áhuga á
flestum þeim málum, sem
þetta þing fjallaöi um. Auk
nefndanna störfuöu
umræðuhópar á þinginu, en
þeir fjölluðu um ýmis mál, svo
sem úrslit siöustu kosninga,
Timann o.s.frv. í þeim fóru
fram uppbyggjandi og
skemmtilegar umræður. Starf
þessara umræöuhópa var aö
minu mati eitt áhugaveröasta
verkefni þingsins. Ég heföi
helzt vijaö taka þátt i öllum
umræðuhópunum, en þvi mið-
ur er maður of takmarkaöur
til að geta skipt sér þannig
niöur, þar sem hóparnir störf-
uðu allir á sama tima. Ég sat i
umræðuhóp, sem fjallaöi um
samvinnuhreyfinguna og
tengsl hennar viö Framsókn-
arflokkinn. H.W.H.
Pétur Orri Jóns-
son er einn þeirra
i'jölmörgu ungu
manna, s e m
undanfarin
m i s s e ri hafa
gengið til liös við
Framsóknarílokk-
inn. Pétur lýkur
stúdentspróí'i fra
Menntaskólanum i
Iteykjavik nú i
vor Hann hefur
o
látið félagsmál
nemenda þess
skóla töluvert til
sin taka og á nú
m.a. sæti i skóla-
stjórn, annað árið
i röð. I tilefni af
nýafstöðnu flokks-
þingi
Framsókna r-
flokksins, en Pétur
Orri sat þingiö var
þetta viðtal tekið
við hann.